Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
Fagleg þjónusta í 60 ár
Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 • Finndu HYGEA á facebook
40% afsláttur
af töskum og túnikumÚTSALA
Mikil reiði og sorg ríkir í Hol-landi eftir hinn hörmulega
atburð þegar farþegavél malasíska
flugfélagsins Malaysia Airlines var
skotin niður yfir Úkraínu. Hefur
reiðin meðal annars beinst að Vla-
dimír Pútín, forseta
Rússlands, sem er
gefið að sök að hafa
stutt uppreisn-
armenn í Úkraínu
með ráðum og dáð
og bera þannig
ábyrgð á að vélin
var skotin niður.
Hollendingumþótti þó nóg
um þegar úkra-
ínskir aðgerð-
arsinnar og hol-
lensk dagblöð
kröfðust þess að
Maríu Pútín yrði
vísað úr landi í refsingarskyni fyrir
meinta ábyrgð föður hennar og
fengu undirtektir hjá borgarstjóra
Hilversum þar sem dóttir Rúss-
landsforseta er sögð búa.
Heimilisfang hennar var birt ánetinu og skorað á fólk að
fara þangað að mótmæla. Lögregla
var við öllu búin og mætti á staðinn,
en enginn mótmælandi lét sjá sig.
Viðbrögð við kröfunni birtust á
vefsíðu mánaðarritsins HP De Tijd:
„Er ekki frekar óheiðarlegt af Guði
að hafa ekki gefið okkur kost á því
að velja okkur foreldra?“
Á félagsmiðlum jusu einhverjirúr skálum reiði sinnar yfir
dóttur forsetans, en yfirleitt var
viðkvæðið að hún skyldi látin í friði.
„Ef svo er að dóttir beri ábyrgð á
gerðum föður síns, þá hefði Maxima
Zorreguieta drottning þurft að yf-
irgefa landið fyrir löngu,“ skrifaði
einn og vísaði þar til þess að faðir
drottningar Hollands var ráðherra
í herforingjastjórn Argentínu, sem
losaði sig við andstæðinga sína með
því að varpa þeim í sjóinn úr flug-
vélum.
Vladimír Pútín
Syndir feðranna
STAKSTEINAR
Maxima
Zorreguieta
Veður víða um heim 25.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 17 skýjað
Nuuk 10 upplýsingar bárust ekki
Þórshöfn 12 þoka
Ósló 28 heiðskírt
Kaupmannahöfn 27 heiðskírt
Stokkhólmur 30 heiðskírt
Helsinki 27 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 21 léttskýjað
Dublin 23 skýjað
Glasgow 27 heiðskírt
London 22 léttskýjað
París 27 heiðskírt
Amsterdam 18 skýjað
Hamborg 21 skýjað
Berlín 21 þrumuveður
Vín 26 léttskýjað
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 26 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 21 skýjað
Montreal 22 skýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 21 alskýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:16 22:53
ÍSAFJÖRÐUR 3:55 23:25
SIGLUFJÖRÐUR 3:37 23:09
DJÚPIVOGUR 3:39 22:29
Árni Björn Pálsson og Stormur frá
Herríðarhóli eru langefstir eftir for-
keppnina í tölti í opnum flokki á Ís-
landsmótinu í hestaíþróttum sem
fram fer á félagssvæði Fáks í Víðidal
í Reykjavík. Þeir fengu 8,70 í ein-
kunn.
Árni Björn og Stormur eru Ís-
landsmeistarar frá síðasta ári og
sigruðu á Landsmóti hestamanna
fyrr í mánuðinum. Þorvaldur Árni
Þorvaldsson og Stjarna frá Stóra-
Hofi og Sigurbjörn Bárðarson á
Jarli frá Mið-Fossum eru í öðru og
þriðja sæti inn í A-úrslit, nokkru á
eftir Árna. Leó Geir Arnarson á Krít
frá Miðhjáleigu og Ragnar Tóm-
asson á Sleipni frá Árnanesi keppa
einnig í A-úrslitum á sunnudag.
Róbert Bergmann og Brynja frá
Bakkakoti urðu efst í töltkeppni
ungmenna og Viktoría Eik Elvars-
dóttir á Mön frá Lækjamóti efst í
unglingaflokki. Þá urðu Védís Huld
Sigurðardóttir og Baldvin frá Stang-
arholti efst í forkeppni í tölti barna.
Reynir Örn Pálmason á Greifa frá
Holtsmúla 1 eru efstir inn í A-úrslit í
slaktaumatölti. Arnór Dan Krist-
insson á Straumi frá Sörlatungu er
efstur í unglingaflokki og Gústaf Ás-
geir Hinriksson á Skorra frá Skriðu-
landi efstur í ungmennaflokki.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Eva Björk
Sigurvegarar Árni Björn Pálsson
með töltbikarinn á Landsmóti 2014.
Árni Björn og Stormur á sigurbraut
Keppt í tölti á Íslandsmótinu í
hestaíþróttum í Víðidal í gærdag
Leikar fara að æsast á Íslands-
mótinu í hestaíþróttum. B-úrslit
verða í dag og þá verður endanlega
ljóst hvaða knapar og hestar komast
í A-úrslit sem verða á morgun.
Íslandsmót í hestaíþróttum full-
orðinna, barna og ungmenna fer
fram á félagssvæði hestamanna-
félagsins Fáks í Víðidal í Reykjavík.
Auk keppni er skemmtidagskrá í
Reiðhöllinni og hestaleigur gefa
börnum og unglingum kost á að
komast á bak.
Dagskráin í dag hefst með gæð-
ingaskeiði klukkan hálftólf. Úrslitin
á morgun hefjast klukkan 12 og síð-
asta greinin, tölt, hefst klukkan sjö
um kvöldið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslandsmót Mikið er um að vera á
Fákssvæðinu í Víðidal um helgina.
Úrslitahelgi
framundan
á hestamóti