Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 21
aldarvísu í öllum þáttum síns
rekstrar hvort sem er til sjós eða
lands.“
Gunnlaugur Sævar sagði Sigurð
VE 15 gott vitni um það eins og
aðrar fjárfestingar Ísfélagsins, í
Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.
Þær skipti milljörðum á ári og miði
að því að nýta betur aflann sem að
landi berist. „Við höfum líka fjár-
fest í markaðsstarfi erlendis og
rekum öflugt sölufélag fyrir Aust-
ur-Evrópu með vinum okkar í
Skinney Þinganesi. Sigurður VE er
annað skipið sem við smíðum á ör-
fáum árum og hefur félagið verið
öðrum fyrirmynd og forysta í end-
urnýjun skipaflotans,“ sagði Gunn-
laugur Sævar og á þarna við Hei-
mey VE sem kom ný árið 2012.
Gunnlaugur sagði Ísfélagið hafa
af fremsta megni reynt að vanda
sig í ákvörðunum og framkvæmd
þeirra. Glímt við sveiflur í nátt-
úrunni eins og loðnubrest á þessu
ári. „Við höfum á liðnum árum not-
ið hás verðs á erlendum mörkuðum
og ég er sannfærður um að svo
verður áfram.
En þá þurfum við líka að fjár-
festa áfram í rekstrinum til að
tryggja að við getum ávallt boðið
upp á það besta. Það myndi sjálf-
sagt kosta um 50 til 60 milljarða
króna að byggja Ísfélag Vest-
mannaeyja upp í dag í sinni mynd.
Þar sjá menn hversu fánýtt tal það
er að þörf sé á „nýliðun í grein-
inni“, sagði Gunnlaugur Sævar og
nefndi að ýmislegt mætti betur
fara í umgjörð sjávarútvegs en
þetta væri gleðistund.
Upphafið að nýrri sókn
„Við ætlum að láta þennan gleði-
dag verða upphafið að sókn okkar.
Að nýrri sókn Vestmannaeyja og
vonandi landsbyggðarinnar allrar
gegn því liði sem heldur að verð-
mætin verði til á hjólastígum í
póstnúmerinu 101.“
Næst ávarpaði hann skipstjórann
Hörð Má Guðmundsson sem hann
lýsti sem reynslumiklum dugn-
aðarforki „Honum er falin stjórn
þessa skips ásamt áhöfn sinni. Ég
er þess fullviss að hann mun axla
þá ábyrgð með glæsibrag og leysa
verk sitt vel af hendi eins og önnur
sem honum hafa verið falin. Ég
óska honum og áhöfn hans til ham-
ingju með nýja starfsstöð. Við ósk-
um ykkur guðsblessunar. Megið
þið verða fengsælir og umfram allt
farsælir.“
Að lokum sagði Gunnlaugur
Sævar að margir hefðu komið að
verki og það bæri að þakka. „Hin-
um stórhuga eigendum Ísfélags
Vestmannaeyja, starfsmönnum
þess, Vestmannaeyingum og Þórs-
hafnarbúum óska ég innilega til
hamingju með þetta stórkostlega
skip Sigurð VE 15.“
Í heimahöfn Sigurður siglir inn í Vestmannaeyjahöfn um hádegisbilið í gær. Fljótlega verður haldið á makrílveiðar.
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
„Munurinn er mikill, Þorsteinn ÞH
var smíðaður 1988 og hér erum við
að koma með mun stærra og öfl-
ugra skip sem búið er fullkomnasta
og besta búnaði og tækjum sem völ
er,“ sagði Hörður Már Guðmunds-
son, skipstjóri á nýjum Sigurði.
„Jú, þetta eru mikil viðbrigði, allt
stærra, fullkomnara og miklu kraft-
meira. Sigurður er meira en helm-
ingi stærri en Þorsteinn sem var
1.800 brúttótonn en sá nýi er 3.763
brúttótonn.“
Sigurður kemur með ferskan afla
að landi sem geymdur er í þar til
gerðum kælitönkum. „Við erum
með fullkomnasta kælikerfi sem
hægt var að fá og það stærsta um
borð í íslensku fiskiskipi. Allar vél-
ar, spil, kranar og tækjabúnaður er
sá besti og fullkomnasti,“ sagði
Hörður sem hefur 20 skjái fyrir
framan sig í risastórri brúnni.
„Þetta eru dýptarmælar og asdic
sem segja manni hvað er að finna í
sjónum og hvernig ástandið er,
hitastig og annað sem kemur að
notum við veiðarnar. Ég get svo
flakkað á milli skjáa allt eftir því á
hvaða veiðiskap við erum.“
Heimsiglingin gekk vel og gott
veður var alla leiðina frá Tyrklandi.
„Hann komst upp í 17 mílur og
gekk vel. Það var blíðuveður en
ansi heitt á leiðinni um Miðjarð-
arhafið.“
Tveir farþegaklefar
Allar innréttingar og aðbúnaður
fyrir áhöfn minnir helst á skemmti-
ferðaskip í hæsta gæðaflokki og
meðal annars eru tveir farþegaklef-
ar. Við upphaflega hönnun skipsins
fyrir norska útgerð voru klefarnir
hugsaðir fyrir gesti ef skipið yrði
leigt til að þjónusta olíuiðnaðinn.
Líka setustofa og fundarherbergi
fyrir átta sem átti að nota í sama
tilgangi.
Á trolli verða átta í áhöfn en ell-
efu á nótinni. „Öll veiðarfæri verða
stærri og afkastameiri en maður
hefur kynnst áður. Það er nýjung
að við getum dælt beint úr trollinu
að aftan. Þarf ekki að losa pokann
frá sem er mikið vinnuhagræði fyr-
ir okkur. Við förum á makríl þegar
skipið verður tilbúið sem tekur ein-
hverja daga,“ sagði Hörður að end-
ingu.
Í brúnni Hörður Már Guðmundsson skipstjóri með konu sinni, Kristínu Sig-
rúnu Grétarsdóttur. Þar er vítt til veggja og 20 skjáir sem fylgjast þarf með.
„Allt stærra, fullkomnara og kraftmeira“
Margt um manninn Talsverður fjöldi fólks tók á móti skipinu og skoðaði það við komuna til Eyja.
Í hæsta gæðaflokki Góður aðbúnaður er fyrir áhöfnina en einnig tveir
farþegaklefar, setustofa og fundarherbergi fyrir átta manns.