Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 24
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Landsmóti skáta á Akureyri lýkur um helgina. Þúsundir manna hafa verið saman á Hömrum í nokkra daga í blíðviðri og fengist við marg- slungin verkefni.    Fjölmargir útlendir skátar hafa verið á Hömrum í vikunni, m.a. hóp- ur úr sveitarfélaginu Huddinge við Stokkhólm í Svíþjóð. Flestir Sví- arnir eru 15 ára. Í hópnum eru 39 manns með fararstjórum.    „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt. Við höfum klifrað bæði í klettum og klifurvegg. Og svo dönsuðum við með Páli Óskari. Það var frábært,“ sagði enn Svíinn sem Morgunblaðið ræddi við. Aðrir í hópnum tóku undir. „Við höfum kynnst mörgum krökkum frá öðrum löndum sem er mjög mikilvægt,“ sagði annar.    Sirkus Íslands er mættur til Akureyrar með stórt tjald sem komið hefur verið upp á flötinni fyr- ir neðan samkomuhúsið. Þar má sjá allt frá trúðum til loftfimleikafólks en reyndar engin dýr. Sirkustjaldið Jökla er 13 metra hátt. Sirkusinn verður í bænum fram yfir versl- unarmannahelgi.    Lággjaldaflugfélög frá Þýska- landi, Bretlandi og Skandinavíu kanna möguleika á millilandaflugi frá Akureyri og svo gæti farið að millilandaflug hefjist strax næsta sumar. Þetta segir Arnheiður Jó- hannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, í sam- tali við Vikudag á Akureyri.    Arnheiður segir Easy Jet og Norwegian á meðal þeirra flug- félaga sem sýnt hafi Akureyri áhuga en staðfestir að fleiri erlend flugfélög séu í sigtinu.Hún vonast til þess að viðræður gangi hratt fyr- ir sig. „Við erum að vonast til þess að það verði hægt að hefja milli- landaflug strax næsta sumar en það er ómögulegt að staðfesta það,“ segir Arnheiður.    Íbúar við Brekatún í Nausta- hverfi nutu góðs af því í vikunni að Þjóðverjar urðu á dögunum heims- meistarar í knattspyrnu. Séra Hild- ur Eir Bolladóttir og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri búa bæði við götuna en héldu með sitt hvoru liðinu. Eiríkur var við nám í Þýska- landi á sínum tíma og hafði lofað prestinum að ef hans menn sigruðu Argentínumenn í úrslitaleiknum myndi hann blása til grillveislu í götunni. Hildur lofaði á móti að sjá um gosið! Allir íbúar voru svo boð- aðir í grill í vikunni, þar sem boðið var upp á þýskar pylsur.    Ferðamenn hafa stundum lent í vandræðum þegar þeir þurfa að kasta af sér vatni eða sinna kalli náttúrunnar að öðru leyti. Gömlu, góðu almenningssalernin undir kirkjutröppunum hafa verið lokuð um árabil en lausn er í sjónmáli.    Ákveðið hefur verið að taka til hendinni og opna almenningssal- ernin á nýjan leik fyrir verslunar- mannahelgi og létta þannig álagi af veitingahúsum og eina klósettinu í Akureyrarkirkju!    „Takk fyrir að vekja máls á þessu. Nú þurfa menn að huga að fyrirkomulagi þessara mála til framtíðar. Í hádeginu var hins veg- ar ákveðið að þrífa og mála gömlu bæjarklósettin og þau munu opna fyrir verslunarmannahelgi. Þá verð- ur sett upp skilti í miðbænum sem vísar á snyrtingar í Hofi. Þetta er vissulega bráðarbirgðalausn en verður að duga í bili,“ skrifaði Logi Már Einarsson, bæjarfulltrúi á Facebook síðu sína í vikunni, eftir að einn bæjarbúa, Hreinn Skagfjörð Pálsson hafði skrifað um málið.    Hljómsveitirnar OjbaRasta og Grísalappalísa blása til tónleika á Græna hattinum í kvöld ásamt DJ Flugvél og Geimskipi.    Drusluganga verður á Akureyri í dag. Þetta er fjórða árið sem Druslugöngur fara fram víða um heim og hafa Akureyringar frá upp- hafi staðið fyrir slíkri uppákomu og þátttakan farið vaxandi milli ára.    Upphaf Druslugöngunnar má rekja til Toronto í Kanada, þar sem fyrsta gangan var farin 29. apríl 2011. Þá var gangan hluti af við- brögðum samfélagsins við orðum lögreglumanns sem sagði að konur ættu að forðast það að klæða sig eins og druslur ef þær vildu ekki verða fórnarlömb nauðgana. Orðin vöktu mikla reiði, sérstaklega hjá konum sem sögðust vera orðnar þreyttar á því að vera kúgaðar með ásökunum tengdum klæðaburði sínum.    Gangan hefst kl. 14.00 í dag við Akureyrarkirkju og verður gengið niður Gilið og inn á Ráðhústorg. Af bæjarklósettum og druslugöngu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ánægja Krakkarnir og fararstjórar þeirra frá Huddinge í Svíþjóð voru hæstánægðir með lífið á skátamótinu. Sirkus Íslands Tjaldið er á flötinni við Samkomuhúsið og sýningar hafnar. 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014 SPUNI Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir Veldu þinn lit úr rúmlega 50 litum sem í boði eru og við bólstrum stólinn eftir þínum óskum. STOFNAÐ 1956 Íslensk hönnun & handverk Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is Forvitnileg og ókeypis kammer- veisla verður í Hofi í dag þegar á svið stíga hljóðfæraleikarar af skemmtiferðaskipinu Black Watch, sem leggur að bryggju í morguns- árið. Skv. tilkynningu eru tónlist- armennirnir, sem alla jafna skemmta farþegum um borð í skip- inu, á heimsmælikvarða og kynn- irinn, Hilary Finch, þekktur tónlist- argangrýnandi og útvarpskona. Tónleikarnir hefjast kl. 18.00.    Tónlistarmennirnir eru erlendir nema hvað Einar Jóhannesson klar- inettuleikari bættist í hópinn í Reykjavík í fyrradag. Einar heldur áfram með skipinu allt til New- castle á Englandi. Auk Einars leika á tónleikunum flautuleikari og fyrsta flauta í Sin- fóníuhljómsveit Lundúna, sellóleik- arinn Alasdair Tair sem lék áður með Balcea-kvartettinum og píanó- leikarinn Carole Presland. Allt eru þetta leiðandi listamenn í stóru hljómsveitunum í Bretlandi.    Black Watch lagði úr höfn í New- castle 20. júlí með um 800 tónelska farþega. Ferðaskrifstofan Kirker Holidays sérhæfir sig í menning- arferðum og í þessari siglandi tón- listarveislu verður siglt umhverfis Ísland með viðkomu í Færeyjum. Tónlistarmennirnir halda tónleika um borð á hverjum degi en tónleik- arnir í Hofi eru þeir einu sem öðr- um en farþegum skipsins gefst kostur á að hlýða á. Morgunblaðið/Golli Kemur frá borði Einar Jóhannesson klarinettuleikari leikur í Hofi í dag. Ókeypis kammerveisla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.