Morgunblaðið - 26.07.2014, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 26.07.2014, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er eitt og annað sem veldur þér sérstakri kátínu þessa dagana. Kynntu þér reglur laganna og hvort allt er eins og það á að vera. 20. apríl - 20. maí  Naut Þolinmæði þrautir vinnur allar segir máltækið. Taktu mark á því og þú munt fá aðra og betri sýn á lífið og tilveruna. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt þú hafir mikið að gera máttu ekki vanrækja sjálfan þig. Láttu vera að taka einhverja áhættu ef þér finnst landið liggja illa. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur lagt hart að þér að und- anförnu og átt því skilið að eiga rólegan dag og gera aðeins það sem þig langar til. Ef það gengur eftir verður það þér til góðs. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fjölskyldan er tilfinningalegur kjarni til- verunnar. Gættu þess að fara ekki yfir strik- ið í samskiptum við vini eða fjölskyldu, ekki síst við börn eða sakleysingja. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gefðu þér tíma til þess að sinna því, sem hugur þinn stendur til. Viðhorf sig- urvegara gerir þig að sigurvegara, þó að rökrétt niðurstaða sé að þú hafir tapað. 23. sept. - 22. okt.  Vog Oft geta annarra orð valdið hugarfars- breytingu hjá manni sjálfum. Reyndu samt að missa ekki sjónar á velferð þinna nán- ustu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú munt hugsanlega eiga mik- ilvægar samræður við foreldra þína eða yfir- menn í dag. Vertu raunsær og sanngjarn um leið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að stilla gagnrýni þinni á börn og unglinga í hóf í dag. Reyndu að komast að því hver ástæðan er fyrir þessu ótrúlega aðdráttarafli. 22. des. - 19. janúar Steingeit Deildu draumum þínum og fram- tíðarvonum með vini þínum. Njóttu fé- lagsskapar vina sem eru jafn lifandi og þú. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er mikilvægt að þú sinnir löngun þinni til að gera eitthvað nýtt. Hugur þinn er tilbúinn til að túlka slys sem upp- götvanir, mistök sem tækifæri og rifrildi sem tækifæri til að þroskast. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gríptu hvert tækifæri til að beita mætti þínum til góðs. Með því að gefa færi á þér tekst viðkomandi, sem er með álíka þykka vörn og Kínamúrinn, að lækka við- búnaðarstigið eilítið. Kanadíski rithöfundurinn DouglasCoupland er í uppáhaldi hjá Víkverja og mælir hann með bókum hans. Coupland er meira að segja Íslandsvinur en hann var gestur á Bókmenntahátíð Reykjavíkur í fyrra. Ein bóka hans ber nafnið How to be good eða Hvernig skal góður teljast. Í henni er söguhetjan kona sem lítur á hlutina í karmísku ljósi. Ef hún gerir eitthvað gott má hún gera eitthvað slæmt á móti og samt vera „góð manneskja“. x x x Án þess að lifa eftir þessari ágætuhugmyndafræði reynir Víkverji eftir fremsta megni að greiða götu samferðafólks síns, og aðstoða – upp að vissu marki. Að gefa blóð getur orðið til þess að bjarga mannslífi, en reyndar einnig að gefa stefnuljós. Víkverji gerir hvort tveggja. Hann hefur reyndar gefið tæpa 25 lítra af blóði á undanförnum árum. Hann hlýtur samkvæmt kenningu Coup- lands að eiga töluvert inni af hermd- arverkum. x x x Úr því að minnst er á blóðgjafirmá Víkverji til með að klappa sér á bakið fyrir að hafa mætt nán- ast á þriggja mánaða fresti í Blóð- bankann til að tappa af. Stungan venst aldrei en öllum er hollt að vera augnablik smeykur af óþörfu. Og til- hugsunin um að vera að hjálpa ekki bara náunganum heldur nýburum og fólki í krabbameinsmeðferð er til þess gerð að vekja undrun. Hvers vegna vilja ekki allir sjá af 20 mín- útum – í mesta lagi – á þriggja mán- aða fresti (fjögurra mánaða fresti hjá konum) til að gefa svona ríku- lega af sér. x x x Ef einhver er svo þannig þenkjandiað kenningin úr How to be good hentar lífsstílnum þá má benda á þá „aukaverkun“ að með því að láta frá sér 450 millilítra af blóði í þágu góðs málefnis er blóðið í líkamanum tölu- vert þynnra svona fyrstu dagana. Er því væntanlega hægt að safna sér neikvæðum karmastigum í hvelli með því að mæla sér mót við Díóný- sus. víkverji@mbl.is Víkverji Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun ég alls eigi brott reka. (Jóhannesarguðspjall 6:37) Síðasta vísnagáta var eftir HelgaR. Einarsson: Með tækninni má taktinn fá, tilvalið í kæfu, fara í hann sem fljúgast á, firrir brjóstið gæfu.“ Helgi svarar sér sjálfur og segir fleira í leiðinni: „Vandamálið virðist mér vera léttvægt nú í dag því allt að sama brunni ber. Það blasir við að þetta er slag. Í vikunni sem leið var ég með góðu fólki í gönguferðum um Reyk- hólasveitina og kom þá m. a. til tals þegar Þorgeir Hávarsson hékk á hvönninni frekar en kalla á hjálp. Nú er öldin önnur. Í dag sér stoltir bjarga á bótum og bölva öllu streði er forðum hengu á hvannarótum með heiðurinn að veði. Og að lokum. Hugann bætir heilbrigð sál og heilsubótagöngur, en lífsgleðinnar leyndarmál er líka vín og söngur.“ Harpa á Hjarðarfelli á þessa lausn: Tromman slegin taktfast er, tekið er í kæfu slag. Slag í drengir dembdu sér, datt þá einn með hjartaslag. Harpa lét tvær vísnagátur fylgja, sem verða að bíða næstu viku. Guðmundur Arnfinnsson skrifaði, að hann léti ekki hjá líða að líta í Vísnahornið og sjá: þar leyndist gáta. Heillengi ég heilann braut, helgargátan snúin er, að lotum kominn leysti þraut, lausnina ég sendi þér : Vélarbullan veitir slag, vænt þarf slag í kæfuna, slag menn iðka oft í dag, endar slag lífs gæfuna. Má til með að senda þér gátu: Bærist hann í brjósti manns, bjargræðis er tími þá, bónarvegur betlarans, birtist oflátungi hjá, Magnús Ólafsson frá Sveins- stöðum útskrifaðist af Landspít- alanum í gær, en þegar hann fékk þær góðu fréttir sagði hann við hjúkrunarliðið: Finn ég hér frá öllum il að mér stöðugt gættuð. Fyrir þetta þakka vil þið mitt lífshlaup bættuð. Ey á himni er nú ský ekkert gleði hemur. Frjáls ég héðan fer á ný á föstudaginn kemur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af heilsubótargöngum og útskrift af spítala Í klípu FRUMMAÐURINN UPPGÖTVAR BARNAGÆSLU. eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... eins og lífið á að vera. VIÐ ERUM FARIN AÐ VEIÐA OG SAFNA. SJÁUMST FLJÓTLEGA! VÆÆÆL! KVARTANIR HVERNIG VAR RÁNSFERÐIN TIL ENGLANDS? ÞAÐ RIGNDI ALLAN TÍMANN! KOMSTU MEÐ EITTHVAÐ TIL BAKA? JÁ, 300 SÓLGLERAUGU. VEISTU, GRETTIR ... ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÉG ER EKKI MEÐ OFNÆMI FYRIR KATTAHÁRUM ... JÁ. ÞÁ ÞYRFTI ÉG AÐ FINNA HANDA ÞÉR ANNAÐ HEIMILI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.