Morgunblaðið - 26.07.2014, Side 49
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Fyrir sjö árum síðan ræddi ég við
þá Loga Höskuldsson (Sudden
Weather Change, Prinspóló o.fl.)
og Þórð Hermannsson (Her-
óglymur, The Heavy Experience
o.fl.) vegna deili-kassettu eða
„split“ kassettu sem þeir voru að
gefa út. Viðtalið var birt í þessu
blaði hér en nokkru fyrr hafði ég
skrifað grein í sama blað þar sem
ég harmaði dauða kassettunnar en
fréttir um framleiðslustöðvun á
þessu merka afspilunarformi höfðu
þá borist yfir hafið. Athafnasemi
Loga og Þórðar á þessu sviðinu
kom mér því gleðilega í opna
skjöldu og því var réttast að bíða
um stund með glerharða dán-
artilkynningu. Áhugi yngri kyn-
slóðar á þessu „hvorki né“ formi,
sem var laust við töfra vínylsins og
vinsældir geisladisksins, vakti um
leið forvitni mína og þegar nánar
var að gáð hafði verið mun meira
falið í litlu, prúðu og nánast ámát-
legu kassettunni en mig hreinlega
minnti…
Streymi
Ég hafði nánast gleymt öllum
þeim stundum sem ég varði við að
taka upp úr útvarpinu, taka upp
fyrir vini mína, afrita hjá þeim efni
o.s.frv. Kassettan hafði að þessu
leytinu til mun hagnýtara gildi en
vínyll eða geisladiskar. Það var
ekki bara afspilunarform heldur og
tól til að dreifa fagnaðarerindinu.
Fyrir tíma niðurhals og streymis
var þetta litla plasthylki notað og
efninu streymt á milli með strætó-
ferðalögum og póstsendingum.
Kassettan var í raun rígbundin við
grasrótarstarfsemi og þar lifir hún
enn og nokkur broddur hefur meira
að segja verið í kassettuiðnaðinum
undanfarin fimm ár eða svo. Er ég
ræddi við þá Loga og Þórð á sínum
tíma var um undantekningu að
ræða, ástríðufullt einkaframtak
sem gekk á móti straumnum, en nú
er hægt að tala um senu,
menningarkima, eitthvað sem þrífst
allan ársins hring og fleiri eru um
hituna en nokkrir draumóramenn
og -konur. Kassettuútgáfa hefur
reyndar alltaf haldist nokkuð reglu-
bundin í geirum sem eru langt fyrir
neðan yfirborðið; hráu svartþung-
arokki og þvíumlíku en ef við horf-
um t.d. hingað til Fróns í dag er
merkilega mikið á seyði. Berglind
Ágústsdóttir er t.a.m. iðin við kass-
ettukolann, LadyBoy Records hef-
ur nú gefið út tvær safnkassettur
(en safnkassettur voru gríðarlega
mikilvægar og mótandi á níunda og
tíunda áratugnum) og Legend og
Sólstafir gáfu út smá-kassettu með
tveimur lögum svo fátt eitt sé
nefnt.
Broddurinn sem ég minntist á
hefur þá sýnt sig úti í heimi m.a. í
hinum alþjóðlega kassettudegi sem
var haldinn hátíðlegur í fyrsta
skipti síðastliðið haust og í hægum
en öruggum uppgangi lítilla útgáfa
sem sérhæfa sig í kassettum. Þá
hafa fræðimenn á tónlistarsviðinu
verið að beina sjónum að forminu í
auknum mæli og hlýddi ég á tvo há-
skólafyrirlestra um efnið í vor, ann-
ars vegar í Glasgow og hins vegar í
Edinborg.
Ekki heimsyfirráð
Fræðimennirnir höfðu báðir
kannað nústarfandi kassettuútgáf-
ur og allar áttu þær það sameig-
inlegt að vera örsmáar í sniðum.
Heimsyfirráð voru ekki á dagsplan-
inu, öllu heldur mikil sátt með litla
markaðshlutdeild og gróðasjón-
armið víðs fjarri. Aðstandendur
lýstu því m.a. að ódýrt væri að
framleiða kassetturnar og upplög
oft á bilinu 25 til 50 stykki. Mikið
var selt á tónleikum og eigendur
útgáfanna lýstu því að fólk keypti
sér einatt kassetturnar sem eins-
konar minjagrip um þá. Þar með
komum við að nokkuð athygl-
isverðum vinkli varðandi þetta allt
saman, þ.e. hinni ó-tónlistarlegu
virkni í kringum kassettusenuna í
dag. Kassettan er nú orðin að
tískutákni; merki um ákveðna af-
stöðu og lífsstíl, umföðmuð af „hip-
sterunum“ svokölluðu, smekkleið-
urum samtímans. Margir
kaupendur viðurkenndu, í viðtali
við einn fræðimanninn, að þeir ættu
ekki einu sinni kassettutæki. Spól-
urnar væru skraut. Engar tölur eru
til um hversu algeng sú nálgun er,
miðað við fyrri tíma, en þess má
geta að fyrrnefndir Logi og Þórður
töluðu m.a. um hljóð-fagurfræði
snældnanna, sem þægilegt og
hressandi mótvægi við dauðhreins-
aðan hljóm geisladiskanna. Þeir fé-
lagar voru ekki bara í þessu út á
stílinn en í dag er kassettan – fyrir
suma a.m.k. – fyrst og fremst
áminning um hversu gott og nota-
legt allt saman var í gamla daga.
Kassettan mun því aldrei ná sömu
endurkomuhæðum og vínyllinn en
virðist hins vegar hafa fundið sér
nokkuð traustan íverustað í und-
irgrundinni og færist því fjær dán-
arbeðinum með hverju árinu.
Ég ætla að ýta á „stop“ takkann
núna en það þarf bara einfalda leit
á netinu til að finna urmul greina
um þetta nýtilkomna kass-
ettudálæti tónlistaráhugamanna.
Flestar greinarnar eru frá 2013 og
2014 þannig að „æðið“ er í fullum
gangi. Já, tískan – hvort heldur í
sjálfri tónlistinni eða umbúnaði
hennar – fer í hringi. Ætli það sé þá
ekki geisladiskurinn næst? Varla…
Snældan
snýr aftur
Kassettur ganga nú í endurnýjun
lífdaga Hagnýtt form eða bara
fortíðarþrá hinna svölu?
Snælduvitlaust Kassettur flæða nú hljóðlega yfir tónlistarheima.
»Kassettan er nú orð-ið að tískutákni;
merki um ákveðna af-
stöðu og lífsstíl, umföð-
muð af „hipsterunum“
svokölluðu, smekkleið-
urum samtímans.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014
„I Should Have a Party for All the
Thoughts I Didn’t Say“ er dans-
leikverk eftir bandarískan leikhóp,
undir leiðsögn Samönthu Shay og
Sam Szabo. Nú í endurgerð fyrir þrjá
leikara hefur hljómsveitin Orphic
Oxtra samið nýja tónlist fyrir sýn-
inguna sem sýnd verður í kvöld
klukkan 21.00 í Gym og Tonic-sal
Kex Hostels. „I Should Have a Party
for All the Thoughts I Didn’t Say er“
að sögn sjónrænt og lifandi ástarbréf
til rússneska skáldsins Antons Tsje-
kovs, tjáð með líkamlegum flutningi,
fornum sorgarsöngvum og trylltri
balkantónlist.
Orphic Oxtra er með fjölmennari
sveitum landsins en hún telur ellefu
manns. Á meðal þeirra má nefna Báru
Gísladóttur sem samdi meðal annars
nýverið efni fyrir sýningu Arnars Dan
Kristjánssonar, „Landsliðið á línu“.
Orphic Oxtra semur
fyrir bandarískt verk
Morgunblaðið/Ernir
Leikverk Sveitin semur
fyrir verkið „I Should
Have a Party for All the
Thoughts I Didn’t Say“.
“Eipshit geðveik ef ekki
besta myndin í sumar”
-T.V. BIOFIKILL.COM
ÍSL.
TAL
"Besta stórmyndin í sumar.
Þú verður gersamlega agndofa“.
- P. H., Movieline
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÍSL.
TAL
TÖFRANDI MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
"Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!"
-T.V., Biovefurinn.is
"Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!"
-Guardian
POWERSÝNINGKL. 10:10
-New York Daily News
★ ★ ★ ★ ★
L
L
12
12
14
14SEX TAPE Sýnd kl. 2 - 5:50 - 8 - 10:10
HERCULES Sýnd kl. 8 - 10:10 (P)
PLANET OF THE APES 3D Sýnd kl. 7:30 - 10:10
22 JUMP STREET Sýnd kl. 5
AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 2 - 5
TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 2 - 4