Morgunblaðið - 30.07.2014, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 177. tölublað 102. árgangur
HALDA STÓRTÓN-
LEIKA Í HÖRPU
Á AFMÆLINU
UPPLIFUN SEM
FÆST EKKI KEYPT
LEIKNISMENN
NÁLGAST ÓÐUM
EFSTU DEILDINA
ERLENDIR SJÁLFBOÐALIÐAR 10 NÚ EÐA ALDREI ÍÞRÓTTIRHJÁLMAR TÍU ÁRA 30
Morgunblaðið/Golli
Drón Tæki svipuð þessu hafa verið á
sveimi á Þingvöllum í sumar.
Heimsóknum ferðamanna í þjóð-
garðinn í Þingvöllum hefur fjölgað
um 25% í sumar og stefnir í að yfir
600 þúsund ferðamenn komi í þjóð-
garðinn. Með öllum þeim sem aka í
gegn fer fjöldinn vel yfir milljón.
Þjóðgarðsvörður glímir ekki aðeins
við fjölgun ferðamanna heldur hef-
ur einnig borið á kvörtunum yfir
umferð flygilda um svæðið, eða svo-
nefndra dróna sem ferðamenn setja
á loft með fjarstýringu. Eru jafnvel
dæmi um að drón hafi verið sett á
loft þegar þjóðhöfðingi kom að
Lögbergi. Öryggisvörðum í fylgd-
arliði hans hafi ekki staðið á sama.
„Allt í einu stökk ferðamaður til og
hóf drón á loft sem flaug yfir hausa-
mótunum á okkar gestum. Það fór
skjálfti um menn,“ segir Ólafur Örn
Haraldsson þjóðgarðsvörður um
þetta atvik. bjb@mbl.is »4
Drón á flugi yfir
þjóðhöfðingjum
á Þingvöllum
Afgangur í fyrra
» Atvinnuleysistryggingasjóð-
ur var rekinn með tæplega 2,8
milljarða króna halla árið 2012.
» Sjóðurinn var rekinn með
milljarðs kr. afgangi í fyrra, þá
dró um 23% úr bótagreiðslum.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Atvinnuleysistryggingasjóður
greiddi í fyrra út um 23% lægri bæt-
ur en á árinu 2012 og nam tekju-
afgangur af rekstri sjóðsins 1.055
milljónum króna, samkvæmt upplýs-
ingum frá Vinnumálastofnun.
Sjóðurinn var rekinn með 2.765
milljóna króna halla á árinu 2012.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra segir að ásetningur stjórn-
valda standi til lækkunar trygginga-
gjalds, en í ár lækkar framlag félaga
innan SA um 0,1%, árið 2015 um
0,1% og sömuleiðis um 0,1% árið
2016. Bjarni segir að árið 2016 hafi
tryggingagjaldið þannig verið lækk-
að um fjóra milljarða króna. Skoðað
verði hvort mun lægri greiðslur úr
Atvinnuleysistryggingasjóði í fyrra
gefi tilefni til enn frekari lækkunar á
tryggingagjaldinu. „Það er gleðiefni
að það dragi úr atvinnuleysisbóta-
greiðslum vegna minna atvinnuleys-
is,“ segir Bjarni.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, kveðst telja að SA
eigi inni 1,5% lækkun á almenna
tryggingagjaldinu, auk hugsanlegs
svigrúms til lækkunar á atvinnuleys-
istryggingagjaldinu. »12
Milljarður í afgang í fyrra
Tryggingagjald á að lækka um 4 milljarða á árunum 2014 til 2016 Samtök
atvinnulífsins telja enn frekara svigrúm vera til staðar til lækkunar á gjaldinu
Teikning/Út Inni arkitektar
Mikil breyting Svona mun nýtt fjölbýlishús á
Frakkastíg 8 líta út, skv. hönnun sem er í vinnslu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stefnt er að því að hefja uppbyggingu á svo-
nefndum Frakkastígsreit í miðborg Reykjavíkur í
haust. Félagið Blómaþing stendur að fram-
kvæmdinni og herma heimildir Morgunblaðsins
að kostnaðurinn sé 3-4 milljarðar króna.
Að sögn Baldurs Ó. Svavarssonar, arkitekts hjá
Út Inni arkitektum, sem hannar allar byggingar á
reitnum, er gert ráð fyrir 65-66 íbúðum á reitnum.
Bílakjallari verður undir hluta lóðarinnar.
Nokkrar byggingar munu víkja vegna fram-
kvæmdanna, m.a. Hverfisgata 58 og Frakkastígur
8. Síðarnefnda byggingin er áberandi í miðborg-
inni, en þar er m.a. krá og skemmtistaður. Þar
mun rísa fjölbýlishús með tugum íbúða.
Nýtt hús verður byggt sem mun hafa húsnúm-
erið Laugavegur 41. Þá kemur nýtt hús á horni
Laugavegs og Frakkastígs. Á baklóð fyrirhugaðs
fjölbýlishúss á Frakkastíg 8 verður byggt 8 íbúða
fjölbýlishús. Nýju húsin munu vera í stíl við eldri
byggð á svæðinu.
Uppbyggingin skiptist í þrjá áfanga og stendur
yfir 2014-2017. Sá fyrsti hefst í haust. Byggðar
verða 23 íbúðir í fyrsta áfanga og er áformað að
þær fari í sölu um haustið 2015.
Listaháskóli átti að rísa
Skipulagið á Frakkastígsreitnum hefur breyst
mikið frá því að efnt var til hönnunarsamkeppni
um nýjar höfuðstöðvar Listaháskóla Íslands. Þar
átti að rísa stórhýsi og voru vonir bundnar við að
nýr skóli yrði opnaður 2011. »14-15
Uppbygging við Frakkastíg hefst
Áformað að hefja framkvæmdir í haust 65-66 íbúðir byggðar á reitnum
Þessir ungu piltar höfðu klætt sig upp á og
þrömmuðu eins og herforingjar um götur borg-
arinnar í gær, líklega í leit að ævintýrum.
Sólargeislarnir sem léku við höfuðborgarbúa í
gær drógu marga út úr húsum og mikið mannlíf
var í bænum. Hiti í Reykjavík náði 15 gráðum.
Glampandi sól og galdrakarlar á ferðinni
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Harry Potter og Gandálfur ásamt vini á röltinu í borginni
Sannkölluð
Miðjarðarhafs-
stemning hefur
verið á Húsavík í
júlímánuði. Ís-
lenskir ferða-
menn hafa sótt
þangað í sólina
og mannlífið er
eftir því. Veit-
ingamenn hafa
dregið borð og
stóla út á stéttir og palla. Meðalhit-
inn í júlí, að deginum, er rúm 15
stig en hitinn hefur farið tíu sinnum
yfir 20 stig. »9
Sólarlandastemning
á Húsavík í sumar
Húsavík Ferða-
menn fjölmenna.
Fjárfestinga-
félagið Eyrir In-
vest tapaði um
19,2 milljónum
evra, jafnvirði
2,97 milljarða
króna, á síðasta
ári. Tap Eyris á
síðustu tveimur
árum nemur sam-
tals ríflega fimm milljörðum.
Lykileignir Eyris eru 29,3% hlut-
ur í Marel og 17% eignarhlutur í
hollensku fyrirtækjunum Fokker
Technologies og Stork Technical
Services. »16
Fjárfestingafélagið
Eyrir tapaði 3 millj-
örðum á árinu 2013
Þórður Magnússon