Morgunblaðið - 30.07.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.07.2014, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014 ✝ MarteinnMitchell Pét- ursson fæddist í Reykjavík 2. febr- úar 1944. Hann lést á krabba- meinsdeild Land- spítala 21. júlí 2014. Foreldrar hans vor Ólavía Nielsen, f. 25. desember 1908, d. 26. nóv- ember 1997 og Pétur Ketilsson, f. 17. september 1907, d. 15. apríl 1981. Systkini Mar- teins eru Ketill Þorsteinn, f. 15. ágúst 1936, d. 29. maí 1998 og Sig- ríður, f. 17. apríl 1936. Útför Marteins fer fram frá Foss- vogskapellu í dag, 30. júlí 2014, og hefst athöfnin kl. 13. Starfsfólk Innness vill koma samúðarkveðjum til fjölskyldu og vina Marteins Péturssonar. Mar- teinn var mikill húmoristi og hafði ákveðnar skoðanir þegar kom að stjórnmálum og knatt- spyrnu. Hann var Liverpool- maður fram í fingurgóma, hver sem hélt með öðru liði í ensku deildinni fékk glettnar ábending- ar þegar það var Liverpool í hag. Hann kom til starfa hjá Innnes við sameiningu við Rydenskaffi og var strax ljóst að þarna var á ferðinni öflugur einstaklingur. Á starfsmannafundum fyrirtækis- ins er venja að óska eftir fyrir- spurnum frá starfsfólki og það er mál manna að nú verði Marteins sárt saknað enda nýtti hann sér það óspart. Hann kom ávallt með fyrirspurnir um hvort þessi vara eða hitt vörumerkið yrði ekki brátt hluti af rekstrinum eða hvort við stjórnendurnir ætluð- um að láta aðra um að vaxa á markaðnum. Allt var þetta þó sagt með glettni og húmor svo allir höfðu gaman af en sýndi vel hversu mikinn metnað hann hafði fyrir vexti og uppgangi fyrirtæk- isins. Marteinn var vinnusamur og samviskusamur starfsmaður, hlífði sér hvergi við hvaða verk- efni sem hann vann og var ávallt boðinn og búinn til að taka þau að sér. Hann var ósérhlífinn við vinnu og alltaf tilbúinn til að vinna lengur þegar á þurfti að halda til að tryggja að viðskipta- vinir Innnes fengju sínar vörur sem fyrst. Hann var vakinn og sofinn fyrir velferð fyrirtækisins og kom með margar góðar tillög- ur að úrbótum til þess að bæta enn frekar þjónustu við við- skiptavini og bar alla tíð hag fyr- irtækisins fyrir brjósti. Marteinn hætti hjá Innnes snemma á þessu ári þá 70 ára, voru þá veikindi hans sennilega farin að hafa áhrif á heilsu hans. Við starfslokin var honum sagt að vinnustaðurinn væri ávallt sem bakland hans sem hann og þáði. Eftir að Marteinn lét af störfum kom hann oft í kaffi og mat til að halda okkur við efni líð- andi stundar. Það er með mikilli eftirsjá sem við starfsfólk Innness kveðjum þennan góða dreng, Martein Pét- ursson. Hvíl í friði. Fyrir hönd Starfsfólks Inn- ness ehf. Magnús Óli Ólason. Jæja nú ertu farinn, Matti minn og eftir stendur mikill söknuður af ljúfum manni með skoðanir. Þú getur nú lagt skóflunni og kvatt skófluliðið eins og þú kall- aðir það og haldið á leið til betri heima og alls ekki gleyma húm- ornum. Þú sást alltaf spaugilegu hliðarnar og jákvæðu hlutina í öllu og eins og þú sagðir stundum við mig: „Við eigum að vera þakklát fyrir að fá að taka þátt í þessu ævintýri“ og tókst öllu með jafnaðargeði. Jafnvel þegar slæm veikindi sóttu að þér þá sagðirðu: „Ég labba héðan út.“ Það er ekki annað hægt en að dáðst að kjarkinum og æðru- leysinu sem þú sýndir í kölfarið á þínum síðustu dögum með okkur. Og vil ég þakka þér fyrir að vera alltaf til staðar, alltaf tilbú- inn að hjálpa sama hvað bjátaði á. Til dæmis man ég eftir einni Reykjavíkurferð þar sem við vin- irnir forum út á lífið og ekki vildi svo betur til en að partívagninn bilaði um miðja nótt í Reykjavík. Urðum við strandaglópar þar, standandi á skyrtunni eins og sannir Íslendingar í nóvember. Þá var leitað til þín í húsaskjól. þú taldir það nú ekki nógu gott og keyrðir okkur alla leiðina heim í Laugarásinn um miðja nótt. Á leiðinni sagði einn vinur- inn við mig: „Þú átt æðislegan frænda“ og ég játti því en því miður sagði ég þér það aldrei, Matti minn, og því miður segjum sjaldan nóg. Erfitt var nú að greiða til baka alla þá hjálp sem þú veittir og þegar það hafðist að launa greið- ann þá varstu svo innilega þakk- látur fyrir allt sem fyrir þig var gert. Eitt var alveg á hreinu að þú varst vinur vina þinna og vald- ir þá fáa en góða. Nú með söknuði í hjarta og tár á kinn kveð ég þig og hugga mig við það að þínum erfiðleikum skuli lokið. Nú enda ég mitt raus á smá vísu Ég æðislegan frænda ég átti, aldrei ég sagði hvað ég átti, Matti minn, ég átti Heyrir þú nú Matti, góðan og traustan vin ég átti og þakka ég allt sem ég átti, heimsins besta frænda ég átti. Elsku Matti, farinn nú þú ert til forfeðra þinna þú ert í ljósinu þú nú ert á vit nýrra heima þú ert Gamlir og nýir heima kunna þig að meta nú þarft þú að vega og meta hvorn heiminn þú, Matti, kannt að meta Kveðja frá frændanum í kjallaranum. Pétur Sigmarsson. Marteinn Mitchell Pétursson ✝ Helga Boga-dóttir var fædd á Seyðisfirði 9. mars 1932. Hún lést á Landspít- alanum 23. júlí 2014. Foreldrar henn- ar voru Þórunn Vilhjálmsdóttir, húsmóðir, f. 1902, d. 1990 og Bogi Friðriksson, f. 1897, d. 1968, verslunarmaður á Seyðisfirði. Bræður hennar eru Friðrik, f. 1933, Ari, f. 1930 og hálfbróðir Eiríkur Bjarnason, f. 1923, d. 2005. Eftirlifandi eig- inmaður Helgu er Alexander E. Litla prenti. En árið 1982 lauk hún sjúkraliðanámi og starfaði við það til ársins 2002. Vann meðal annars á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi og á Borgarspítalanum. Börn Helgu og Alexanders eru Þóra Björg, f. 1955, maki Ólafur Sturla Hafsteinsson, f. 1954, börn þeirra eru Alexander Ingvar, f. 1973, Íris, f. 1977, Ingvi Steinn, f. 1983 og Helgi Freyr, f. 1992. Ragnheiður Kristín, f. 1959, Björn Eðvarð, f. 1962, maki Ari Halldórsson, og Örn, f. 1966, maki Ragnhildur Þórhallsdóttir, börn þeirra eru Arnbjörg, f. 1992, Bergdís, f. 1995 og Hákon Elliði, f. 2000. Barnabarnabörnin eru átta. Útför Helgu fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 30. júlí 2014, og hefst athöfnin kl 13. Einbjörnsson, f. 1922. Foreldrar Al- exanders voru Ein- björn Þórðarson, bóndi, og Ragn- heiður G. Kristjáns- dóttir, húsmóðir, í Straumfjarðar- tungu á Snæfells- nesi. Helga og Al- exander giftust árið 1956 og bjuggu alla sína tíð í Kópa- vogi, fyrst við Álfhólsveg en byggðu síðan hús við Lyng- brekku 8 og fluttu í það árið 1959. Helga starfaði við ýmis störf, s.s. á saumastofum, við fiskvinnslu og í prentsmiðjunni Með gleði munum við minnast þín, elsku amma. Hláturs þíns, lífsgleði og stóra hjarta. Þú varst okkar fyrirmynd sem og mikill gleðigjafi. Hlátrasköllin þín munu hljóma innra með okk- ur og fá okkur til að brosa þegar við hugsum til þín. Þú tókst allt- af svo fallega á móti okkur og gerðir sérhverja heimsókn að stórveislu og varst svo ánægð þegar við gengum vel mett frá borði. Segja má að þú hafir ávallt verið á undan þinni samtíð með grænni hugsun sem við lærðum mikið af. Því allt sem þú eign- aðist var vel nýtt og ef allir hefðu þína dyggð myndi heim- urinn njóta góðs af. Þú varst ein- staklega handlagin og gerðir ófá lopalistaverkin handa okkur sem munu verma okkur á köldum dögum. Það var alltaf svo gaman að vera með þér og taka spil sem leiddu til þinna yndislegu hlát- urskasta sem voru svo smitandi. Með miklum söknuði og sorg kveðjum við þig. Hvíl í friði, elsku amma okkar. Alexander, Íris, Ingvi og Helgi. Minningarnar um Helgu Boga eru eins og blómin í garðinum hennar og Alla, mannsins henn- ar. Heimili hennar var mér eins og gróðurvin í eyðimörkinni á menntaskólaárum mínum í Kópavogi. Þar fékk ég ósjaldan að njóta gestrisni hennar, hjartahlýju og vinsemdar. Innilegur hlátur Helgu yfir kaffisopa og ómældum góðgerð- um hverfur mér aldrei úr minni. Ekki heldur ástúðin og um- hyggjan sem hún sýndi aldraðri ömmu minni í veikindum hennar þegar hún dvaldi á heimili þeirra Helgu og Alla. Umhyggja var Helgu í blóð borin. Helga barst ekki mikið á og sóttist ekki eftir hverfulum ver- aldarauði, mannvirðingum og hégóma. Saman bjuggu þau Alli til fallegt heimili og ræktuðu garðinn sinn af stakri alúð. Garðurinn endurspeglaði hjarta- lagið og varð sífellt fallegri með árunum. Þau gátu alltaf á sig blómum bætt. Hjónaband Helgu og Alla bar ríkulegan ávöxt. Þau sáðu kær- leiksfræjum sem skutu rótum og halda áfram að vaxa í stórum og blómlegum hópi afkomenda. Alexander, Þóru, Rögnu, Birni og Erni og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína og fyrir hönd föður míns og syst- kina minna fyrir austan. Bogi Þór Arason. Helga Bogadóttir HINSTA KVEÐJA Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guð blessi minningu þína. Bára. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Minningargreinar ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR RAGNHEIÐAR GÍSLADÓTTUR THORLACIUS frá Saurbæ á Rauðasandi. Hólmfríður Margrét Ingibergsdóttir, Pétur Ingibergsson, Guðfinna Hafsteinsdóttir, Sólveig Ingibergsdóttir, Hrefna Sumarlína Ingibergsdóttir, Rúnar Jónasson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR STEFÁNSSONAR, Hlíðarhúsum 3, áður Garðsenda 13. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir kærleiksríka umönnun og hlýtt viðmót. Jóna Kristbjörg Jónsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Helgi Hannesson, Guðjón Magnússon, Unnur V. Ingólfsdóttir, Stefán Magnússon, Lone Madsen, Sólveig Magnúsdóttir, Halldór Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, ÞÓRA STEINGRÍMSDÓTTIR, Hrafnistu í Reykjavík, áður Skildinganesi 35, Reykjavík, lést laugardaginn 26. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. ágúst kl. 13.00. Lára Margrét Sigurðardóttir, Magnús Pálsson, Guðrún Sigurðardóttir, Eggert Stefán Sverrisson, Katrín Sigurðardóttir, Hilmar Bergmann, Arndís Steingrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR SIGURÐARDÓTTIR, Birtingaholti, lést á Ljósheimum, Selfossi, fimmtudaginn 24. júlí. Hún verður jarðsungin frá Skálholtskirkju föstudaginn 1. ágúst kl. 14.00. Jarðsett verður í Hrepphólakirkju. Guðmundur Ingimarsson, Sigurður Guðmundsson, Elín Þórðardóttir, Jóhannes Guðmundsson, Inga Guðlaug Jónsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Skúli Guðmundsson, Lára Hildur Þórsdóttir, Sigríður María Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN H. ASPAR, Ránargötu 9, Akureyri, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 25. júlí, verður jarðsungin þriðjudaginn 5. ágúst kl. 13.30 í Akureyrarkirkju. Kristinn Halldór Jóhannsson, Margrét Alfreðsdóttir, Elín Björg Jóhannsdóttir, Sævar Sæmundsson, Ingunn Þóra Jóhannsdóttir, Skúli Eggert Sigurz, Björn Jóhannsson, Sigrún Harðardóttir, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Ragna Ósk Ragnarsdóttir, Ásta Hrönn Jóhannsdóttir, Gísli Agnar Bjarnason, Magnús Jóhannsson, Sólveig Jóhannsdóttir, Þröstur Vatnsdal Axelsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Okkar ástkæri HANNIBAL HELGASON frá Unaðsdal, Boðaþingi 22, Kópavogi, lést 25. júlí að Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 6. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarsjóð Oddfellow, stúku nr. 7, Þorkels Mána, I.O.O.F, Vonarstræti 10, Rnr. 528-14-401733, kt. 691053-2989. Sjöfn Helgadóttir, Hörður S. Hrafndal, Guðný Stefánsdóttir, Harpa Hannibalsdóttir, Helgi Hannibalsson, Hjördís Eggertsdóttir, Hannibal Hannibalsson, Hrefna Yngvadóttir, Heimir Hannibalsson, Hekla Hannibalsdóttir, Ólafur Már Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.