Morgunblaðið - 30.07.2014, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
Ingólfur Örn Ingólfsson er 23 ára og var að útskrifast úr BA-námi í lögfræði í Háskólanum Reykjavík og fer næsta haust ískiptinám við Kaupmannahafnarháskóla. Hann vinnur í sumar
hjá Útlendingastofnun.
Örn spilar knattspyrnu með Álftanesi í fjórðu deild. „Ég hef spil-
að fótbolta frá því að ég var þriggja eða fjögurra ára gamall. Þetta
er mitt helsta áhugamál. Sumarið hefur gengið vel hjá okkur á
Álftanesi en við erum á góðri leið með að fara í úrslitakeppnina, en
markmiðið er að komast upp í næstu deild.“
Þá segist Ingólfur ætla að taka því rólega fram að skiptináminu.
„Ég ætla bara að taka því rólega og njóta þess að vera á Íslandi
þennan mánuð sem ég á eftir og vera með mínum nánustu. Kannski
kíki ég í golf. Því miður hef ég ekki getað sinnt golfinu vel í sumar
vegna veðurs. Annars verð ég í vinnunni á afmælisdeginum en ég
held matarboð um kvöldið fyrir mína nánustu.“
Nýjasta áhugamál Ingólfs er að rúnta um landið. „Mér finnst gam-
an að rúnta um Ísland . Það er víst að verða eitthvað áhugamál hjá
mér. Til dæmis var ég í brúðkaupi á Snæfellsnesi um daginn og mér
fannst ótrúlega skemmtilegt að keyra Hvalfjörðinn. Ég á samt eftir
að fara einhverjar flottar fjallaleiðir,“ segir Ingólfur en hann segist
alls ekki vera neinn jeppakarl. isb@mbl.is
Ingólfur Örn Ingólfsson er 23 ára í dag
Föðurlegur Ingólfur með Emblu Björk Einarsdóttur, bróðurdóttur
sinni. Ingólfur spilar knattspyrnu með Álftanesi í fjórðu deildinni.
Finnst gaman að
rúnta um landið
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Þeir bræður Jón Grétar
og Kristinn Snær Guð-
jónssynir söfnuðu dóti og
seldu á tombólu fyrir ut-
an Krónuna í Vallarkór.
Þeir söfnuðu 6.200 kr. og
færðu Rauða krossinum
ágóðann.
Hlutavelta
T
ryggvi Guðmundsson
knattspyrnumaður
fæddist í Reykjavík
30.7. 1974 en ólst upp í
Vestmannaeyjum: „Ég
er auðvitað Eyjapeyi í húð og hár.
Þegar ég fæddist var fólk að byrja
að tínast út í Vestmannaeyjar eftir
gos og ég fór þangað með mömmu,
strax eftir fæðinguna þar sem við
bjuggum hjá afa og ömmu fyrst um
sinn.
Síðan fluttum við í Hlíðarnar í
Reykjavík, ég fór fimm ára í Ísaks-
skóla og kynntist þar Óla Stef.
handboltakappa sem varð góður
vinur minn á þessum árum. Síðan
fór ég í Seljaskóla eftir að við flutt-
um í Breiðholtið en fluttum svo aft-
ur til Eyja þegar ég var tíu ára.“
Tryggvi var í Barnaskóla Vest-
mannaeyja, stundaði nám við Fram-
haldsskólann í Eyjum og stundaði
síðar við Fjölbrautaskólann í Ár-
múla þar til hann fór í atvinnu-
mennsku í knattspyrnu.
Tryggvi Guðmundsson knattspyrnukempa – 40 ára
Morgunblaðið/hag
Magnaður knattspyrnumaður Tryggvi sækir stíft og skorar gegn Víkingum, sumarið 2011 þegar ÍBV vann þá 3:1.
Magnaður markakóngur
Morgunblaðið/hag
Íslandsmeistari með FH Tryggvi og Davíð Þór Viðarsson fagna titlinum
haustið 2009. Tryggvi varð fjórum sinnum Íslandsmeistari með FH.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Þú átt alltaf erindi til okkar
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver