Morgunblaðið - 30.07.2014, Side 18

Morgunblaðið - 30.07.2014, Side 18
SVIÐSLJÓS Skúli Halldórsson sh@mbl.is Lánasjóður íslenskra náms-manna gaf í gær út árs-skýrslu sína fyrir skóla-árið 2012 til 2013. Við lestur skýrslunnar kemur í ljós að námsmönnum sem þiggja lán hjá sjóðnum hefur fjölgað töluvert und- anfarin ár eða um 4,2% frá árinu 2009. Í lok árs 2013 var nafnvirði út- lána sjóðsins um 202 milljarðar króna, og hafa útlánin vaxið um 73% frá árinu 2008. Núvirði lánanna er þó nokkuð lægra en nafnvirði þeirra, en það er um 129 milljarðar króna, sem nemur 64% nafnvirðisins. Annars vegar er þetta sökum þess að öll lán verða ekki endur- greidd að fullu vegna þess að þau falla niður við andlát lánþega. Hins vegar eru kjör lánanna betri en fjár- mögnun sjóðsins, þar sem lántak- endum bjóðast betri vaxtakjör en sjóðurinn býr sjálfur við. Endurgreiðslutími lengist Hærri námslán þykja því al- mennt minnka líkur á fullum end- urheimtum. Ljóst er að afföll náms- lána aukast í réttu hlutfalli við upphæð lánanna og lengd endur- greiðslutímans. Er þannig áætlað að lán sem nemur 7,5 til 10 milljónum króna feli í sér eftirgjöf tæplega helmings fjárins. Af þeim sökum þykir það geig- vænleg þróun að mikil aukning hef- ur verið í lánum sem nema slíkum háum upphæðum. Þannig hefur fjöldi lána sem nema 7,5 milljónum krónum eða meira, þar sem endur- greiðsla er ekki enn hafin, rúmlega fimmfaldast á síðustu sex árum, og hefur fjárhæð þeirra vaxið úr 5 millj- örðum í rúma 28 milljarða. Endurgreiðslutími lána er einn- ig að lengjast og er hann nú að með- altali 20 ár fyrir greiðendur sem eru að hefja afborgun af sínum náms- lánum, en var tæp 14 ár árið 2009. Konur meirihluti lántakenda Þá hefur skýrslan að geyma at- hyglisverða sundurliðun á náms- lánum eftir kyni og aldri. Konur hafa lengi verið um 65% lántakenda, en á síðasta ári varð breyting á því og er hlutfall þeirra nú um 60%. Einnig er athyglisvert að alls eru 67 manns eldri en 50 ára sem skulda meira en 7,5 milljónir króna vegna námslána. Eftirstöðvar þeirra nema um 729 milljónum, eða rúmum 10 milljónum á hvern lántakanda. Þrír skulda 30 milljónir Af þeim námsmönnum sem enn eru í námi skulda fjögur prósent meira en 12,5 milljónir króna. Þar af eru þrír námsmenn sem skulda nú þegar meira en 30 milljónir króna hver um sig. Ef þessir námsmenn eiga að geta greitt námslán sín fyrir 67 ára aldur þyrftu árstekjur þeirra að vera rúmar 23 milljónir króna. Til samanburðar má nefna að námsmaður sem lýkur námi um þrí- tugt, með skuld sem nemur 15 millj- ónum króna, þyrfti að hafa tæpar 11 milljónir í árstekjur til að greiða nið- ur lánið fyrir 67 ára aldur. Í Danmörku fá námsmenn styrki frá ríkinu í bland við sjálf námslánin. Hafa sumir kallað eftir því að íslenska kerfið breytist í þá veru. Þegar tekið er tillit til afskrifta lána og þeirra lágu vaxtakjara sem íslenskum námsmönnum bjóðast, virðist þó sem opinber stuðningur nemi 47% af útlánafjárhæð sjóðsins. Skýrslan leiðir þannig í ljós að námslán íslenskra nemenda eru í raun að helmingi styrkir hins opinbera. Endurgreiðslutími námslána að lengjast Morgunblaðið/Kristinn Á flugi Ný ársskýrsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna leiðir í ljós að fjár- hæð lána fer vaxandi og greiðslutími þeirra hefur lengst töluvert síðustu árin. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nú er vinna viðfjárlaga- frumvarpið á loka- metrunum og útlit fyrir að staðið verði við áform um lækkun trygg- ingagjalds, eins og greint er frá í Morgunblaðinu í dag. Fjármálaráðherra gefur til kynna að svo kunni jafnvel að fara að vegna minna atvinnu- leysis verði tilefni til frekari lækkunar. Þetta er ánægju- legt og mikilvægt, enda áformin sem kynnt hafa verið afar hófstillt. Verði atvinnuleysi minna en áður var talið verður vissu- lega svigrúm til frekari lækk- unar, en samhengi hlutanna er líka í hina áttina þannig að með frekari lækkun eru líkur á minna atvinnuleysi. Trygg- ingagjaldið hækkar kostnað fyrirtækja við að hafa fólk í vinnu og þar með dregur það úr mannaráðningum og ýtir að öðru óbreyttu undir at- vinnuleysi. Þetta þekkja allir sem reka fyrir- tæki og þurfa að velta fyrir sér kostnaði við að ráða nýja starfs- menn. Og þeir sem muna skatta- hækkanir vinstri stjórnar- innar og þær vangaveltur inn- an fyrirtækja sem þeim fylgdu og leiddu iðulega til samdráttar í mannahaldi skilja þetta samhengi afar vel. Atvinnulífið og heimilin í landinu þurfa á því að halda að áfram verði undið ofan af skattahækkunum fyrri ríkis- stjórnar og að þau óþurftar- verk verði afmáð á þessu kjörtímabili. Formaður fjár- laganefndar, sem fengið hef- ur kynningu á fjárlaga- frumvarpinu, segir ýmislegt þar sem eigi eftir að „koma skemmtilega á óvart“. Von- andi verða þeir óvæntu gleði- gjafar ekki aðeins í formi nauðsynlegs aðhalds heldur einnig skattalækkana. Frekari lækkun tryggingagjalds og fleiri skatta er þjóðþrifamál} Svigrúm til frekari lækkunar Bandaríkineiga léttmeð að ákveða efnahags- legar refsiaðgerð- ir gegn Rússlandi. Viðskipti þessara mestu kjarnorkuvelda ver- aldarinnar eru tiltölulega lít- il. Öðru máli gegnir um lönd Evrópusambandsins. Við- skiptin eru mikil en snerta einstök lönd sambandsins mismikið. Það flækir málið enn. Evrópuríkin verða að taka hugsanleg viðbrögð Rússa með í sinn reikning. Bandaríkin eru einnig að mestu laus við þann þáttinn. Rússneskur almenningur styður enn afstöðu og athafn- ir Pútíns forseta í Úkraínu og telur Vesturlönd koma ósæmilega fram við Rússa. Innlimun á Krímskaga þótti flestum Rússum sjálfsögð, ekki síst eftir að „löglega kjörnum“ forseta Úkraínu var bolað úr embætti með ólögmætum hætti að þeirra mati. Því mun Rússum þykja efnahagsþvinganirnar vera óeðlileg og fjandsamleg að- gerð gegn Rússlandi, sem eðlilegt sé að forseti þeirra bregðist við með þeim kost- um sem hann hefur. Á Vesturlöndum er hins vegar bent á að þegar efna- hagsþvinganirnar byrji að bíta muni þær um leið bíta marga stuðningsmenn Pútíns af honum. Og þótt þekkt sé og rétt að efnahagsþving- anir séu eins og myllurnar frægu, þær mali hægt, þá eigi þær það líka sameiginlegt að á endanum mali þær vel. Versnandi kjör Rússa vegna þeirra muni æsa til andstöðu við Pútín. Vissu- lega muni þvinganirnar í upp- hafi hitta fáa Rússa fyrir, en þessir fáu eigi mikið undir sér í Kreml og þeir verði illa úti. Forsetinn geti því furðu- fljótt misst mikilvægan stuðning úr hópi „klíku- bræðra“. Eftirtektarvert er að markmiðin sem fylgja efna- hagsþvingununum eru óljós. Sagt er að þær séu ákveðnar til að þvinga Pútín til að breyta um stefnu í málefnum Úkraínu. Ekki er til að mynda líklegt að uppgjöf Rússa á Krímskaga sé for- senda fyrir því að fallið verði frá þeim. Margir áhrifamiklir þýskir stjórnmálamenn hafa raunar lýst yfir ákveðnum skilningi á því að Rússar hafa sameinað hann Rússlandi á ný. Margir leiðtogar Evrópu- ríkjanna voru bersýnilega ekki áfjáðir að ganga mikið lengra í efnahagsþvingunum. En árásin á farþegaflugvélina sópaði öllum öðrum kostum út af borðinu. Evrópuríkin urðu nú að láta undan þrýstingi Bandaríkjamanna} Tvíbent vopn Þ egar ég var yngri varði ég oft drjúgum tíma í að velta fyrir mér hvað „ég“ eða það sem ég þekkti sem „mig“ var eiginlega. Ég held að ungu fólki verði að fyrirgefa slíka sjálfhverfu – að reyna að átta sig á sjálf- um sér er öðrum þræði birtingarmynd tilraun- ar til að átta sig á heiminum í heild sinni. Helsta upplifun mín af sjálfum mér var rödd í höfði mínu sem virtist eiga í látlausu samtali við hljóðlátan viðmælanda. Ætli einhver hérna inni eigi tyggjó? Á ég að reyna stungusendingu eða gefa hann upp kantinn? Ætli ég fái eða fái ekki samviskubit ef ég fæ mér Doritos í kvöld? Hvort var ég röddin í höfði mínu eða hinn þögli hlustandi hennar? Óvissan sem þessi vanga- velta framkallaði olli mér miklum áhyggjum. Það sem gerði illt verra var að þessar hugleið- ingar um mig sem einhliða samtal í höfði mínu fóru auð- vitað -- nema hvað -- fram sem einhliða samtal í höfði mínu, þar sem hugsanir mínar rembdust við að komast að rökréttri niðurstöðu um eigið eðli, spurðu spurninga sem enginn svaraði. Þetta gerði vandamálið ennþá stærra í mínum augum. Hvernig er hægt að færast nær því að skilja heiminn, veru sína og hlutverk í honum ef maður skilur ekki einu sinni hvað maður sjálfur er í grunninn? Ég gerði þau mistök að halda að vandamál hugans væri mögulegt að leysa í huganum sjálfum. Eins og óður maður í nóttinni átti hugur minn í stjórnlausu samtali við sjálfan sig, nema bara ekki í heyranda hljóði. Það var ekki fyrr en löngu seinna sem ég gerði mér grein fyrir því að það er ekkert að skilja, eng- in rökrétt niðurstaða til að komast að. Sann- leikurinn er nú þegar innra með hverjum manni – hann verður aðeins skynjaður en ekki skilinn með rökhugsun. Eins og tímann skap- ar mannshugurinn tálsýnina um sjálfið, egóið – hann þrífst á því að reyna að skilgreina sig út frá tilbúnum vandamálum, liðinni tíð, vænt- ingum til hins ókomna. Einn daginn verð ég þarna. Öðrum finnst ég vera svona. Þegar ég lýk við þessa prófgráðu verð ég þetta um ald- ur og ævi. Eftir kvöldmat fer ég niður í eldhús og gerist skáld. Þessar hugsanir leiða af sér hræðslu og óöryggi, allt það sem vandamál hugans þurfa til að viðhalda sjálfum sér. En dragi maður andann djúpt, beini skynjun sinni inn á við, hlusti án þess að reyna að greina þá skynjun með orðum eða hugsun, blasir við að öll þau óteljandi hlutverk sem egóið skapar sjálfu sér eru byggð á sandi. Það er ekkert á bakvið þau. Hugurinn er eins og útvarp sem skiptir handahófskennt milli stöðva. Líklega á ég við að ályktun mín hafi verið að ég sé ekki hugur minn, langt því frá, og líf mitt ekki ein rökrétt og samræmd frásögn eins og bíómynd heldur safn augna- blika sem ég get notið ef ég er meðvitaður í þeim, ef mér tekst að frelsa mig undan oki eigin hugsana. Sannleik- urinn með Stóru Essi um mannlega tilveru verður ekki skilinn með orðum, hugsun og tungumáli. Hann verður skynjaður í einföldum upplifunum á borð við djúpan and- ardrátt þar sem niður hafsins endurómar. haa@mbl.is Halldór A. Ásgeirsson Pistill Óðs manns hugur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Jónas Fr. Jónsson, stjórnar- formaður LÍN, segir sjóðinn bú- ast við auknum afföllum og hann muni líklega þurfa að reiða sig á frekara fjármagn í framtíðinni. „Við höfum séð fjölgun náms- manna, en það sem kannski meira máli skiptir er að þeir virðast vera lengur í námi. Heildarfjárhæð lánanna er að hækka og endurgreiðslutíminn hefur lengst um næstum helm- ing frá 2009, úr 14 í 20 ár,“ seg- ir Jónas. „Frá og með 2009 hefur lánasjóðurinn veitt lán án sjálfsskuldar- ábyrgðar og nú eru vís- bendingar um hærra vanskilahlutfall hjá þeim sem tóku slík lán. Við óttumst því að vanskil muni aukast eftir því sem líða fer að endurgreiðslum þessara lána.“ Útlit er fyrir aukin vanskil LÁNASJÓÐURINN Jónas Fr. Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.