Morgunblaðið - 30.07.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa nýja
lágkolvetnabrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Á
rlega koma hingað til
lands um 1.400 sjálf-
boðaliðar á vegum sjálf-
boðaliðasamtakanna
SEEDS og taka sjálf-
boðaliðarnir þátt í yfir 150 verkefnum
í ár. Samtökin, sem stofnuð voru árið
2005, senda einnig 60-70 Íslendinga
árlega til þátttöku í sjálfboðaliðaverk-
efnum í 55-60 löndum um allan heim.
„Marga sjálfboðaliða okkar lang-
aði til að heimsækja Ísland og kynn-
ast landinu frá öðru sjónarhorni, vera
færir um að eiga samskipti við heima-
menn og á sama tíma helga hluta af
tíma sínum í að styðja við ákveðin
verkefni. Það sem sjálfboðaliðarnir fá
í skiptum er svo margt. Á meðan þeir
eiga samskipti við Íslendinga læra
sjálfboðaliðarnir um menninguna og
fá tækifæri til að þróa með sér vin-
skap. Auk þess öðlast þeir færni í að
vinna í krefjandi og framandi um-
hverfi,“ segir Oscar Uscategui, fram-
kvæmdastjóri SEEDS. Hann segir
flesta sjálfboðaliðana vera há-
skólanema eða ungt fólk á vinnu-
markaði. Sjálfboðaliðarnir koma í
sumarfríum sínum til Íslands, kynn-
ast landi og þjóð og finna að þeir láti
gott af sér leiða á meðan á dvöl þeirra
stendur. „Það verður öðruvísi upp-
lifun hjá sjálfboðaliðunum en hjá öðr-
um ferðamönnum,“ segir Oscar.
Sex þúsund á níu árum
Samtökin skipuleggja vinnubúð-
ir um allt land í samstarfi við ein-
staklinga, félagasamtök, stofnanir og
sveitarfélög. Á þeim níu árum sem
liðin eru frá stofnun samtakanna hafa
SEEDS ásamt samstarfsaðilum
þeirra staðið fyrir hundruðum vinnu-
búða og tekið á móti fleiri en sex þús-
und sjálfboðaliðum frá um 70 löndum.
Oscar segir SEEDS vera ein stærstu
samtök sinnar tegundar í heiminum,
það er að segja af þeim samtökum
sem skipuleggja sjálfboðaliðaverk-
efni með hópa.
„Sjálfboðaliðahóparnir saman-
standa yfirleitt af átta til fimmtán
sjálfboðaliðum og reynum við að hafa
ekki fleiri en tvo frá sama landi,“ seg-
ir Oscar. Hann bætir við að einnig sé
reynt að passa upp á kynjahlutföllin
en konur séu í meirihluta hér á landi
líkt og almennt gengur og gerist í
sjálfboðaliðastarfi á heimsvísu.
Hann segir flest verkefni á veg-
um SEEDS vera fyrir þá ein-
staklinga sem náð hafa átján ára
aldri, en þó með nokkrum und-
antekningum.
„Við bjóðum stundum upp á
sjálfboðaliðaverkefni fyrir unglinga.
Þá erum við einnig með verkefni fyrir
þrjátíu ára og eldri og einnig með
verkefni fyrir sextíu ára og eldri.“
Náttúruvernd og hátíðarhöld
„Flest þeirra verkefna sem sjálf-
boðaliðarnir á okkar vegum vinna að
snúa að náttúruvernd eða menning-
arvarðveislu. Sjálfboðaliðarnir hafa
einnig unnið verkefni í tengslum við
ýmsar hátíðir,“ segir Oscar Usca-
tegui, hjá samtökunum Seeds.
Mörg þeirra verkefna sem sjálf-
boðaliðar á vegum SEEDS hafa tekið
þátt í hafa falist í fegrun umhverfisins
með hreinsun og gróðursetningu,
önnur í bættu aðgengi fyrir ferða-
menn með lagningu og viðhaldi
göngustíga, svo dæmi séu tekin.
Einnig hafa sjálfboðaliðar SEEDS
aðstoðað við undirbúning og fram-
kvæmd ýmissa hátíða og menningar-
viðburða og árið í ár var engin und-
antekning þar á og tóku sjálfboða-
Upplifun á Íslandi
sem ekki fæst keypt
1.400 sjálfboðaliðar koma hingað til lands í ár í gegnum íslensku sjálfboðaliða-
samtökin SEEDS. Sjálfboðaliðarnir taka þátt í 150 verkefnum hérlendis sem geta
verið af ýmsum toga. Meðal þeirra verkefna sem sjálfboðaliðarnir hafa tekið þátt í
á undanförnum árum er fegrun umhverfisins með hreinsun og gróðursetningu og
bætt aðgengi fyrir ferðamenn með lagningu og viðhaldi göngustíga.
Ljósmynd/SEEDS
Kaffipása Það var við tjörnina úr ævintýrinu Dimmalimm í Bíldudal sem
sjálfboðaliðarnir stilltu sér upp fyrir myndatöku, allir léttir í lund.
Það er tiltölulega einfalt að klúðra
útilegunni, t.d. með röngum úti-
legubúnaði. En að sama skapi getur
verið mjög einfalt að halda öruggur
af stað að heiman í pottþétta útilegu.
Það er alveg ljóst eftir að hafa rennt í
gegnum tíu atriða lista í útivistar-
hluta vefsins How Stuff Works að
gátlistinn fyrir ferðina þarf ekki að
vera flókinn. Nokkur grundvallar-
atriði eru ítrekuð þar en það eru ein-
mitt grundvallaratriðin sem flaskað
er á í stressinu við að koma sér af
stað í útileguna. Margir kannast við
að hafa sofið í tjaldi að sumarlagi og
vaknað í hitakófi í svefnpoka sem
gerður er fyrir jöklaferðir og þolir
þrjátíu stiga frost. Þá er nú betra að
vera með svefnpoka sem hentar bet-
ur að sumarlagi. Það eru ráð á borð
við þetta sem má finna á vefsíðunni.
Einfaldir hlutir eiga það nefnilega til
að gleymast á ögurstundu.
Vefsíðan www.adventure.howstuffworks.com
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Útilega Til að vakna úthvíldur í tjaldi er best að hvorki sé of hlýtt né kalt.
Útilega sem getur slegið í gegn
Annað kvöld, föstudaginn 31. júlí,
klukkan 22 hefst „blúsuð“ upphitun
fyrir verslunarmannahelgina á Café
Rosenberg. Blúsbandið Skúli
mennski kemur fram ásamt Þungri
byrði.
Söngur og gítarleikur er í höndum
Skúla mennska, Hjörtur Stephensen
leikur á gítar, Kristinn Gauti Ein-
arsson annast trommuleik, Valdimar
Olgeirsson sér um bassaleik og Þor-
leifur Gaukur spilar á munnhörpu.
Selt er inn á þessa blúsupphitun
verslunarmannahelgarinnar við inn-
ganginn á Café Rosenberg en tónleik-
arnir standa til klukkan 01.
Endilega …
… hlustið á
Skúla mennska
Ljósmynd/Skúli Þórðarson
Blús Upphitunin hefst annað kvöld.
Það er afleitt að taka upp útilegu-
græjurnar á góðri stundu, til dæmis
um verslunarmannahelgina, og kom-
ast þá að því að svefnpokinn lyktar
eins og fuglabjarg að vori og tjaldið
er orðið loðið og ásýndar eins og
óþekkt tegund í dýraríkinu. Auðveld-
lega má koma í veg fyrir slík ósköp
með því að huga vel að útilegubúnaði
og fylgja nokkrum einföldum ráðum:
Aldrei setja rakan svefnpoka í
geymslupoka. Netapoki í vel loft-
ræstu rými geymir hann vel.
Það má skella flestum svefnpokum
í þvottavél og er ekki úr vegi að
þvo hann fyrir helgina.
Sofðu í léttum fatnaði til að lík-
amsfita komist ekki í snertingu við
pokann.
Flóknara þarf það ekki að vera!
Er svefnpokinn tilbúinn fyrir útileguna?
Umhirðan skiptir máli
Morgunblaðið/Golli
Hreint Að koma sér fyrir í illa lyktandi
svefnpoka er alveg ónauðsynlegt.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.