Morgunblaðið - 30.07.2014, Síða 9
Skapa
ndi,
skraut
legt,
skemm
tilegt o
g
endala
usir
mögul
eikar!
Loom
Föndurarmböndin
Heitasta æðið í heiminum í dag!
NÚ Á ÍSLANDI
www.danco.is
Heildsöludreifing
Flottir litir
Ilmandi
Glimmmer
Sjálflýsandi
Doppótt
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
36% þeirra sem beita drengi
kynferðislegu ofbeldi
eru ókunnugir karlar.
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
Vertu
vinurá
facebook
Lagersölu lýkur á föstudag
Nú 20% viðbótarafsláttur
Símon Hallsson, lög-
giltur endurskoðandi
og fyrrverandi borgar-
endurskoðandi, and-
aðist á heimili sínu að
Vogalandi 8 þann 28.
júlí sl., 68 ára að aldri.
Hann var fæddur 2. júlí
1946, sonur hjónanna
Halls Símonarsonar
blaðamanns og Stef-
aníu Runólfsdóttur
húsfreyju.
Símon nam endur-
skoðun við Háskóla Ís-
lands og varð löggiltur
endurskoðandi árið
1975. Hann starfaði á endurskoð-
unarskrifstofu Þorgeirs Sigurðs-
sonar í Reykjavík árin 1966-1975 og
rak eigin endurskoðunarskrifstofu
frá 1975 til 1983. Símon var stofn-
andi og meðeigandi að Íslenskri end-
urskoðun hf. 1983-1992 og hafði sam-
starf við Löggilta endurskoðun hf.
1992-1993. Símon var kjörinn borg-
arendurskoðandi árið 1994 og
gegndi því embætti til starfsloka
árið 2009.
Símon sat í stjórn
Félags löggiltra endur-
skoðenda (FLE) árin
1977-1979 og var gjald-
keri 1978-1979. Hann
var í ritnefnd FLE
1981-1983. Símon var í
stjórn samtaka endur-
skoðenda sveitarfélaga
á Norðurlöndunum og
sinnti auk þess ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir
samtök endurskoð-
enda sveitarfélaga
(Organization of Local
Government Auditing)
á árunum 1994-2003.
Símon gerðist söngmaður með
Karlakór Reykjavíkur árið 1968 og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyr-
ir kórinn auk þess að vera endur-
skoðandi reikninga hans um árabil.
Hann var sæmdur silfurmerki og
síðar gullmerki Karlakórs Reykja-
víkur árið 2001.
Eftirlifandi eiginkona Símonar er
Anna Eyjólfsdóttir myndlistar-
maður. Þau eignuðust þrjú börn,
Eyjólf, Hall og Guðrúnu.
Andlát
Símon Hallsson
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Samkvæmt hitamælingum Veður-
stofunnar fór hitinn tíu sinnum yf-
ir 20° á Húsavík í júlímánuði. Mikil
veðurblíða hefur leikið um Norð-
ur- og Austurland í júlí. Meðalhit-
inn í Húsavík hefur verið 15,4°
samkvæmt mælingum kl. 15 á dag-
inn í júlímánuði. Í Grímsey er heit-
asti júlímánuður frá upphafi en
meðalhitinn er 11,2° gráður. Mæl-
ingar hófust í Grímsey árið 1874.
„Það hefur verið mjög heitt
hérna í júlímánuði. Svo heitt hefur
verið að ég og konan höfum spáð í
að kaupa kælikerfi í húsið. Á
Húsavík hefur verið sannkölluð
Miðjarðarhafsstemning. Bærinn
hefur verið fullur af Íslendingum
sem eyða sumar-
fríinu í íslensku
sólinni en er-
lendu ferða-
mennirnir virð-
ast ekki elta
sólina neitt sér-
staklega. Þá hef-
ur verið mjög
bjart yfir bænum
í sólinni. Veit-
ingastaðir hafa
dregið stóla og borð út og mikið
mannlíf hefur verið á götum bæj-
arins. Síðan er fólk alltaf jákvæð-
ara í sólinni. Kunningjar mínir í
Reykjavík hafa allavega verið
frekar súrir í gegnum símann,“
segir Friðrik Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar í Norðurþingi, kím-
inn.
Þá var Friðrik spurður hvernig
Húsvíkingar takist á við rign-
inguna eftir hitabylgju júl-
ímánaðar.
„Ekki hefur þurft að kalla út
heimavarnarlið eða bjóða fólki upp
á áfallahjálp vegna rigningarinnar
ennþá. Við tökum rigningunni
bara með stóískri ró hérna fyrir
norðan.“
Regnhlífar í stað sólhlífa
Sólin mun lítið láta fyrir sér fara
á Norður- og Austurlandi næstu
daga. Norðanátt er komin til
landsins og þá kólnar loftið og
Norður- og Austurland verður
kaldara. Má þá gera ráð fyrir að
sólhlífum verði skipt út fyrir regn-
hlífar næstu daga á Norður- og
Austurlandi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sólríkt Veðurblíða hefur verið á Húsavík í júlímánuði. Meðalhitastig á Húsavík síðdegis í júlí var 15,4° gráður.
Hitinn fór yfir 20° tíu
sinnum í júlí á Húsavík
Heitasti júlí í Grímsey frá upphafi mælinga árið 1874
Friðrik
Sigurðsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við höldum þeim möguleika opnum
að það þurfi að fara í dómsmál gegn
ríkinu en teljum eðlilegt að þessi tvö
stjórnsýslustig ræði saman áður en
þau mæta hvort öðru í dómsal,“ segir
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum. Bæjarstjórnin ákvað á
fundi sínum í gær að gera ríkinu
skriflega grein fyrir því tjóni sem
sveitarfélagið hefur orðið fyrir
vegna rangrar úthlutunar makríl-
kvóta og óska eftir svörum um það
hvernig staðið verði að leiðréttingu á
reglunum.
Umboðsmaður Alþingis telur að
sú ákvörðun stjórnvalda að skipta
ekki makrílkvótanum eftir áunninni
aflahlutdeild, fyrir árin 2011, 2012 og
2013, hafi ekki verið í samræmi við
lög. Útgerðarfélög í Vestmannaeyj-
um óskuðu eftir álitinu en þau telja
sig hafa orðið fyrir miklum búsifjum
af þessum sökum.
Í greinargerð sem bæjarstjóri
lagði fram á fundinum í gær kemur
fram að þrjú stærstu útgerðarfyrir-
tækin í Eyjum hafi tapað tæplega 28
þúsund tonnum af makríl og er áætl-
að að verðmæti afurðanna nemi 4,5
til 5 milljörðum króna. Þar af megi
áætla að laun sjómanna hafi verið
skert um 700 milljónir og laun starfs-
manna í landi um 400 milljónir kr.
Elliði bæjarstjóri segir að Vest-
mannaeyjabær hafi einnig orðið fyr-
ir um 200 milljóna króna beinu fjár-
hagslegu tjóni af þessum ólögmætu
aðgerðum íslenska ríkisins. Þar af
eru tapaðar tekjur hafnarinnar um
40 milljónir og tapað útsvar um 160
milljónir.
„Það er verulega þungt í okkur, að
ekki skuli hafa verið hlustað betur á
varnaðarorð Vestmannaeyjabæjar
þegar reglugerðin var sett. Þetta eru
gríðarlega miklir hagsmunir og lög-
brot ráðherra ekki léttvægt.“
Bærinn tapaði
200 milljónum
Vestmannaeyjabær krefst bóta vegna
rangrar úthlutunar á makrílkvóta
Makríll Eyjamenn telja sig ekki
hafa fengið það sem þeim ber.