Morgunblaðið - 30.07.2014, Page 15
húsanna munu hafa aðgang að bíla-
kjallaranum en þar verða líka hjóla-
og sorpgeymslur.
Baldur telur líklegt að nýju íbúð-
irnar 23 í fyrsta áfanga fari á mark-
að haustið 2015.
Áformað er að hefja annan
áfanga uppbyggingarinnar á næsta
ári, í beinu framhaldi af þeim fyrsta.
Hluti hans er bygging nýs húss á
Laugavegi 41, en margir kannast
eflaust við verslunina Vínberið sem
er á jarðhæð Laugavegs 43. Þá
verður annað hús byggt á horni
Laugavegs og Frakkastígs, þar sem
er nú opið rými. Húsin verða aðlög-
uð útliti eldri húsanna við Lauga-
veg.
„Á horni Laugavegs og Frakka-
stígs er autt rými í dag. Þar stóð áð-
ur gamalt hús sem var fjarlægt fyr-
ir áratugum. Samkvæmt núgildandi
skipulagi er gert ráð fyrir nýbygg-
ingu á þessu horni. Í þessu húsi og
á Laugavegi 41 verður verslunar-
húsnæði á jarðhæð. Frá Frakkastíg
verður skilyrt aðkoma inn í bak-
garðinn sem allar íbúðirnar hafa að-
gang að. Bakgarðurinn er aðeins
ætlaður íbúum og gegnir jafnframt
hlutverki aðkomu að stigahúsum
íbúðarhlutanna.
Þessi aðkoma er jafnframt
öryggisaðkoma fyrir Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins komi til
bruna,“ segir Baldur.
Þriðji og síðasti áfangi verkefn-
isins hefst að óbreyttu árið 2016.
Hann felur í sér niðurrif húseign-
arinnar að Frakkastíg 8 og nýbygg-
ingu frá horninu við Hverfisgötu
upp að horninu við Laugaveg. Sú
bygging er gulmáluð og hýsir m.a.
krána Ob-la-di Ob-la-da og Karaoke
Sportbar og aðra starfsemi.
„Húsið er byggt í fjórum áföng-
um á árabilinu 1925-40 og lengst af
nýtt sem iðnaðarhúsnæði, oft nefnt
„Ullarhúsið“. Samkvæmt gildandi
skipulagi er leyfilegt að byggja ofan
á húsið og eða rífa og byggja nýtt.
Við nánari skoðun reyndist ekki
raunhæft að nýta húsið. Burðar-
virkið myndi ekki þola byggingu of-
an á það, auk þess sem það er
tæknilega flókið að breyta því í
íbúðarhúsnæði,“ segir Baldur.
„Það verður því óhjákvæmilegt
að rífa húsið. Við hönnunina verður
útlit nýbyggingarinnar aðlagað út-
liti gamla hússins. Þarna verða
flestar smærri íbúðanna. Á horn-
unum ofan og neðan við, við
Hverfisgötu og Laugaveg, verða
samtengd hús með öðru yfirbragði“
Frakkastígur endurgerður
„Reykjavíkurborg hyggst endur-
gera Frakkastíginn, líkt og gert
hefur verið við götur í nágrenninu,
nú síðast Hverfisgötuna. Sú fram-
kvæmd er á dagskrá borgarinnar á
komandi ári skv. fréttum. Við mun-
um leita eftir samstarfi við borgina
vegna þessara framkvæmda í
tengslum við frágang bygginga við
Frakkastíginn og taka tillit til
þeirra breytinga,“ segir Baldur.
„Það er lögð sérstök áhersla á að
hafa rúmgóðar hjólageymslur og að
aðgengi að byggingunum sé gott
fyrir hjólandi og gangandi,“ segir
Baldur.
Teikning/Út Inni arkitektar
Nýjar íbúðir í miðbænum Alls verða 65-66 nýjar íbúðir á reitnum. Átta
íbúðir verða í húsi á miðju lóðarinnar. Reist verður nýtt verslunarhúsnæði.
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Hljóðlát og endingargóð
jeppadekk sem koma
þér örugglega hvert
á land sem er.
Haft var eftir Ingibjörgu Þórðardóttur, formanni Fé-
lags fasteignasala, í Morgunblaðinu í gær að útleiga
fjölda íbúða í miðborg Reykjavíkur til ferðamanna
hefði leitt til hækkunar á leigu- og fasteignaverði á
svæðinu. Sú þróun muni smitast yfir í nálæg hverfi.
Eins og fjallað hefur verið um í fréttaskýringum í
Morgunblaðinu á síðustu dögum má áætla að 1.500 til
2.000 íbúðir í Reykjavík séu nú leigðar út í
skammtímaleigu til ferðamanna.
Eins og rakið er í samtali við Hjörleif Guttormsson
hér fyrir neðan getur slík útleiga verið umdeild.
Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingar og formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs, baðst undan viðtali vegna þessa máls að
sinni. Þá svaraði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ekki skilaboðum.
Tjáir sig ekki að sinni
FORMAÐUR UMHVERFIS- OG SKIPULAGSRÁÐS
Hjálmar Sveinsson
um 3 milljónir í lögfræðikostnað til
að fá öll tilskilin leyfi fyrir leigunni.
Hjörleifur telur að þarna sé á
ferð atvinnurekstur sem eigi ekki
heima í fjölbýlishúsi.
Ónæði og öryggisleysi
„Íbúar hér kvarta undan ónæði
og öryggisleysi vegna straums
ferðamanna og aðgengi óviðkom-
andi að stigagöngum og annarri
sameign. Hljóðvist er hér víða ófull-
nægjandi og fylgir þessari umferð
oft mikið ónæði. Það þarf að endur-
skoða bæði skipulagslögin og sér-
staklega lögin um fjöleignarhús
með tilliti til þeirrar þróunar sem
hér er í gangi. Lög þessi eru nú 20
ára gömul og sett áður en sú bylgja
skammtímaútleigu hófst sem nú er
staðreynd. Slík útleiga brýtur niður
fjöleignarhúsakerfið. Það er úti-
lokað að halda utan um húsreglur
þegar íbúðum er breytt í atvinnu-
húsnæði, með tilheyrandi umgangi
ferðamanna. Stjórnarmenn í hús-
félagi gefast fyrr en varir upp við
að sinna slíkum skyldum. Hér er
um að ræða fólk sem er að koma og
fara á öllum tímum sólarhrings.
Þessu fylgir líka öryggisleysi,“ seg-
ir Hjörleifur sem skorar á yfirvöld
að sporna við ofangreindri þróun.
„Skipulagslöggjöfin, m.a. fyrir-
mæli um íbúabyggð, heldur ekki
gagnvart þeirri þróun sem hér er í
gangi. Mikil þörf er á heildarend-
urskoðun skipulags- og fjöleignar-
húsalaga vilji menn bregðast við
því stjórnleysi sem hér er í gangi.“
Það var um miðjan júlí 2008 sem Morgunblaðið sagði frá úr-
slitum samkeppni um hönnun nýrra höfuðstöðva Lista-
háskóla Íslands á horni Laugavegs og Frakkastígs. Fram
kom í fréttinni, sem birtist 18. júlí, að +Arkitektar, með Pál
Hjaltason í forsvari, hefðu borið sigur úr býtum og að vonir
stæðu til að skólinn hæfi starfsemi í húsinu haustið 2011.
Haft var eftir Hjálmari H. Ragnarssyni, þáverandi rektor
Listaháskóla Íslands, í Morgunblaðinu að nýtt hús yrði
„meginbygging í íslenskri menningu“. „Þetta er listverk-
smiðja í miðborginni sem á eftir að hafa gífurleg áhrif á Ís-
landi,“ sagði Hjálmar. Meðal samstarfsaðila Listaháskólans
í verkefninu voru Samson Properties, dótturfélag Novator
Properties, sem var í eigu Björgólfsfeðga. Eins og sjá má á
myndunum hér fyrir ofan teiknuðu arkitektarnir stór hús
og hefðu framkvæmdir kostað milljarða króna á núvirði.
Verkefnið varð aldrei að veruleika og hefur Frakkastígs-
reiturinn nú verið hannaður upp á nýtt með aðra notkun í
huga, eins og teikningar hér fyrir neðan bera með sér.
Teikning/+Arkitektar Teikning/Gunnar S. Óskars./Ludwig Rongen/Stefan W. Teikning/Batteríið
Hús Listaháskólans átti að rísa á reitnum
Stórbrotin áform um miðstöð listkennslu runnu út í sandinn við hrunið Arkitektar teiknuðu stórhýsi
Teikning/PK Arkitektar
Teikning/Út Inni arkitektar
Hönnun í vinnslu Svona mun Frakkastígur líta út eftir niðurrif húss nr. 8.