Morgunblaðið - 30.07.2014, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Fjárfestingafélagið Eyrir Invest tap-
aði um 19,2 milljónum evra, jafnvirði
2,97 milljarða króna, á síðasta ári og
jókst tap félagsins um tæplega fimm
milljónir evra frá fyrra ári. Tap Eyris
á síðustu tveimur árum nemur því
samtals ríflega fimm milljörðum
króna. Þetta kemur fram í uppgjöri
Eyris fyrir árið 2013.
Þrátt fyrir tapreksturinn er eigin-
fjárhlutfall félagsins 51% og nemur
eigið fé 168,9 milljónum evra.
Kjölfestueignir Eyris eru 29,3%
hlutur í Marel og 17% eignarhlutur í
hollensku fyrirtækjunum Fokker
Technologies og Stork Technical
Services. Að auki fjárfestir Eyrir í
sprotafyrirtækjum og styður þá til
vaxtar í gegnum fjárfestingafélagið
Eyrir sprotar.
Tap Eyris á síðasta ári má einkum
rekja til þess að virðismat félagsins
London Acquisition Luxco, eignar-
haldsfélag sem heldur utan um hluti
Eyris í Fokker og Stork, var fært nið-
ur um 19,1 milljón evra. Var það var-
úðarráðstöfun þar sem afkoma Stork
á fyrstu sex mánuðum ársins var und-
ir áætlunum. Rekstur Fokker gekk
hins vegar betur á árinu 2013. Hagn-
aður nam 10,9 milljónum evra og
jókst um 6%. Tekjur stóðu aftur á
móti í stað.
Verðbréfaeignir Eyris námu 327
milljónum evra í árslok 2013 og lækk-
uðu um 38 milljónir evra á síðasta ári.
Á árinu seldi Eyrir 3,8% hlut í Marel.
Eignarhlutur Eyris í Marel er verð-
mætasta eign félagsins – bókfærð á
180 milljónir evra í lok síðasta árs – en
hlutabréf fyrirtækisins hafa lækkað
mikið í verði síðustu misseri. Það sem
af er þessu ári hefur gengi bréfa Mar-
el lækkað um ríflega 20%.
Stærstu hluthafar Eyris eru
Landsbankinn (23,2%), Þórður
Magnússon (20%), Árni Oddur Þórð-
arson (17,3%) og Lífeyrissjóður versl-
unarmanna (10%). Breytingar urðu á
yfirstjórn félagsins sl. vetur þegar
Árni Oddur settist í forstjórastól
Marel og hætti sem forstjóri Eyris.
Stjórnarformaður Eyris er Þórður,
faðir Árna Odds, sem stofnaði með
honum félagið árið 2000.
Þann 14. mars sl. tilkynnti Eyrir að
félagið hefði náð samkomulagi um
endurfjármögnun við innlenda fjár-
málastofnun. Með samkomulaginu
tókst Eyri að tryggja sér fulla fjár-
mögnun á öllum fjárhagslegum
skuldbindingum næstu misseri.
Eyrir Invest tapar 3
milljörðum króna
Verðbréfaeignir lækkuðu um 38 milljónir evra á árinu 2013
Eyrir Invest Lykileignir félagsins eru 29% hlutur í Marel og 17% eignar-
hlutur í Fokker Technologies og Stork Technical Services.
Fjárfestingafélag
» Tap á starfsemi Eyris In-
vest á síðasta ári nam 19,2
milljónum evra.
» Félagið er meðal annars
stærsti einstaki hluthafi
Marels með 29,3% hlut.
» Stærstu hluthafar Eyris
Invest eru Landsbankinn,
feðgarnir Árni Oddur Þórð-
arson og Þórður Magnússon
og Lífeyrissjóður versl-
unarmanna.
Neytendastofa
telur að fram-
setning saman-
burðarauglýs-
inga Gagnaveitu
Reykjavíkur á
Ljósleiðara
fyrirtækisins og
Ljósneti Símans
ásamt tilboði til
neytenda, um
hæga tengingu
með Ljósneti Símans, hafi verið
„ósanngjörn,“ haft áhrif á viðskipti
og „kastað rýrð“ á vörumerki Sím-
ans. Því séu auglýsingarnar brot á
lögum um eftirlit með viðskiptahátt-
um og markaðssetningu.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans, segir:
„Ákvörðun Neytendastofu er í sam-
ræmi við væntingar okkar enda
fannst okkur blasa við að auglýsing-
arnar væru ólöglegar þegar þær
birtust. Það eru mikil vonbrigði að
fyrirtæki í opinberri eigu ástundi
slík vinnubrögð.“
Síminn kvartaði yfir auglýsingum
sem Gagnaveitan, dótturfélag OR,
birti og sýndi samanburð á Ljósneti
Símans og Ljósleiðarapakka Voda-
fone en síðarnefnda varan nýtir ljós-
leiðara Gagnaveitunnar. Taldi Sím-
inn auglýsingarnar hafa með
„vísvitandi“ og „ófyrirleitnum
hætti“ kastað rýrð á þjónustu Sím-
ans. „Þannig séu með myndrænum
hætti birtar myndir af bíldruslu í
tengslum við vöruheitið Ljósnet en
glæsibifreið í tengslum við vöruheit-
ið Ljósleiðarann. Jafnframt sé birt
mynd af fasteign með skeifulaga
munnsvip þegar Ljósnet Símans eigi
í hlut en brosandi þegar Ljósleið-
arinn eigi hlut, augljóslega til að
skapa hughrif hjá neytandanum.“
Gagna-
veitan
braut lög
Síminn kvartaði
yfir auglýsingum
Síminn í Ármúla.
Finnur Reyr Stefánsson, annar af
eigendum fjárfestingafélagsins
Siglu ehf., er nýr stjórnarformaður
Straums fjárfestingabanka. Kosin
var ný stjórn Straums á hluthafa-
fundi bankans sem fór fram sl. föstu-
dag í kjölfar þess að tilkynnt var
þann 22. júlí að hópur fjárfesta hefði
gengið frá kaupum á hlut eignaum-
sýslufélagsins ALMC í Straumi.
Morgunblaðið hafði áður greint frá
áformum fjárfestahópsins að eignast
meirihluta í bankanum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Finnur Reyr tekur sæti í stjórn
Straums en hann var einnig í stjórn
bankans á árunum 2011 til 2013.
Aðrir sem voru kosnir í stjórn
Straums eru Ármann Fr. Ármanns-
son, Gunnar Þór Gíslason, Grímur
Alfreð Garðarsson og Kristín Guð-
mundsdóttir.
Eftir kaupin eru um 35,3% af
hlutafé bankans í eigu starfsmanna
Straums, þar af 9,5% hlutur í eigu
Jakobs Ásmundssonar, forstjóra
bankans, og 64,7% í eigu fjögurra fé-
laga sem fara öll með 16,175% eign-
arhlut hvert. Þau eru Sigla ehf.,
Ingimundur hf., Varða Capital ehf.
og Eignarhaldsfélagið Mata hf.
Þeir fjárfestar sem eru í forsvari
fyrir félögin eru viðskiptafélagarnir
Tómas Kristjánsson og Finnur Reyr
Stefánsson fyrir Siglu, feðgarnir Ár-
mann Ármannsson og Ármann Fr.
Ármannsson fyrir Ingimund og
Grímur Garðarsson og Jónas Hagan
fyrir Varða Capital. Guðný, Eggert,
Halldór og Gunnar Gíslabörn standa
á bak við eignarhaldsfélagið Mata.
Á árinu 2013 var hagnaður af
reglulegri starfsemi Straums 415
milljónir króna, sem samsvarar arð-
semi eigin fjár upp á 35%. Eigið fé
bankans var tæplega tveir milljarðar
í árslok 2013 og eiginfjárhlutfall
bankans 35%. hordur@mbl.is
Finnur stjórnar-
formaður Straums
Ný stjórn eftir kaup á hlut ALMC
Straumur Finnur Reyr var kosinn
stjórnarformaður á hluthafafundi.
● Hagnaður Deutsche Bank dróst sam-
an um 29% á öðrum ársfjórðungi mið-
að við sama tímabil í fyrra. Hagnaður
bankans nam 237 milljónum evra (37
milljörðum króna) og var langt undir
væntingum markaðsaðila. Matsfyrir-
tækið Moody’s lækkaði lánshæfis-
einkunn bankans úr A2 í A3 og sagði að
„mótstraumur í tekjum og gjöldum“
myndi verða dragbítur á afkomu
Deutsche Bank fram eftir árinu 2015.
Moody’s lækkar eink-
unn Deutsche Bank
● Bandarísk dag-
blöð fækkuðu
stöðugildum um
1.300 á síðasta ári,
en síðasta áratug-
inn hefur verið
stöðug fækkun í
stéttinni. Í dag
vinna 36.700
manns í fullu starfi
á 1.400 dagblöðum vestanhafs.
Þetta kemur fram í könnun sem sam-
tök ritstjóra og stofnun um félags-
fræðirannsóknir gerði.
Blaðamenn voru flestir í Bandaríkj-
unum árið 1990, eða 56.900 talsins. Ár-
ið 2000 voru þeir 56.400, en síðan hefur
leiðin legið niður á við. Frá 2007 hefur
blaðamönnum fækkað á hverju ári.
Blaðamönnum fækkar
Bandarísk dagblöð
fækka starfsfólki.
Stuttar fréttir…
!
"!!
"!#
$
!$!$
%
#"
!
%$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%!#
%#
"
"!%#
$%"%
!
!
#
$
#
%
%
"!#
""#
$%$
!$
"!
!$
!#
%#$
"!!!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
duxiana.com
Hryggjarstykkið í góðum nætursvefni
D
U
X®
,D
U
XI
A
N
A®
an
d
Pa
sc
al
®
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
ow
ne
d
by
D
U
X
D
es
ig
n
A
B
20
12
.
Stuðningur við hrygginn er grundvallaratriði
fyrir góðum nætursvefni. DUX rúmið með sýnu
einstaka fjaðrakerfi styður hann svo sannarlega.
DUXIANA Reykjavik, Ármuli 10, 568 9950
SUMARTILBOÐ
12 -17% Afsláttur