Morgunblaðið - 30.07.2014, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ráðamenn vestanhafs segja Rússa
nú hafa rofið svonefnt INF-sam-
komulag um meðaldrægar kjarna-
eldflaugar eftir að þeir skutu á loft
stýriflaug, sem borið getur kjarna-
odd, í tilraunaskyni. Fór tilrauna-
skotið fram í byrjun þessa árs.
Samkvæmt INF-samkomulaginu
er Rússum meinað að þróa, fram-
leiða og stunda tilraunir með stýri-
flaugar sem dregið geta 500 til 5.500
kílómetra. Hefur Barack Obama,
forseti Bandaríkjanna, sent Vladimír
Pútín Rússlandsforseta bréf vegna
málsins. Telja margir að atvikið
kunni að auka enn á þá spennu sem
ríkt hefur á milli landanna tveggja.
Samkomulag frá 1987
INF-sáttmálinn var á sínum tíma
undirritaður á sögulegum fundi
þeirra Ronalds Reagans Banda-
ríkjaforseta og Míkhaíls Gorbat-
sjovs, leiðtoga Sovétríkjanna, í höf-
uðborginni Washington í desember
árið 1987. Má tengja aðdraganda
undirritunar INF-samkomulagsins
við Reykjavíkurfund leiðtoganna ár-
ið áður og utanríkisráðherrafund
Atlantshafsbandalagsins sem hald-
inn var hér á landi sumarið 1987.
Rufu samkomulag
Tilraunaskot Rússa er litið alvarlegum augum vestanhafs
AFP
Pútín Rússar sæta þungum sökum.
Minnst 15 hafa nú
týnt lífi í Japan
undanfarna viku
vegna mikillar
hitabylgju sem nú
ríður yfir landið.
Að sögn stjórn-
valda þar í landi
hafa um 8.600
manns til við-
bótar verið fluttir
á sjúkrahús eftir
að þeir sýndu einkenni hitaslags en
það er gjarnan fylgifiskur mikils
sumarhita og hendir einkum eldra
fólk með langvinna sjúkdóma.
AFP-fréttaveitan greinir frá því
að minnst sex hinna látnu hafi týnt
lífi síðastliðinn sunnudag þegar hiti
mældist víða um 35 gráður. Flestir
þeirra sem fluttir voru undir læknis-
hendur voru 65 ára eða eldri. Veð-
urfræðingar vara við áframhaldandi
hitabylgju en í fyrra féllu víða hita-
met í Japan þegar mælar þar sýndu
um og yfir 41 gráðu.
JAPAN
Hitabylgja veldur
dauðsföllum
Fólk tekur því ró-
lega í skugganum.
Stjórnvöld á Ítal-
íu í samstarfi við
orkufyrirtækið
ENI hafa tekið
þá ákvörðun að
senda sjö flug-
vélar sem sér-
hannaðar eru til
slökkvistarfa til
hafnarborgar-
innar Trípolí í
Líbíu. Eiga vél-
arnar að taka þátt í að ráða niður-
lögum elds sem nú geisar í geymslu
olíubirgða þar í landi. Munu Ítalir
einnig senda lið sérfræðinga á vett-
vang sem aðstoða eiga við slökkvi-
störf.
Til átaka kom á milli stríðandi
fylkinga í Líbíu síðastliðinn sunnu-
dag. Enduðu þau með því að flug-
skeyti var skotið á tank sem inni-
hélt yfir 6.000.000 lítra af olíu. Er
nú óttast að eldurinn breiðist enn
frekar út og ógni nærstöddum gas-
geymslum. Minnst 97 hafa týnt lífi á
svæðinu að undanförnu.
LÍBÍA
Gríðarmikill eldur í
geymslu olíubirgða
Svartur reykur
stígur til himins.
Hollenska lögreglan, sem fer með
rannsóknina á hrapi malasísku far-
þegaþotunnar MH17, hefur fengið
150 ljósmyndir og myndbönd frá
fólki sem telur sig geta veitt rann-
sakendum vísbendingar um atvikið.
Óskaði lögreglan í síðustu viku eft-
ir myndefni á netinu sem kynni að
varpa ljósi á atburðarásina. Vildu
rannsakendur fá myndir af vettvangi
fyrir og eftir brotlendingu farþega-
þotunnar til þess að fá heildræna
mynd af atburðinum. Var sett upp
sérstakt vefsvæði síðastliðinn föstu-
dag á fjórum tungumálum þar sem
almenningi gafst kostur á að deila
gögnum. Ekki stóð á svörum og hafa
síðan 150 ljósmyndir og myndbönd
borist í gegnum gáttir á ensku, hol-
lensku, rússnesku og úkraínsku.
„Við vitum ekki enn hvaðan mynd-
irnar koma en við vitum að allar fjór-
ar tungumálagáttir voru notaðar,“
segir Franki Klarenbeek, talsmaður
rannsóknarinnar, í samtali við AFP-
fréttaveituna.
Flug MH17 var á leið frá Amster-
dam til Kuala Lumpur þegar vélinni
var grandað yfir austurhluta Úkra-
ínu 17. júlí sl. khj@mbl.is
AFP
Sorg Foreldrar sem misstu barn sitt í ódæðinu lögðu bangsa á flak MH17.
Upplýsingar ber-
ast rannsakendum
150 ljósmyndir og myndbönd borist
Ísraelskar hersveitir létu sprengjum rigna yfir Gaza-svæðið í gær en talið
er að yfir 100 Palestínumenn hafi fallið í aðgerðinni. Segjast Ísraelsmenn
vera búnir undir langvarandi hernað. Meðal skotmarka hersveita þeirra í
fyrrinótt var eina raforkuverið á Gaza og er talið að rafmagn verði því af
enn skornari skammti en verið hefur að undanförnu. Á myndinni má sjá
stórskotaliðsbyssu með 155 mm hlaupvídd skjóta á skotmörk á Gaza.
AFP
Létu sprengjum rigna yfir íbúa Gaza-svæðisins
Ökumaður vöruflutningabíls á Ind-
landi varð 12 pílagrímum úr röðum
hindúa að bana þegar hann ók bif-
reið sinni yfir fólkið. Átti atvikið
sér stað í norðausturhluta landsins
en hópurinn hafði fundið sér nátt-
stað við hlið fjölfarins vegar. Voru
18 til viðbótar fluttir særðir undir
læknishendur en samkvæmt AFP-
fréttaveitunni voru yfir 50 píla-
grímar sofandi við veginn þegar
ökumaður vöruflutningabílsins
missti stjórn á bifreið sinni með
fyrrgreindum afleiðingum.
Um svipað leyti lést 21 þegar
rútubíll valt í norðurhluta landsins.
Árlega deyja um 140.000 manns í
umferðarslysum á Indlandi.
Ók yfir hóp
af sofandi
pílagrímum