Morgunblaðið - 30.07.2014, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það eru mikil sannindi í því fólgin að
illt sé að leggja ást á þá sem enga kann á
móti. Nýttu þennan kraft til þess að bæta
einkalíf þitt.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki ummæli annarra í þinn garð
skemma fyrir þér daginn. Hlutir sem eru
spennandi núna, þarfnast eftirfylgni og mik-
illar vinnu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það eru oft einföldustu hlutirnir
sem veita manni mesta gleði. Gefðu þér líka
tíma til að vera með fjölskyldunni og rifja
upp gamlar minningar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ástæðulaust að liggja á skoð-
unum sínum, þótt einhverjir hafi uppi efa-
semdir um málflutning ykkar. Vilji fólk að þú
vitir eitthvað mun það sjá um það sjálft.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt líklega heyra frá gömlum kær-
asta/gamalli kærustu eða fyrrverandi maka
á næstu vikum. Gríptu tækifærið, taktu mál-
ið í þínar hendur og fylgdu því fram til sig-
urs.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinnan þín er ánægjuleg því þú nálg-
ast hana á mjög yfirvegaðan, léttan og kæru-
leysislegan máta. Innibyrgðar tilfinningar
eiga til að leita út með slæmum hætti, þegar
síst varir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú léttir á þínum eigin áhyggjum ef þú
gefur þér tíma til að hjálpa öðrum í neyð.
Mundu að það eiga allar fjölskyldur sínar erf-
iðu stundir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Af einhverjum ástæðum verður
þér lítið úr verki þessa dagana. Fyrsta skrefið
er að skipuleggja tíma þinn betur og læra að
segja nei.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ástæða til þess að fagna í
dag því þú hefur þrátt fyrir allt komið vel
undan vetri. Reyndu að gera ekki of miklar
væntingar til annarra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samræður við maka og nána vini
eru einstaklega tvísýnar í dag. Gættu að því
að láta metnaðinn ekki hlaupa með þig í
gönur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Því miður er ekki nóg að gera
skyldu sína til að öðlast ást og aðdáun ann-
arra. Reyndu bara að orða hlutina þannig að
allir skilji þig og hafi gaman að.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er nauðsynlegt að huga að hverju
smáatriði ef heildarútkoman á að vera rétt.
Hvað sem gerist, gerir þú það besta úr því.
Ég rakst á „Söngbók stúdenta,nýja útgáfu,“ þegar ég renndi
augunum yfir bókaskápinn. Hún
kom út 1934 og fól Stúdentafélag
Reykjavíkur Guðmundi Finn-
bogasyni að undirbúa útgáfuna, en
jafnframt var kosin þriggja manna
nefnd honum til fulltingis: Einar
Ásmundsson stud. jur., Guðni Jóns-
son magister og Tómas Guðmunds-
son skáld, svo að vel var vandað til
verksins!
Þar er að sjálfsögðu Rammi-
slagur Stephans G. Stephanssonar,
12 erindi undir hringhendum hætti
og verður ekki betur kveðið. Hér
eru þrjú fyrstu erindin:
Grána kampar græði á
gjálpir hampa skörum
titra glampar til og frá,
tifur skvampa í fjörum
Ögra læt mér ægis-lið
upp úr sæti malar.
Ránardætur dansa við
deigum fæti kjalar.
Undir bliku beitum þá
bát og strikið tökum.
Stígum vikivakann á
völtum kviku-bökum.
Og síðsta erindið:
Leggðu barminn alvot að
aftanbjarma gljáa.
Strjúktu harm úr hjarta-stað
hrönn in arma-bláa.
Þessi staka Vatnsenda-Rósu
hreyfir við öllum Íslendingum:
Augun mín og augun þín,
ó, þá fögru steina,
mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.
Og þar er Andrés Björnsson.
Hann varð úti aðeins 33 ára gam-
all, las íslensk fræði við Hafnarhá-
skóla, var þingskrifari, blaðamað-
ur og ritstjóri í Reykjavík. Fékkst
allmikið við leiklist og átti þátt í
að semja revíur. – „Andrés kvað
aðallega ferskeytlur, sem margar
lifa á vörum þjóðarinnar,“ stendur
í Íslensku skáldatali Menning-
arsjóðs:
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur
en verður seinna í höndum hans
hvöss sem byssustingur.
Gísli Ólafsson á þar eina stöku,
sem flestir kunna:
Margir forðum ortu óð,
yngdu með því geðið.
Þá voru kysst, og föðmuð fljóð,
fengið staup og kveðið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stökur úr Söngbók
stúdenta
Í klípu
„ÉG ER BUNDINN MJÖG VÍÐTÆKUM
TRÚNAÐI EFTIR SÍÐASTA STARF.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÞÚ PANTAR CHILI-RÉTTINN
ÞARF ÉG AÐ FÁ NAFN OG SÍMANÚMER
HJÁ NÁNASTA ÆTTINGJA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fjölskyldan.
MUN
VINNA
FYRIR
MAT.
BÍÍÍP
BÍÍÍP
BÍÍÍP
BÍÍÍP
BÍÍÍP
BÍÍÍP
VIÐ GÆTUM
SENNILEGA
STOKKIÐ YFIR
ÞETTA...
... EF VIÐ SNÚUM VIÐ
OG TÖKUM LANGT
TILHLAUP!
ÞAÐ ER EKKI Í
BOÐI AÐ SNÚA VIÐ!
NÚ ER ALLT Á
UPPLEIÐ.
ÍMYNDIÐ YKKUR HVAÐ
ÁSTANDIÐ VAR SLÆMT FYRIR.Verðskyn Víkverja er greinilegaekki beysið. Hann áttar sig ekki
á hvað er dýrt og hvað er ódýrt. Vík-
verji gekk fram hjá þremur sjúsk-
uðum Bandaríkjamönnum á Skóla-
vörðustígnum um helgina og einn
þeirra hljóðaði upp fyrir sig þegar
hann sá glingur í glugga á 70 dollara.
Víkverji bar ekkert skynbragð á
verðmæti glingursins, en hugsaði
með sér að verðskyn Bandaríkja-
mannsins væri með sársaukamörk-
um, hann fyndi til þegar honum
ofbyði.
x x x
Víkverji hefur ekkert á móti því aðeyða peningum í mat, drykk,
söfn og skemmtanir þegar hann er á
ferðalögum, en finnst kostnaður við
gistingu full stór útgjaldaliður miðað
við annað.
x x x
Vissulega er unaðslegt að vera ágóðu hóteli, en Víkverji sefur
reyndar mestan þann tíma, sem
hann dvelur á hótelum þannig að dá-
semdirnar fara mikið til fram hjá
honum. Á meðan hann er vakandi
vill hann skoða sig um á nýjum slóð-
um. Ef hann vildi vera inni væri
hann heima hjá sér þar sem er
rýmra en á flestum hótelher-
bergjum.
x x x
Víkverji veit ekki hvenær gistinger dýr og hvenær ódýr. Hann
hefur nú í tvígang heyrt talað um að
12 til 15 þúsund krónur sé gjafverð
fyrir gistingu, jafnvel þótt gist sé í
gámi. Víkverji þarf greinilega að
stilla verðvitundina upp á nýtt.
x x x
En það er ekki bara dýrt að gista áhótelum. Víkverji heyrði af
manni, sem hafði keypt sér fellihýsi
dýrum dómum. Svo kom á daginn að
hann hafði aldrei tíma til að nota
fellihýsið. Hann hafði átt fellihýsið
um nokkurt skeið og notað það svo
sjaldan að gistinóttin kostaði hann
hundrað þúsund krónur. Þá er hag-
stæðara að liggja í gámi fyrir 12 þús-
und krónur og vera laus við að vera
með hann í eftirdragi þegar skipt er
um náttstað.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó
Guð, mannanna börn leita hælis í
skugga vængja þinna. (Sálmarnir 36:8)
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Bindi og pökkunarlausnir
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
fyrir allan iðnað
STÁLBORÐAR Ísfell er með margar gerðir bindivéla fyrir stál- og plastborða.
Handbindivélar, hálfsjálvirkar og alsjálfvirkar
einnig brettavafningsvélar fyrir plastfilmur.
HÁLFSJÁLFVIRK
BINDIVÉL
SJÁLFVIRK
BINDIVÉL
HANDBINDIVÉLAR
BRETTAVAFNINGS-
VÉLAR
POLYESTER OG
PLAST BORÐAR