Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 23
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
föður, afa og langafa,
BRJÁNS GUÐJÓNSSONAR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hlíðar fyrir
alúð og umhyggju.
Baldur Brjánsson, Birna Hannesdóttir,
Júlíus Ingvar Brjánsson, Ásta Fanney Reynisdóttir,
Guðjón Svarfdal Brjánsson, Dýrfinna Torfadóttir,
Björk Elfa Brjánsdóttir, Angantýr Arnar Árnason,
Snjólaug Jónína Brjánsdóttir, Kristján Már Magnússon,
Þráinn Brjánsson, Petra Sif Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
STEFANÍA GÍSLADÓTTIR,
Hlíðarhjalla 6,
Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn
31. júlí, verður jarðsungin frá Digraneskirkju
mánudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Barnaspítala Hringsins.
Hrefna Berglind Ingólfsdóttir,Sigurður Jónasson
og börn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, besta mamma, dóttir,
tengdadóttir, systir, mágkona og frænka,
TRINE TRANVÅG ÖREN,
fædd 7. október 1966,
lést á Stavanger-háskólasjúkrahúsi
þriðjudaginn 29. júlí.
Útför fer fram frá Kampen-kirkju þriðjudaginn 5. ágúst.
Minningarstund verður í Lágafellskirkju þriðjudaginn
12. ágúst kl. 18.15.
Lárus Ingi Lárusson,
Lina og Johanna,
Oddbjörg og Olav,
Katrín Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
SIGRÚN HAUKSDÓTTIR,
Víðivöllum 20,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar laugardaginn
2. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
14. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Hulda Jóhanna Baldursdóttir, Eiríkur Örn Kristjánsson,
Stefán Þór Baldursson, Ragnheiður Njálsdóttir,
Bryndís Baldursdóttir, Baldur Þorsteinsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
INGVELDAR EYJÓLFSDÓTTUR,
Nónvörðu 10,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Heima-
hjúkrunar fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Eyjólfur Sverrisson,
Sverrir Sverrisson,
Elentínus Sverrisson,
Sævar Sverrisson
og fjölskyldur.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar og
tengdamóður,
GUÐRÚNAR H. VILHJÁLMSDÓTTUR,
Lindargötu 11.
Vilhjálmur Þór Kjartansson, Guðrún Hannesdóttir,
Magnús Rúnar Kjartansson, Jóhanna B. Jónsdóttir,
Anna Kjartansdóttir,
Kjartan Gunnar Kjartansson, Marta Guðjónsdóttir,
Ingibjörg Ósk Kjartansdóttir, Garðar Mýrdal,
Birgir Kjartansson,
Sveinn Sigurður Kjartansson, Stella Sæmundsdóttir.
✝
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi
okkar,
ÞORSTEINN MAGNÚSSON,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 6. ágúst.
Útför verður auglýst síðar.
Jens Þorsteinsson, Kristrún Sigurðardóttir,
Magnús Þorsteinsson, Anna Eyjólfsdóttir,
Kristín Jóna Þorsteinsdóttir, Hanna Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ RagnheiðurKristinsdóttir,
Aggý, fæddist á Óð-
insgötunni í Reykja-
vík 29. ágúst 1926.
Hún lést á Landspít-
alanum Fossvogi 6.
júlí 2014.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ásta
Magnúsdóttir, f. 5.
júlí 1898 á Ísafirði,
d. 19. júní 1945, og
Kristinn Ásgeir Kristjánsson frá
Breið á Akranesi, f. 6. maí 1897,
d. 14. apríl 1972. Systir hennar er
Arndís, f. 1932, og hálfsystur
samfeðra eru Þórunn Sigríður, f.
1948, og Ingibjörg, f. 1953.
Ragnheiður, b) Sigurður Yngvi,
c) Linda. 2) Þórunn, f. 1950, gift
Haraldi Þór Ólasyni, synir
þeirra: a) Úlfar, b) Þór. 3) Ásgeir,
f. 1958, kvæntur Ínu Skúladótt-
ur, þeirra börn: a) Snorri Freyr,
b) Skúli, c) Hildur, d) Bjarki.
Langömmubörnin eru 17.
Ragnheiður bjó fyrstu æviárin
með foreldrum sínum í Viðey, þar
rak faðir hennar netaverkstæði.
Þaðan fluttust þau til Patreks-
fjarðar og árið 1938 til Hafn-
arfjarðar, þar sem hún bjó alla tíð
síðan. Ragnheiður var heimavinn-
andi þar til börnin voru að mestu
uppkomin. Þá hóf hún störf utan
heimilis við verslunarstörf og í
mötuneyti eldri borgara á Hjalla-
braut 33. Ragnheiður var skáti
frá unga aldri og starfaði í St.
Georgsgildinu, Kvenfélaginu
Hrund og Lionsklúbbnum Kaldá.
Útför Ragnheiðar fór fram frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði 15.
júlí 2014.
Hinn 22. maí
1948 giftist Ragn-
heiður Úlfari Har-
aldssyni netagerð-
armeistara og
ökukennara, f. 2.
mars 1928, d. 15.
október 2000. For-
eldrar hans voru
Þórunn Úlfarsdóttir
frá Fljótsdal í
Fljótshlíð, f. 31. jan-
úar 1903, d. 21. des-
ember 1988, og Björn Haraldur
Sigfússon frá Brekku í Svarf-
aðardal, f. 19. júní 1899, d. 19.
janúar 1931. Börn þeirra eru: 1)
Ásta, f. 1947, gift Kristni Þóri
Sigurðssyni, þeirra börn: a)
Að hittast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast
það er lífsins saga.
Það er einmitt ein kveðju-
stund nýliðin, því hún Aggý er
farin heim eins og skátarnir
segja.
Það eru rúmlega fimmtíu ár
síðan fyrrverandi skátar hér í bæ
söfnuðust saman ásamt mökum
sínum og velunnurum og stofn-
uðu með sér félagsskap eldri
skáta, bæði fyrir sjálfa sig og líka
til stuðnings fyrir gamla félagið
sitt Hraunbúa. Þetta var góður
og sterkur hópur með hugsjónir
og framkvæmdavilja að leiðar-
ljósi. Margar hendur tóku til
starfa og margt var gert, m.a.
var byggður fallegur skáli upp
við Hvaleyrarvatn, Skátalundur,
en þar er algjör sælustaður.
Hún Aggý var sterkur hlekk-
ur í þessum félagsskap, hafði
góða nærveru, var glaðleg og hlý
í viðmóti og fús til starfa. Það
sem hún tók að sér var alltaf
vandað og vel af hendi leyst.
Við erum búnar að vera með
saumaklúbb í áratugi og höfum
gaman af að hittast, fá okkur
kaffisopa saman og minnast
margra ánægjustunda liðinna
daga.
Fyrir nokkrum árum stofnuð-
um við nokkrar spilaklúbb og
höfum hist aðra hverja viku
heima hjá okkur og spilað og
spjallað og átt margar góðar
stundir saman. Nú er komið ansi
stórt skarð í þennan litla hóp því
það var önnur farin heim á und-
an Aggý.
Við vorum líka saman í tré-
útskurði og handavinnu og eftir
hana eru til margir fallegir og
vandaðir gripir, bæði saumaðir
og skornir í tré.
Við erum allar mjög þakklátar
fyrir að hafa átt Aggý að vin-
konu, við söknum hennar, en all-
ar góðu minningarnar lifa.
Við þökkum líka fyrir sam-
veruna í þessum góða fé-
lagsskap, hann hefur gefið okkur
mikið.
Fjölskyldu hennar sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Við kveðjum Aggý vinkonu
okkar með ljóði sem við höfum
oft sungið saman:
Sofnar drótt, nálgast nótt,
sveipast kvöldroða himinn og sær.
Allt er hljótt, hvíldu rótt.
Guð er nær.
(Kvöldsöngur skáta)
Kveðja frá spilavinkonunum,
Elsa Kristinsdóttir.
Ragnheiður
Kristinsdóttir
Það var í október
2013 að við keyptum
flug fyrir stóra fjöl-
skyldu til Spánar og
áætlaður dvalartími
átti að verða hvorki meira né
minna en 30 dagar. Þá var farið í
það að finna hús og bíla fyrir þessa
stóru fjölskyldu plús 1 vin sem
ætlaði að dvelja með okkur í 10
daga. Niðurtalningin hófst í 134
dögum, að mig minnir, í sms-skila-
boðum. Í lokin var þetta komið
niður í klukkustundir. Svo kom
dagurinn sem við vorum öll búin
að bíða spennt eftir, gleðin og
spennan í hámarki. Við gerðum
margt á þessum 6 dögum sem við
áttum öll saman á Spáni, fórum í
go-kart þar sem keppnisskapið
kom pabba þínum í klandur. Eftir
mikið spennufall, rétt náði hann að
standa upp úr bílnum áður en
hann ældi. Við fórum á humar-
staðinn góða í heljarinnar humar-
og krabbaveislu. Við húsið var
sundlaug sem við fórum mikið í og
daginn fyrir slysið kenndir þú
Andri Freyr
Sveinsson
✝ Andri FreyrSveinsson var
fæddur 2. apríl
1996. Hann lést 7.
júlí 2014. Útför
Andra Freys fór
fram 24. júlí 2014.
Freydísi að synda án
kúta í djúpu laug-
inni. Þolinmæði þín
gagnvart henni var
ómetanleg. Þennan
dag varst þú í laug-
inni að kafa eftir
frosknum hennar
sem sökk alltaf til
botns og einnig að
synda á eftir henni
um alla laug. Á með-
an sóluðum við okk-
ur, ég og pabbi þinn á bakkanum.
Ég gat alltaf treyst þér fyrir Frey-
dísi sama hvar það var, þú pass-
aðir hana svo vel. Eitt kvöldið
skelltum við okkur í tívolí niður í
bæ, þið unglingarnir fóruð á flakk
og við foreldrarnir höfðum ofan af
fyrir þeim yngri í hinum og þess-
um tækjum. Þegar leiðir okkar
lágu saman seinna um kvöldið vor-
uð þið klyfjaðir loftbyssum, riffl-
um og auðvitað óheyrilegu magni
af skotum. Þarna voruð þið strák-
arnir sáttir og vilduð ólmir fara
heim í hús til að hefja ykkar leiki
en því miður varð ekkert úr því
þar sem nágranni okkar var ekki
eins spenntur fyrir þessum
byssum og þið. Daginn eftir vökn-
uðum við, við gleðina af að prófa
allt vopnasafnið, það var enginn
óhultur fyrir ykkur. Hvort sem við
sátum inni eða úti á verönd vorum
við alltaf í skotlínu, það var ekki
gott að fá í sig skot en mikið gát-
um við samt hlegið.
Að morgni 7. júlí vorum við 9
sem fórum í Terra Mitíca en að-
eins 8 sem komum þaðan um
kvöldið. Margar góðar minningar
um fallegan og ljúfan engil eru það
sem við munum ylja okkur við um
ókomin ár. Skynsemin veit og skil-
ur að þú ert farinn en tilfinning-
arnar ekki, sorgin er mikil. Afneit-
unin er mikil og ég bíð alltaf eftir
að vakna upp af þessari hræðilegu
martröð. Farðu í friði, elsku hjart-
ans Andri okkar, faðirinn mun þig
geyma, um aldur og ævi, þú verð-
ur okkur kær, aldrei við munum
þér gleyma.
Hulda Guðjónsdóttir,
Daníel O. Viney og Freydís
K. Sveinsdóttir.
✝ Stella MaríaJónsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 29. ágúst
1922. Hún lést á
elliheimilinu
Grund 27. júlí
2014.
Móðir var Auð-
björg Jónsdóttir,
d. 1982, frá Al-
viðru og faðir var
Jón Egilsson.
Bróðir hennar var Karl Eldar, d.
1978, kona hans Jó-
hanna Bacher Ott-
ósdóttir, d. 2006.
Stella starfaði í Ing-
ólfsapóteki í 30 ár.
Hún starfaði einnig
mikið fyrir Versl-
unarfélagið og var
mikill styrktaraðili
Blindrafélagsins.
Útför Stellu fer
fram frá Neskirkju í
dag, 8. ágúst 2014,
og hefst athöfnin kl. 13.
Á löngum starfsferli mínum hjá
VR átti ég samleið með Stellu
Maríu Jónsdóttur, sem í áratugi
vann við afgreiðslustörf hjá Ing-
ólfsapóteki og var einn af traust-
ustu félagsmönnum VR. Hún fór
aldrei leynt með þá miklu tryggð,
velvild og hlýju sem hún bar til
stéttarfélags síns. Stella var ætíð
mjög virkur þátttakandi í starfi fé-
lagsins og hún sá félagið sitt vaxa
úr litlu og lítilsmetnu félagi í
stærsta og öflugasta stéttarfélag
landsins. Hún gegndi mörgum
trúnaðarstörfum fyrir VR á
starfsferli sínum. Hún var um
tíma varamaður í stjórn félagsins,
í stjórn orlofssjóðs og 27 ár var
hún í trúnaðarmannaráði VR.
Hún sótti alla fundi og samkomur
sem VR efndi til og hélt því áfram,
ef aðstæður leyfðu, eftir að starfs-
ferli hennar lauk vegna aldurs.
Stella hafði mikla reynslu og
þekkingu á þeirri starfsgrein sem
hún vann lengst af við og hún
deildi þeirri þekkingu í baráttu
VR fyrir bættum kjörum af-
greiðslufólks. Hún sá miklar
breytingar verða á kjörum fólks
frá því hún tók fyrst þátt í fé-
lagsstarfinu og lagði baráttunni
fyrir bættum kjörum verslunar-
manna lið. Sem dæmi má nefna
styttingu dagvinnutímans úr 48
stundum í 37 og hálfa stund, leng-
ingu orlofs úr tveimur vikum í
rúmar fimm, aðild að atvinnuleys-
istryggingasjóði, stofnun orlofs-
sjóðs, stofnun sjúkrasjóðs, sem
m.a. stóð að byggingu hjúkrunar-
heimilanna Eirar og Skjóls, þar
sem margir félagsmenn VR, sem
misst hafa heilsuna, hafa fengið
aðhlynningu og umönnun. Allt
hefur þetta kostað mikla baráttu
og fórnir og var Stella virkur þátt-
takandi í allri þessari baráttu fyrir
bættum kjörum verslunarfólks,
sem það nýtur í dag og mun njóta
um ókomin ár.
Stella var sæmd gullmerki VR
fyrir mikil og góð störf í þágu fé-
lagsins í áratugi.
Ég er þakklátur fyrir að hafa á
starfsferli mínum átt áratuga
samleið með Stellu, þessari góðu
konu, sem lagði alltaf gott til mál-
anna og vildi öllum vel á langri
lífsgöngu.
Blessuð sé minning Stellu Mar-
íu Jónsdóttur.
Magnús L. Sveinsson,
fv. formaður VR.
Stella María
Jónsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast
er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar