Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Fundu níu börn í íbúð
2. Stjarnan komst í 4. umferð …
3. Ekki lengur bara eiginkona …
4. Ólafur Darri berst við Vin Diesel
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Skipuleggjendur 60. Eurovision-
keppninnar hafa ákveðið að keppnin
fari fram í Vín á næsta ári, en Con-
chita Wurst söng til sigurs fyrir
Austurríki í vor sem leið. Fyrra
undanúrslitakvöldið verður 19. maí
og það seinna 21. maí, en sjálf aðal-
keppnin laugardaginn 23. maí 2015.
Eurovision-keppnin í
Vín 23. maí 2015
Atriði Páls Ósk-
ars í Gleðigöng-
unni í ár vísar í
ævintýrið um litla
ljóta andarung-
ann eftir H.C.
Andersen. Sagan
fjallar um álftar-
unga sem klekst
út í stokkand-
arhreiðri og má
þola útskúfun sökum þess að hann er
öðruvísi. Þegar hann loks hittir svani
gerir hann sér grein fyrir að hann til-
heyrir þeim. „Fyrir mér er þetta fal-
legasta hinsegin saga sem skrifuð
hefur verið,“ skrifar Páll Óskar á Fés-
bókarsíðu sinni og bendir á að H.C.
Andersen hafi sjálfur verið samkyn-
hneigður.
Litli ljóti andarung-
inn hinsegin saga
Gerður Kristný skáldkona þreytir
frumraun sína sem þýðandi þegar út
kemur hjá Forlaginu í haust þýðing
hennar á barnabók um sprelligos-
ann Tom Gates sem á ís-
lensku nefnist Tommi
Teits. Sögurnar af
Tomma eftir Liz Pichon
eru byggðar upp sem
dagbækur sem titil-
persónan mynd-
skreytir sjálfur.
Þýðir sína fyrstu bók
Á laugardag Norðaustlæg átt, 3-10 m/s og skúrir eða dálítil rign-
ing, en bjart með köflum V-lands. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast SV-til.
Á sunnudag Norðan 8-13 m/s og rigning á A-verðu landinu, en
annars úrkomulítið. Hiti 7 til 15 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir heldur og rofar til fyrir sunnan. Hiti 10
til 16 stig að deginum.
VEÐUR
FH-ingar eru úr leik í for-
keppni Evrópudeildarinnar
þrátt fyrir 2:1-sigur á
sænska liðinu Elfsborg í
Kaplakrika í gær. Þetta var
síðari leikur liðanna, en
þriggja marka tap FH
ytra varð liðinu að falli.
Hafnfirðingar spiluðu
vel í gær og hefðu
með smá heppni get-
að komist áfram, en
varð ekki að ósk
sinni. »2-3
Sigurinn dugði
ekki til fyrir FH
Körfuknattleiksmað-
urinn Jón Arnór Stef-
ánsson verður ekki með ís-
lenska landsliðinu í
leikjunum við Breta og
Bosníumenn í undan-
keppni EM í mán-
uðinum. Hann er
samningslaus
og trygginga-
mál koma í
veg fyrir að
hann geti
tekið þátt
í leikj-
unum. »1
Stjörnukonur treystu stöðu sína í
toppsætinu í Pepsi-deild kvenna í
knattspyrnu í gærkvöld með 3:1-sigri
á Fylki í 12. umferð deildarinnar.
Stjarnan hefur nú 33 stig í 1. sæti en
Breiðablik, sem á þó reyndar leik til
góða, er í 2. sæti með 22 stig. Valur
sigraði ÍA, 3:1, í deildinni í gærkvöld
og ÍBV burstaði Þór/KA, 5:0, í Vest-
mannaeyjum. »4
Stjarnan treysti stöðu
sína í toppsætinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Ég viðurkenni það að ég var nærri
því að fella tár,“ segir Sauðkræking-
urinn Jóhann Björn Sigurbjörnsson,
Íslandsmethafi í 100 og 200 metra
hlaupi 18-19 ára, sem komst við er
hann frétti af vali sínu sem íþrótta-
maður Skagafjarðar árið 2013. Hann
á sæti í landsliði fullorðinna í frjáls-
um íþróttum og keppir um helgina í
Bikarkeppni FRÍ í 1. deild.
Afrek Jóhanns þykir enn merki-
legra fyrir þær sakir að hinn 19 ára
gamli hlaupari þurfti 14 ára gamall
að læra að ganga upp á nýtt eftir
heiftarlega veirusýkingu sem lagðist
á heila hans. Var honum haldið sof-
andi í 13 daga og var vart hugað líf á
þeim tíma. Með viljastyrk og elju
vann Jóhann meistaramót í 60 metra
hlaupi 16 ára, einungis rúmum
tveimur árum eftir að hann hafði
legið milli heims og helju.
Svæfingin bjargaði lífi Jóhanns
„Ég fór að sofa með kvef á fimmtu-
dagskvöldi í lok skólaárs. Pabbi
ákvað að líta inn til mín áður en hann
fór að sofa og sá mig liggjandi í floga-
kasti. Ég var búinn að bíta í tunguna
á mér, blóðið fossaði um allt og pabbi
náði engu sambandi við mig,“ segir
Jóhann Björn. Í sjúkrabílnum héldu
flogaköstin áfram þar til ákveðið var
að svæfa hann. Að sögn Jóhanns er
það mál manna að sú ráðstöfun hafi
bjargað lífi hans. Þegar komið var á
Akureyri var ákveðið að senda Jó-
hann með sjúkraflugi til Reykjavík-
ur. Þar var honum haldið sofandi í 13
daga. „Þeir reyndu að vekja mig eftir
fimm daga, en þá fór allt aftur af stað
og flogin byrjuðu að nýju. Því var ég
svæfður aftur og þeir gerðu aðra til-
raun eftir tíu daga. Eftir það tók það
mig þrjá daga að vakna,“ segir Jó-
hann. Hann man ekki eftir sér á gjör-
gæslunni þrátt fyrir að hafa dvalið
þar í 2-3 daga eftir að hann vaknaði.
„Ég man bara eftir mér þegar ég var
að fara af gjörgæslunni. Þá var kona
yfir mér að ýta mér í hjólastól á
ganginum yfir á Barnaspítala
Hringsins. Þrátt fyrir að muna ekki
neitt vissi ég samt alveg hvað hafði
gerst. Það er af því að mamma og
pabbi voru alltaf að tala við mig. Ég
þurfti ekkert að spyrja af hverju ég
væri þarna.“
Jóhann gat ekki gengið fyrstu dag-
ana og hafði einungis orku í 20 mín-
útur í senn áður en hann þurfti að
sofa meira. Í ljós kom að hann hafði
fengið sjaldgæfa Adeino-veirusýk-
ingu í heilann. Jóhann segir að hann
hafi verið ákveðinn í að keppa á ung-
lingalandsmóti tveimur mánðum eft-
ir að veikindin komu upp. „Lækn-
irinn sagði ekki neitt en ég áttaði mig
á því þegar að mótinu kom að það
myndi ekki gerast þar sem ég gat
rétt gengið.“ segir Jóhann.
Var haldið sofandi í 13 daga
Íslandsmethafi
þurfti að læra að
ganga upp á nýtt
Morgunblaðið/Eva Björk
Sigurvegari Jóhann Björn (nr. 181) hefur marga hildi háð utan vallar sem innan. Hann á bæði Íslandsmet í 100 og
200 metra hlaupi 18-19 ára. Þegar hann var 14 ára veiktist hann alvarlega og þurfti að læra að ganga upp á nýtt.
Slöngur um allt Jóhanni var haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans
í 13 daga og var vart hugað líf, en síðan hefur hann staðið sig vel.
Jón Arnór ekki með
landsliðinu um helgina