Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ísland á mikilla hagsmuna að gæta hvað varðar fiskútflutning til Rúss- lands, en samtals voru fiskafurðir fyrir 18,5 milljarða króna fluttar til Rússlands á síðasta ári. Líkt og fram kom í frétt á mbl.is í gær, bönnuðu Rússar innflutning á ávöxtum, grænmeti, kjöti, fisk, mjólk og mjólkurafurðum frá Bandaríkjunum, Evrópusamband- inu, Ástralíu, Kanada og Noregi í gær og tók bannið þegar gildi. „Íslensk stjórnvöld fengu það staðfest fyrr í dag að Ísland væri ekki á lista rússneskra stjórnvalda um innflutningsbann á matvælum frá Vesturlöndum,“ sagði Andri Lúthersson, deildarstjóri upplýs- ingamála utanríkisráðuneytisins í gær. Miklir hagsmunir í húfi Kolbeinn Árnason, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna (LÍÚ) sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að á síðasta ári hefðu Íslendingar flutt út sjávarafurðir, aðallega uppsjáv- arfisk, til Rússlands fyrir 18,5 millj- arða króna. „Það eru því engir smá- hagsmunir í húfi fyrir okkur,“ sagði Kolbeinn. Hann bendir á að ef Rússar séu að loka á allan innflutning á laxi og bol- fiski frá þessum ríkjum og löndum, sem séu mörg hver í beinni sam- keppni við okkur um markaði, þá hljóti þeir sem flytja út fisk frá ofan- greindum löndum að reyna að finna markaði annars staðar og þar með talið í okkar markaðslöndum. „Ég ímynda mér að slíkt gæti haft áhrif bæði á framboðið og verðlagið og gæti þannig komið illa við okkur. Þetta gæti því að einhverju marki riðlað skipulaginu og markaðs- myndinni eins og hún blasir við okk- ur í dag. Það er of snemmt að segja til um það hvernig þetta verður, en það verður vissulega áhugavert að fylgjast með því hvernig úr málum spilast,“ sagði Kolbeinn. Gætum styrkt stöðu okkar Friðleifur Friðleifsson, sölustjóri hjá Iceland Seafood, var spurður í gær hvort hann teldi að bann Rúss- anna mundi hafa einhver áhrif á út- flutning sjávarafurða frá Íslandi: „Staðan er þannig, að við erum ekki á þessum lista Rússa yfir þau lönd sem sett er bann á. Að því er við vit- um best, verður útflutningur okkar til Rússlands óbreyttur. Ef eitthvað er, þá gætum við allt eins styrkt okkar stöðu þarna á markaðnum, en það er of snemmt að segja til um það,“ sagði Friðleifur. Friðleifur sagði að þeir hjá Ice- land Seafood hefðu í gær talað við rússneska viðskiptamenn fyrirtæk- isins og það hefði komið á daginn að menn væru að meta fréttirnar af banninu og stöðuna í framhaldi þess. Makríllinn er mikilvægastur „Langstærsti hluti útflutnings okkar til Rússlands er uppsjáv- arfiskur og þar er makríllinn einna mikilvægastur og síldarafurðir þar á eftir. Eins og málin horfa við okkur í dag, er ekkert sem bendir til þess að innflutningur frá Íslandi til Rúss- lands verði stöðvaður, og menn vona svo sannarlega að það verði ekki svo,“ sagði Friðleifur. Hann sagði að hafa bæri í huga að markaður fyrir makríl frá Noregi og Evrópusambandslöndum væri ekki mjög stór. Rússar hefðu keypt svo- lítið af makríl og síld frá Skotlandi, en þeir hefðu keypt lungann af mak- ríl frá eigin flota og svo frá Íslend- ingum og Færeyingum. Engin áhrif á Icelandair Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að í fljótu bragði fengju þeir hjá Icelandair ekki séð að bann Rússanna mundi hafa áhrif á rekstur Icelandair. „Við sjáum ekki að þetta bann Rússa hafi áhrif á Icelandair. Við munum halda áfram áætlunarflugi okkar til Sankti Pétursborgar til mánaðamóta og sömuleiðis erum við með viðhaldsverkefni fyrir rúss- neskt flugfélag og því verður einnig haldið áfram. Bannið hefur engin áhrif á það,“ sagði Guðjón Arn- grímsson. Lítil áhrif á Ísland af banni Rússa  Framkvæmdastjóri LÍÚ bendir á að bannlöndin gætu sótt á markaðslönd Íslendinga í fiskútflutn- ingi  Sölustjóri Iceland Seafood segir að markaðsstaða Íslendinga gæti jafnvel styrkst í Rússlandi Makríll Makrílafurðir vega langþyngst í fiskútflutningi Íslands til Rússlands. 2011 var fluttur út makríll fyrir 10,3 milljarða og í fyrra fyrir 8,9 milljarða. Útflutningur sjávarafurða til Rússlands 2011 – maí 2014 2011 2012 2013 2014 17.973.311.333Samtals ISK: 16.641.346.441 18.503.136.749 6.459.646.605* 10.340.629.171Makrílafurðir 7.259.107.397 8.928.562.240 239.136.321 3.948.103.613Síldarafurðir 5.126.618.342 2.835.670.024 1.401.063.976 1.318.095.352Loðnuafurðir 2.073.015.903 3.376.518.748 2.743.977.367 1.414.249.411Karfaafurðir 1.399.996.254 2.720.252.818 1.793.841.378 952.233.786Aðrar afurðir 782.608.545 642.132.919 281.627.563 Heimild: Hagstofan* janúar til maí 2014 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014 Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, telur að áhrifin af banni Rússa á Ísland og útflutning til Rúss- lands verði lítil sem engin. „Ég tel að áhrif bannsins fyrir okkur verði hverfandi. Við erum enn sem komið er ekki á þessum lista hjá Rússunum og vonum að sjálfsögðu að svo verði áfram. Á meðan svo er, þá aðhöfumst við ekki neitt. Við fylgj- umst bara með framvindu mála,“ sagði utanrík- isráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. Gunnar Bragi sagði varðandi frekari þvingunar- aðgerðir gegn Rússum, að þá yrði slíkt bara metið á hverjum tíma og hvort það snerti Ísland og íslenska hagsmuni sérstaklega. GUNNAR BRAGI SVEINSSON Gunnar Bragi Sveinsson Fylgjumst bara með Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is „Við höfum miklar væntingar um góða sjóhæfni þessa skipa,“ segir Kristján Vilhelmsson, framkvæmda- stjóri útgerðar Samherja, en Sam- herji Ísland og Útgerðarfélag Akur- eyringa hafa gert samninga við skipasmíðamiðstöðina Cemre Ship- yard í Istanbul í Tyrklandi um smíði á þremur nýjum ísfisktogurum. Togar- arnir verða 61,6 metra langir og 13,5 metra breiðir, útbúnir til að flytja ferskan afla í land. Áætlað er að smíði fyrsta skipsins hefjist upp úr næstu áramótum og afhending þess verði í apríl/maí 2016. Heildarverðmæti þessara samninga er um 10 milljarðar íslenskra króna. Alls verða smíðuð fjögur skip og það fjórða fer til út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Fisk Seafood. Bygging skipanna tímabær Kristján segir ánægjulegt að samn- ingur um byggingu skipanna þriggja sé í höfn og segir hann þessa endur- nýjun tímabæra. „Það hefur ekki ver- ið endurnýjað í of langan tíma. Þessi skip hafa verið í rekstri lengi svo þetta er dálítið sögulegt,“ segir hann, en þau skip sem endurnýjuð verða eru Kaldbakur EA 1 sem var smíðað á Spáni 1974, Björgúlfur EA 312 sem var smíðað á Akureyri 1977 og Snæ- fell EA 310 sem var smíðað í Noregi árið 1968. Elsta skipið verður því næstum 50 ára gamalt þegar það fer úr rekstri. Fjórða skipið sem verður í eigu Fisk Seafood mun einnig koma í stað annars skips, Klakks SK-5, en það var smíðað árið 1977. „Það er kominn tími til að endurnýja skipa- stólinn,“ segir Jón Eðvald Friðriks- son, framkvæmdastjóri Fisk Seafood, en þetta er fyrsta nýbygging félagsins í langan tíma. Hönnuð af Íslendingum Samherji lét bjóða verkið út í nokkrum löndum en tilboðið frá Cemre Shipyard var metið hagstæð- ast. Eiginleg stálsmíði skipanna mun fara fram í Tyrklandi en unnin hefur verið mikil vinna af íslenskum aðilum við hönnun. „Það hefur alltaf verið stefna Samherja að kaupa þá vinnu innanlands sem hægt er að kaupa og þetta er hluti af því, þessi fyrirtæki eru mjög samkeppnishæf í því sem þau eru að gera,“ segir Kristján. Aðal- hönnun skipsins hefur verið í höndum Verkfræðistofunnar Skipatækni og starfsmanna Samherja undir yfirum- sjón Bárðar Hafsteinssonar. Raf- teikningar eru frá Raftækni Akureyri, og teikningar og fyrirkomulag sigl- inga og fiskileitatækja er unnið af Brimrún í Reykjavík. Eldvarnir eru útfærðar af Nortek ehf. á Akureyri, en tölvu- og tækjarými með allra nýj- ustu tækni er hannað af Nordata ehf. í Reykjavík. Fiskvinnslubúnaður er í hönnunarferli starfsmanna Samherja ásamt Slippnum á Akureyri. Stál teikningar verða unnar af Verkfræði- stofunni Skipatækni. Öll hönnun skipanna er miðuð við að orkunotkun verði eins lág og kost- ur er. „Það er hugsað til þess í hönn- uninni, og svo er það líka bara þannig að nýir hlutir eru hagkvæmari í rekstri en 50 ára gamlir,“ segir Kristján. Auka við landvinnslu Samherji hefur að sögn Kristjáns breytt rekstrinum að mestu leyti úr útgerð á frystitogurum yfir í ísfisktog- ara. „Við reynum að auka landvinnslu og erum með hana hjá ÚA á Akureyri og í Dalvík.“ Fisk Seafood hefur sömu stefnu, að sögn Jóns Eðvalds. „Það er hluti af stefnu fyrirtækisins að auka land- vinnslu og tryggja betra og ferskara hráefni,“ segir hann, en á ísfisktog- urum fer vinnsla fisksins ekki um borð í skipinu eins og á frystitogurum. 50 ára togari leystur af  Samherji Ísland og Útgerðarfélag Akureyringa hafa gert samninga um smíði á þremur nýjum ís- fisktogurum  Fisk Seafood hefur einnig samið um smíði nýs togara  Heildarverðmæti 10 milljarðar Ísfisktogari Teikningin sýnir hvernig nýju togararnir munu koma til með að líta út, en þeir verða 61,6 metra langir og 13,5 metra breiðir. Kristján Vilhelmsson Jón E. Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.