Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Strandveiðar fara vel af stað í ágúst og eftir
tvo veiðidaga hefur alls veiðst 401 tonn af fiski,
samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi
smábátaeigenda. Fjöldi landana er 779 og því
er meðalafli úr róðri 514 kg. Aflahæsti bát-
urinn á landsvísu, það sem af er sumri, er
Hulda SF en hún hefur landað rúmum 35 tonn-
um eftir 45 róðra á svæði D. Skipstjóri bátsins
og eigandi er Hólmar Unnsteinsson en hann
gerir út frá Hornafirði.
Á svæði A er Kári BA aflahæstur en 23
róðrar hafa skilað honum alls tæpum átján
tonnum. Ásdís ÓF er aflahæsti báturinn á
svæði B þar sem rúmlega 31 tonn hefur komið
í land eftir 39 róðra. Birta SU hefur skilað
mestum afla á svæði C, en 44 róðrar hafa skil-
að tæpum 33 tonnum til hafnar.
Sjómenn bundnir af fjórum mánuðum
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátaeigenda, segir að sumarið
hafi gefið ágætlega af sér.
„Menn hafa mögulega þurft að hafa að-
eins meira fyrir aflanum í ár en í fyrra, en
strandveiðarnar hafa engu að síður gengið
ljómandi vel. Fyrstu dagarnir í ágúst lofa mjög
góðu og ekki skemmir fyrir að fiskverðið hefur
verið mjög hagstætt og við finnum að mikil
ánægja ríkir með það,“ segir Örn.
Að sögn Arnar væri hægt að breyta fyr-
irkomulaginu til að stuðla að betri veiði.
„Við erum að reyna að fá stjórnvöld með
okkur í lið til að þróa kerfið í þá átt að sjómenn
geti valið fjóra mánuði af sex í stað þess að
vera bundnir af þessu tímabili frá maí til
ágúst,“ segir Örn og bætir við að víða megi
finna vilja til breytinga.
„Hér í flóanum [Faxaflóa] er venja fyrir
því að veiðin sé léleg í júlí og ágúst og ég held
að margir hverjir myndu því frekar vilja hefja
veiðar í apríl og sleppa þessum tveimur mán-
uðum. Einnig er hefð fyrir lélegri veiði í maí
fyrir austan og ég tel að menn vildu frekar
nýta annan og betri mánuð til veiða, stæði það
þeim til boða.“
Strandveiðarnar gengið vel í sumar
Þörf er á að breyta fyrirkomulaginu, segir framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda
Ánægja ríkir með hagstætt fiskverð Hulda SF aflahæsti báturinn með rúm 35 tonn lönduð í ár
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Smábátaveiði Net dregin úr Skjálfandaflóa.
Hagstætt fiskverð vekur ánægju sjómanna.
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
Þrjár kærur hafa borist lögreglu
vegna kynferðisbrota um síðustu
helgi. Tvær þeirra bárust lögregl-
unni á Selfossi vegna meintra
brota á Selfossi og á Flúðum og
þriðja kæran barst lögreglunni á
Akureyri. Ekki hafa borist kærur
vegna tveggja annarra meintra
kynferðisbrota gegn tveimur ung-
um konum í Reykjavík og Vest-
mannaeyjum um helgina, en alls
leituðu fimm konur til neyðar-
móttöku Landspítala fyrir þol-
endur kynferðisofbeldis um og
eftir verslunarmannahelgina.
Rannsókn gengur vel
Samkvæmt lögreglunni á Sel-
fossi eru bæði málin þar í rann-
sókn og miðar ágætlega. Að sögn
Þorgríms Óla Sigurðssonar, að-
stoðaryfirlögreglustjóra á Selfossi,
gengur rannsókn vel. „Við erum
að leggja áherslu á að yfirheyra
vitni og þá sem tengjast málinu.
Við vonumst til að ná að ljúka
þessu mjög fljótlega, að minnsta
kosti Selfossmálinu,“ segir hann,
en í því máli liggur aðili undir
grun. Hann segir málið á Flúðum
þó heldur flóknara, „Þar þarf að fá
sérfræðiálit og annað sem getur
tafið málið, það er samt sem áður
á góðri ferð.“
Þorgrímur segir málin tvö vera í
forgangi. „Önnur mál verða að líða
fyrir það. Þegar mál snúa að til-
finningum skipta þau meira máli
en mál sem snúa til dæmis um
dauða hluti,“ segir hann.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri miðar rannsókn þar einnig
vel. Kært var kynferðisafbrot sem
átti sér stað í heimahúsi á Akur-
eyri og er málið til rannsóknar, en
enginn er í haldi að svo stöddu,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu.
Rannsaka
kynferðis-
brotin
Málin í forgangi
hjá Selfosslögreglu
Morgunblaðið/ÞÖK
Sjúkrahús Fimm leituðu aðstoðar.
Opnunarhátíð Hinsegin daga fór
fram í gærkvöld í Silfurbergi í
Hörpu, en Hinsegin dagar hófust á
þriðjudag. Ýmsir listamenn stigu á
stokk á hátíðinni og má þar nefna
Pál Óskar, Siggu Beinteins, Haf-
stein Þórólfsson, Hinsegin kórinn
og fleiri. Einnig kom fram
skemmtikrafturinn vinsæli William
úr RuPaul’s Drag Race, en hann
kom sérstaklega hingað til lands til
að skemmta á opnunarhátíðinni.
Óvæntur ræðumaður kvöldsins
var Jóhanna Sigurðardóttir, fyrr-
verandi forsætisráðherra, en hún
talaði m.a. um baráttu hinsegin
fólks. „Hugur minn er fullur af
þakklæti,“ sagði hún, „þakklæti til
frumherjanna sem hófu að ryðja
brautina fyrir nærri fjórum áratug-
um þegar íslenskt samfélag var allt
öðruvísi en nú.“ Jóhanna talaði um
það mikla og góða starf sem unnið
hefur verið á síðustu árum gegn
fordómum, en þó væri baráttunni
hvergi nærri lokið. „Baráttu þeirra
sem berjast fyrir mannréttindum
hinsegin fólks lýkur ekki fyrr en
heimurinn allur skilur að tilfinn-
ingar okkar eru nákvæmlega þær
sömu og annarra,“ sagði hún. Það
væri stærsta verkefnið. if@mbl.is
Opnunarhátíð Hinsegin daga haldin í Hörpu í gær
Baráttunni hvergi nærri lokið
Jóhanna Sigurðardóttir var óvæntur ræðumaður á opnunarhátíð Hinsegin daga
Morgunblaðið/Ómar
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Sveitarfélög í Svíþjóð eru nú sum
hver farin að bjóða íbúum sínum
upp á þráðlaust net án endurgjalds.
Meðal þeirra borga sem bjóða upp á
slíka þjónustu eru Helsingjaborg,
Jönköping, Sundsvall og Málmey.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Halldór Auðar Svansson, kapteinn
Pírata í Reykjavík, það koma vel til
greina að kanna slíkt hér á landi.
„Þetta er vel skoðandi, án þess þó
að lofa neinu. Það væri hins vegar
mjög jákvætt fyrir fólk að geta verið
tengt hvert sem það fer. Það eru
reyndar til staðar tengipunktar hér
og þar en það mætti nú bæta úr
því,“ segir Halldór Auðar og bætir
við að ágætis innviðir séu fyrir slíkt.
Lækkun útsvars mikilvægara
Aðspurður segir Halldór Auðar
þó mikilvægt að kanna hvernig stað-
ið yrði að kostnaði færi borgin að
bjóða íbúum upp á þráðlaust net.
„Þetta er vissulega heillandi hug-
mynd en hún kostar eflaust sitt.“
Spurður hvort hann myndi beita sér
fyrir þjónustunni svarar Halldór
Auðar: „Það er alveg möguleiki.
Gaman væri að sjá umræðu skapast
um þetta mál.“
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir lækkun útsvars nýtast fleirum.
„Mér finnst eðlilegra að fólk
greiði eitthvert gjald fyrir þjón-
ustuna. Ef ég stæði frammi fyrir
þeim valkostum að geta boðið upp á
fría internetþjónustu eða lækka út-
svar þá myndi ég frekar lækka út-
svarið því það er eitthvað sem nýtist
mun fleirum,“ segir Halldór.
Frítt net heillandi hugmynd
Sum sveitarfélög í Svíþjóð bjóða upp á þráðlaust net endurgjaldslaust „Þetta
er vel skoðandi, “ segir kapteinn Pírata í borginni Innviðirnir eru til staðar
Morgunblaðið/hag
Netkaffi Víða er net á kaffihúsum.