Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014 4Viðhaldsfrítt yfirborð 4Dregur ekkert í sig 4Mjög slitsterkt 48, 12, 20 & 30mm þykkt Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is UTANHÚSKLÆÐNING ® BORÐPLÖTUR ® SÓLBEKKIR ® GÓLFEFNI þolir 800°C hita og er frostþolið Nýtt efni frá BORÐPLÖTUR Renndu við og skoðaðu úrvalið Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Hafnarhólminn á Borgarfirði eystri er mjög fallegur en frá náttúrunn- ar hendi er alger hafnleysa á svæð- inu. Það var ekki fyrr en upp úr 1940 sem menn lögðu í það að huga að hafnargerð, en byrjað var á steyptum kerjagarði við Bakka- gerðisþorp árið 1943. Garðurinn var svo lengdur í áföngum og árið 1974 var lengingu loks lokið. Í dag er garðurinn um 180 metrar að lengd. Einstakt fuglalíf er að finna í Hafnarhólmanum. Þar er auðvelt að komast í návígi við lunda, fýl, ritu, æðarfugl og fleiri tegundir sem dvelja í og við Hafnarhólma. Á undanförnum árum hefur verið lögð mikil vinna í að byggja upp að- stöðu fyrir ferðamenn til fuglaskoð- unar og útivistar við höfnina, en við Hafnarhólma er að finna veglega fuglaskoðunar- og útsýnispalla. Finna má tugi algengra fuglateg- unda í og við Hafnarhólma, en þar er mikið lundavarp og talsvert æðavarp, ásamt dálitlum ritu- og fýlsvörpum. Æðarvarpið er mest áberandi í fyrri hluta júní á meðan blikinn er í varpinu en lundinn er við holur sínar fram í ágústbyrjun. Rita og fýll eru hins vegar við hreiður út ágúst. Aðgengi að lundaskoðunarpalli er takmarkað í júní- og júlímánuði en aðgengið er algerlega ótak- markað í ágúst. Það er því um að gera að nýta tækifærið þennan seinasta sumarmánuðinn og skella sér í Borgarfjörð eystri og skoða fallega náttúru. www.mats.is Náttúra Hér má sjá loftmynd tekna af Hafnarhólmanum. Tugir algengra fuglategunda finnast á svæðinu sem og góð aðstaða til fuglaskoðunar. Góð aðstaða til fuglaskoðunar  Mikil vinna lögð í uppbyggingu Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Frá því að sýningin í Byggðasafn- inu í Skógum var fyrst gerð að- gengileg fyrir almenning í desem- ber árið 1949, hefur safnið tekið miklum framförum. Í dag býr safn- ið að stóru og flottu útisýning- arsvæði en þar má finna góða full- trúa fyrir húsagerð fyrr á öldum. Safninu er svo skipt upp í fimm deildir sem finna má innandyra, eða sjósóknardeild, landbún- aðardeild, húsmuna- og handverks- deild, náttúrugripadeild og skjala- safn. Í sjósóknardeildinni má finna glæsilegt safn muna sem tengjast sjósókn og útræði frá sunnlenskum brimsöndum. Í sjómunasalnum í sömu deild má finna höfuðprýði safnsins, áttæringinn Pétursey, en hann var smíðaður árið 1855 og var í notkun allt til ársins 1946. Í land- búnaðardeildinni má sjá hin ýmsu verkfæri sem bændur notuðu á ár- um áður. Þar má nefna verkfæri til mjólkurvinnslu, tóvinnu, smíði og fleira. Í húsmuna- og handverks- deild er svo að finna hluti sem fólk notaði í daglegu lífi, svo sem hús- búnað og skraut. Í suðurherbergi safnhússins frá árinu 1954 eru m.a. fjölmörg sýnishorn af handverki karla og kvenna í útsaumi, vefnaði og mörgu fleira. Í náttúrugripa- deild má finna merkilegt safn af uppstoppuðum dýrum og kynjaver- um en þar má nefna safn fugla, eggja, skordýra, plantna og steina. Í skjalasafninu eru svo varðveitt margskonar skjöl frá einstakling- um, fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Hefur tekið miklum framförum Ljósmynd/Byggðasafnið í Skógum Byggðasafn Safnið hefur breyst töluvert frá því það var fyrst opnað og þar er margt áhugavert að sjá.  Safninu skipt upp í fimm deildir  Uppstoppuð dýr Spáð er norðaustlægri átt, 8-13 m/s, en 13-18 m/s með suðausturströndinni fram eftir degi. Víða verður rigning og þokusúld við sjóinn, norð- og austantil á landinu, en lægir heldur og rofar til fyrir sunnan á morgun. Hiti verður á bilinu 10 til 15 stig að deginum. Á laugardag er spáð norðaustlægri átt, 3-10 m/s, og skúrum eða dálítilli rigningu, en björtu með köflum vestanlands. Hiti verður á bilinu 10 til 17 stig og hlýjast suðvestantil á landinu. Á sunnudag er spáð norðan 8-13 m/s og rigningu á austanverðu landinu, en annars verður úrkomulítið. Hiti verður á bilinu 7-15 stig að deginum til og hlýjast fyrir sunnan. Víða rigning og þokusúld við sjóinn Morgunblaðið/Styrmir Kári Helgin Pollagalli gæti komið að góðum notum. Áhugaverðir áfangastaðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.