Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 11
Villtir apar á Balí Allar myndirnar á sýningunni eru svart-hvítar, sem gefur henni ákveðin svip, en hvað þema varðar segir Óskar myndirnar allt í bland. ákveðnar lykildagsetningar var fátt planlagt fyrir fram. Að sögn Óskars ákváðu þau heldur að spila þetta eftir eyranu og grípa öll tækifæri til að reyna það sem þau langaði til. „Þetta var svona spurning um að upplifa drauma sem maður bjóst kannski aldrei við að upplifa. Standa á sléttum Afríku innan um sebrahesta og ljón, fara í loft- belgjaferð í Laos og henda sér út í fallhlíf í Nýja-Sjálandi og þess háttar. Þetta eru allt saman ógleymanlegar stundir. Að kafa í Taílandi. Maður gat tikkað við ansi marga punkta á listanum yfir hluti sem mann langar til að prófa,“ segir Óskar. Hann segir að vissulega hafi aðrar upplifanir tekið á. Til að mynda heimsókn á leikskóla fyrir fötluð börn í fátækraþorpi í Nai- robi, þar sem börnin komu hlaup- andi á móti þeim til að leika. Ósk- ar segir að ferðalagið hafi sett ákveðna hluti í nýtt samhengi. „Ég upplifði það sterkt hvað við höfum það gott. Við fórum til 16 landa og vorum ekkert að sigta út að fara á bágstödd svæði, við vorum bara að ferðast um heiminn, og maður komst að því að maður hefur það betra en fólk á nánast öllum stöð- unum sem maður kom á. Og það svona situr í manni; ágætis áminn- ing þegar maður fer að kvarta undan smávægilegum hlutum eins og rigningarsumri eða álíka,“ segir Óskar en þrátt fyrir bágar að- stæður hafi fólk almennt borið sig vel. „Ég sá fleiri brosa úti á götu en hérna heima,“ segir hann. Dreymir um næstu ferð Óskar segist muna vel þær til- finningar sem myndefnið vekur með honum hverju sinni og mynd- irnar á sýningunni hafi m.a. verið valdar með þær til hliðsjónar. „Ég hef tekið myndir í 10 ár en er núna loksins að verða fullorðinn og verða ljósmyndari,“ segir hann og hlær, spurður af hverju hann hafi ákveðið að efna til sýningar nú. „Mig hefur lengi langað að setja upp sýningu en hefur kannski ekki fundist ég hafa eitt- hvað í höndunum – ég vil hafa ein- hverja heild – ég hef ekki gaman af því að tína bara til mínar 20 bestu myndir frá síðustu 10 árum, það yrði dálítið skrýtin sýning. En um leið og ég kom heim úr þessu ferðalagi fann ég að ég var loksins kominn með eitthvað í hendurnar sem mig langaði að vinna úr.“ Hvað viðfangsefni varðar seg- ir Óskar landið í uppáhaldi og að því leyti séu íslenskir ljósmynd- arar heppnir. „Maður getur hve- nær sem er keyrt aðeins út fyrir Reykjavík og fundið æðislegt myndefni,“ segir hann. En er önnur heimsreisa í kortunum? „Við erum ekki farin að plana hana en við látum okkur oft dreyma,“ svarar Óskar. „Við erum með risastórt listaverk uppi á vegg í stofunni sem er heim- skortið. Og mjög oft kemur aug- lýsingahlé eða eitthvað leiðinlegt efni í sjónvarpinu og þá erum við bæði farin að horfa á það, og horf- um bara dreymin mínútum saman. Maður veit aldrei en það er hell- ings peningur sem fer í þetta. Það stoppar mann alltaf.“ Misskipting Óskar og Hrund heimsóttu leikskóla fyrir fötluð börn í fá- tækraþorpi í Nairobi. Þar er verið að reyna að gefa fólki von, segir Óskar. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014 HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði HVAÐ GERÐIR ÞÚ UM HELGINA? ŠKODA Yeti Outdoor kostar frá 5.220.000,- Á vit ævintýranna í nýjum ŠKODA Yeti Outdoor. Betri eru þúsundir stjarna á næturhimni en fimm stjörnur á hóteli. Þú getur áð hvar sem þér dettur í hug, þökk sé torfærustillingunni í Yeti. Þú getur slappað af og látið fara vel um þig þótt undirlagið sé ójafnt. Þú kemst heilu og höldnu á leiðarenda og VarioFlex aftursætakerfið tryggir að þú getir tekið allan nauðsynlegan aukabúnað með þér. Geymslurými er aldrei vandamál því þú býrð einfaldlega til pláss með því að færa til aftursætin. Þá kemur sér ekki síður vel að vera með dráttarkúlu sem staðalbúnað. Leggðu drög að óbyggðaferðinni strax í dag með því að fá reynsluakstur hjá ŠKODA. Nú fæst sjálfskiptur Yeti á enn betra verði en áður. Eldsneytisnotkun og útblástur Yeti í blönduðum akstri: 4,6–8,0 l/100 km, 119–189 g/km skoda.is SIMPLY CLEVER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.