Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014
AF MÁLMI
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Ég var tólf ára þegar ég upp-götvaði söguna af Íkarosi,hinum tápmikla ofurhuga
sem flaug of nálægt sólinni á
vængjum úr fiðri og vaxi, sem faðir
hans, meistarasmiðurinn Dædalos,
hafði smíðað handa honum. Afleið-
ingarnar urðu að vonum skelfileg-
ar; vaxið bráðnaði og Íkaros hrap-
aði til bana. Heillandi heimur,
gríska goðafræðin.
Ég las ekki um þetta í bók, sá
þetta ekki í sjónvarpinu og gúggl-
aði það sannarlega ekki – enda
höfðu menn ekki fundið upp netið á
þeim tíma. Þvert á móti hlustaði ég
á breska málmbandið Iron Maiden
syngja um þessi grimmilegu örlög
á plötunni Piece of Mind. Árið var
1983 og lagið hét einfaldlega Flight
of Icarus.
Þeir hafa alltaf verið með af-
brigðum sögulega þenkjandi, höfð-
ingjarnir í Maiden. Beindu á sinni
tíð athygli ungmenna um heim all-
an að ýmsum merkum köppum, svo
sem Alexander mikla og breska
skáldinu og heimspekingnum
Samuel Taylor Coleridge. Það er
þó ekki tilefni þessa pistils.
Nú, rúmum þremur áratugum
síðar, er Íkaros nefnilega aftur
kominn á kreik í málmheimum. Að
þessu sinni er það glænýtt, stjörn-
um prýtt band, Killer Be Killed,
sem yrkir um ofurhugann. Lagið
heitir Wings of Feather and Wax
og er opnunarlagið á fyrstu breið-
skífu sveitarinnar, sem ber nafn
hennar.
Þar segir meðal annars:
Wings above, danger’s near,
they’re coming down,
flying close to the sun, you will
only hit the ground,
the silence is so deafening, the
end is just the beginning,
inside the void, I hear you
scream.
I never stopped to notice the fire
in your hand,
a burning so consuming, but now
I understand,
Sabbatískur skapadómur
Stjörnuband Killer Be Killed er Troy Sanders, Greg Puciato, Max Cavalera og Dave Elitch.
and now I’m falling, like Icarus to
land,
too late to kill the flame that I
fanned.
Killer Be Killed er stór-merkilegt málmband, en það
samanstendur af fjórum mönnum
sem gert hafa garðinn heldur betur
frægan með öðrum sveitum: Max
Cavalera (Soulfly, áður Sepultura),
Troy Sanders (Mastodon), Greg
Puciato (The Dillinger Escape
Plan) og Dave Elitch (The Mars
Volta). Hinir þrír fyrrnefndu starfa
áfram með sínum böndum, Killer
Be Killed er bara hliðarverkefni.
En þvílíkt hliðarverkefni!
Killer Be Killed er afsprengi
vináttu Cavaleras og Puciatos sem
stendur á gömlum merg. Puciato
söng með Cavalera í einu lagi á
Soulfly-plötunni Omen, sem kom út
2010, og við það vaknaði gagn-
kvæmur áhugi á frekara samstarfi.
Að því kom að þeir fundu tíma til
að loka sig af saman og linntu ekki
látum fyrr en drög að fimmtán lög-
um lágu fyrir.
The Dillinger Escape Plan
túrar reglulega með Mastodon og í
einni slíkri ferð upplýsti Puciato
Sanders um verkefnið. Hann stökk
um borð. Þegar Sanders og Cava-
lera hittust skömmu síðar í fyrsta
sinn á tónleikahátíð í Suður-
Ameríku kynnti sá fyrrnefndi sig
víst með þessum hætti: „Hæ, ég
heiti Troy og mér skilst að við
séum saman í hljómsveit.“
Loks var Elitch limaður inn.
Á síðasta ári hittust fjórmenn-
ingarnir síðan til að semja efni og
hljóðrita með útgáfu í huga. Allir
lögðu í púkkið og Cavalera, Puciato
og Sanders skipta söngnum bróð-
urlega á milli sín. Þrjár gjörólíkar
raddir. Platan kom í verslanir í
vor.
„Þetta er sabbatískur skapa-
dómur í bland við þrass, harð-
kjarna og pönk,“ segir Puciato á
vef sveitarinnar, beðinn að lýsa
tónlistinni. Black Sabbath er sem
kunnugt er móðir allra málm-
banda.
Soulfly, Mastodon, The Dill-
inger Escape Plan og The Mars
Volta eru ákaflega ólík bönd og
Puciato segir Killer Be Killed ekki
líkjast neinu þeirra enda hefði þá
verkefnið engan tilgang.
„Þetta er mjög sérstakt verk-
efni. Eiginlega einstakt – og býður
upp á mikla möguleika. Platan er
blanda af þungu, hröðu og melód-
ísku efni,“ bætir Cavalera við.
„Eftir að hafa kynnst þessum
mönnum, skapað og tekið upp með
þeim heila plötu get ég sagt að
þessi reynsla hefur farið langt
fram úr mínum væntingum,“ segir
Sanders. „Sameiginleg orka og
gagnkvæm virðing manna í millum
gerði ferlið allt mjög auðvelt og
var í raun þerapísk reynsla fyrir
mig.“
Það á ugglaust við um fleiri.
»Hæ, ég heiti Troyog mér skilst að við
séum saman í hljóm-
sveit.
Ofurhugi Frægt málverk eftir
Jacob Peter Gowy, Flug Íkarosar.
Bandaríski organleikarinn Jonathan
Dimmock heldur tónleika á Noack-
orgel Langholtskirkju í kvöld, föstu-
dag, og hefjast þeir klukkan 20.
Dimmock er góðvinur orgelsmiðsins
Frits Noack og hefur lengi látið sig
dreyma um að halda hér tónleika.
Tækifærið kom nú, eftir rúmlega
mánaðar tónleikaferð orgelleik-
arans, að koma hér við og láta
drauminn rætast.
Dimmock hefur komið víða við á
gifturíkum ferli. Hann hefur verið
organisti við Westminster Abbey í
London, Divine dómkirkjuna í New
York, St. Mark’s dómkirkjuna í Min-
neapolis og Grace dómkirkjuna í San
Francisco. Nú starfar hann sem org-
anisti Sinfóníuhljómsveitarinnar í
San Francisco og organisti og kór-
stjóri Sherit Israel-safnaðarins í
sömu borg. Hann hlaut Grammy
verðlaun fyrir vinnu sína með San
Francisco sinfóníuhljómsveitinni.
Dimmock hefur leikið inn á yfir 40
geislaplötur og haldið tónleika í
fimm heimsálfum.Á tónleikunum á
föstudag mun hann eingöngu leika
verk úr Clavierübung eftir J. S.
Bach.
Organleikarinn Jonathan Dimmock er virtur og vinsæll og leikur verk úr
Clavierübung eftir J. S. Bach. á tónleikunum í Langholtskirkju.
Dimmock leikur í
Langholtskirkju
Þjóðlagasveitin Spottarnir heldur
sína árlegu sumartónleika á Café
Rosenberg við Klapparstíg í kvöld,
föstudag, og hefjast þeir klukkan
22.
Spottana skipa þeir Eggert Jó-
hannson söngvari og gítarleikari,
Einar Sigurðsson bassaleikari,
Magnús R. Einarsson gítarleikari
og Ragnar Sigurjónsson trommu-
leikari. Það liggja margir þræðir að
Spottunum sem sækja sér efnivið í
sænskar, amerískar og íslenskar
vísur og texta með viðeigandi tón-
smíðum. Þeir hafa komið fram víða
á liðnum misserum, meðal annars á
þjóðlagahátíð í Svíþjóð.
Spottarnir Þeir koma fram í kvöld.
Sumar hjá Spottum
María Ösp Ómarsdóttir flautuleik-
ari og Sólborg Valdimarsdóttir pí-
anóleikari halda tónleikana Hug-
hrif tónanna í Salnum í Kópavogi í
kvöld kl. 20 . Tónleikarnir eru hluti
af hliðarhátíð Tónlistarhátíðar
unga fólksins. Á efnisskrá tón-
leikanna eru verk samin eftir 1950,
en þau eru eftir Finn Karlsson,
Báru Gísladóttur, Þorkel Sig-
urbjörnsson, Þóru Marteinsdóttur,
O. Messiaen, A. Piazzolla og Arvo
Pärt. Þess má geta að verkin eftir
Báru og Finn voru samin sér-
staklega fyrir þessa tónleika.
Dúó María Ösp Ómarsdóttir og Sólborg
Valdimarsdóttir.
Frumflytja tvö ný verk
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is