Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
L
jósmyndarinn Óskar
Páll Elfarsson og
kærasta hans Hrund
Þórsdóttir deila
brennandi áhuga á
ljósmyndun og ferðalögum. Þau
ákváðu því að slá til þegar tæki-
færi gafst fjárhagslega og vinnu-
lega og skelltu sér í heimsreisu í
byrjun árs 2012, þar sem þau fóru
um fimm heimsálfur, heimsóttu 16
lönd og gistu á 51 stað. Hugtakið
„heim“ öðlaðist nýja merkingu að
sögn Óskars og miðaðist við stað-
setningu bakpokans á hverjum
tíma, en verðmætasti farangurinn
var myndavélarnar sem parið not-
aði til að fanga það sem fyrir augu
bar.
„Ég var fyrst og fremst að
fara til að ferðast og upplifa. Mað-
ur var ekki að eyða heilu dögunum
í að vera á ákveðnum stað við sól-
arupprás til að ná sem bestri
mynd en hafði það alltaf á bak við
eyrað að koma heim með almenni-
legar myndir til að gera eitthvað
með,“ segir Óskar, en ferðalagið
er viðfangsefni fyrstu einkasýn-
ingar hans, sem verður opnuð kl.
16 á morgun í Perlunni.
Skíthrædd á fyrsta degi
Ævintýrið hófst í Afríku, þar
sem Óskar og Hrund sóttu m.a.
heim Kenía og Tansaníu en þaðan
lá leiðin til Taílands, Kambódíu,
Singapúr, Indónesíu, Ástralíu, Síle
og Úrúgvæ og víðar. Eins og bú-
ast má við lenti parið í nokkrum
skrautlegum uppákomum á ferða-
laginu, m.a. í Nairobi, höfuðborg
Kenía, sem Óskar hafði einhvers
staðar lesið að væri þriðja hættu-
legasta borg Afríku.
„Þar mættum við á fyrsta
degi blaut á bak við eyrun og
höldum að lífið sé ekkert mál og
endum hjá mjög dularfullum leigu-
bílstjóra sem á að skutla okkur
upp á hostel. Hann stoppar síðan
bara úti í vegkanti hjá afvikinni
vöruskemmu að því er virtist;
þetta var seint um kvöld og myrk-
ur, og segist vera bensínlaus. Og
ég hugsa bara: Sjitt, nú á að ræna
okkur strax, af því að mér fannst
mjög furðulegt að leigubíll væri
bensínlaus fimm mínútum eftir að
hann pikkar mann upp á flugvell-
inum,“ segir Óskar. Við tók
klukkutímalöng bið, þar sem bíl-
stjórinn opnaði m.a. farangurs-
geymsluna, í misgáningi að eigin
sögn.
„Við vorum náttúrlega alveg
hætt að taka mark á honum og
orðin skíthrædd; farin að plana
hvert við ætluðum að hlaupa og
búin að stinga veskjunum inn á
okkur. En svo endaði þetta bara
þannig að það kom einhver félagi
hans klukkutíma seinna með bens-
ínbrúsa og þetta var ekki neitt
neitt,“ segir Óskar en eitt af því
sem reyndist vandasamt á ferða-
laginu var að finna mörkin milli
þess að vera passasamur og for-
dómafullur.
Ógleymanlegar stundir
Ár leið milli þess að Óskar og
Hrund ákváðu að leggja í heims-
reisuna og þess að þau flugu frá
Íslandi til Lundúna, en fyrir utan
að bóka helstu flugferðirnar fyrir
tímann og negla þannig niður
Hugtakið „heim“ öðl-
aðist nýja merkingu
Í febrúar 2012 lagði ljósmyndarinn Óskar Páll Elfarsson í heimsreisu ásamt kær-
ustu sinni Hrund Þórsdóttur. Þau heimsóttu 16 lönd í fimm heimsálfum á þremur
og hálfum mánuði og komu til baka þakklát fyrir lífsgæðin á Íslandi. Þrátt fyrir
að markmið ferðarinnar væri fyrst og fremst að upplifa hafði Óskar myndavélina
við höndina og opnar á morgun einkasýninguna Augnablik í Perlunni.
Loftbelgur í Laos Litlu hlutirnir urðu eftirminnilegir á ferðalaginu að sögn
Óskars, t.d. að komast í heita sturtu í Bólivíu eftir margra vikna bið.
Smakk Óskar segir þau Hrund grínast með að reisan hafi verið tapasferð,
„smá smakk af hverju“. Hér eru þau í Hobbiton-leikmyndinni á Nýja-Sjálandi.
Á dögunum tók ég upp á því að
ferðast með barn til útlanda, þrjú
lönd og fjórar flugferðir. Þegar ég
segist hafa verið að ferðast með barn
meina ég samt ekki þetta klassíska
barn sem birtist í auglýsingum flug-
félaga. Einhver krúttleg stelpa með
tvær fullkomnar fléttur sem
skemmtir sér í fluginu með litabók,
nei, ég var með sextán mánaða óvita.
Ég hafði séð þetta ágætlega vel fyrir
mér. Barnið er jú dásemdin ein og
mjög meðfærilegur. Ég hafði bara
ekki fattað að hann myndi liggja of-
an á mér allt flugið. Barnið er tæp 14
kíló að þyngd. Svo er hann mjög
heitfengur og með stóran og þungan
haus. Allt þetta sett saman í jöfnu og
úr kemur gífurlega sjúskuð móðir
með barnasvita á sér allri. Við skul-
um bara orða það þannig að það voru
ekki teknar myndir af mér þá daga
sem við ferðuðumst. Enginn fil-
ter getur reddað þessari týpu.
En svo er alltaf svo hollt að
líta jákvætt á hlutina. Með
þessu fyrirkomulagi var ég
ekki að eyða peningum í
óþarfa vitleysu í flugvél-
inni, innbyrða einhverjar
kaloríur sem ég þarf ekki
eða tala við ókunnuga.
Enginn nennir að kynnast
konunni með barnið. Síðan
jafnaðist það á við nokkra
tíma í ræktinni að hendast
með 14 kílóin og handfar-
angur á handleggjunum á
milli flugvéla.
Þið kannist kannski við
það að vera í flugi og ætla að
lesa bók eða horfa á kvikmynd? Það
er eiginlega ekki hægt ef þú ákvaðst
að taka lítið barn með þér. Allt snýst
um að svæfa og þegar það er búið er
maður einfaldlega fastur. Í einu flug-
inu sem ég fór í varð ég fyrir þeirri
skemmtilegu lífsreynslu að boðið var
upp á heita máltíð. Ásamt því að
velta því fyrir mér hvort ég hafi lent
í einhvers konar tímavél hugsaði ég
hvernig í ósköpunum ég gæti borðað
máltíðina. Ég hefði verið til ef 14
kílóin hefðu ekki verið sofandi ofan á
mér og því ekki í boði að
setja niður borðið til þess
að snæða. Flugfreyjan
fann þó til með mér er ég
þurfti að afþakka máltíð-
ina og bauð mér í staðinn
kaffi. Ég var að spá í að
segja „Já takk, settu boll-
ann bara ofan á hausinn á
honum, hann rumskar
ekkert,“ en brosti bara og
hristi hausinn. Þetta sner-
ist allt um að halda
drengnum sofandi. Þannig
er hann jú fallegastur. Þá er
ekkert annað í stöðunni en
að halda í sér og stara út í
tómið.
»Allt snýst um að svæfaog þegar það er búið er
maður einfaldlega fastur.
Heimur Auðar
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Vissir þú að Charlotte Lee frá Banda-
ríkjunum á stærsta safn af gúmmí-
öndum sem vitað er um? Þann 10. apr-
íl 2011 samanstóð það af 5.631 önd,
sem Charlotte safnaði á 15 árum. Eða
að loðnasti táningur heims er Supatra
Sasuphan frá Taílandi, sem er hæst-
ánægð með titilinn?
Um þessi met og fleiri má lesa á
heimasíðu heimsmetabókar Guinness,
www.guinnessworldrecords.com. Þar
er m.a. að finna upplýsingar um sögu
bókarinnar auk þess sem hægt er að
fletta upp ýmsu metum, sem eru hvert
öðru ótrúlegra!
Vefsíðan www.guinnessworldrecords.com
Hvar fær maður stærstu pylsuna?
AFP
Met? Aðdáendur Sherlock Holmes gera tilraun til að setja met í fjölda fólks á
sama stað sem klætt er eins og spæjarinn víðfrægi hinn 19. júlí sl.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.