Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014
Ármú la 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn. is | www.gahusgogn. is
1975-2014
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil. Við
leggjum áherslu á stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þing Líberíu og Síerra Leóne komu
saman í gær til að staðfesta yfir-
lýsingar forseta landanna um
neyðarástand vegna ebólufaraldurs-
ins sem hefur kostað nær þúsund
manns lífið í Vestur-Afríku.
Stjórnvöld í Síerra Leóne ákváðu
að senda 800 hermenn til að annast
öryggisgæslu á sjúkrahúsum þar
sem ebólusjúklingar eru í sóttkví.
Falast eftir lyfi
Faraldurinn barst nýlega til Níg-
eríu og þarlend stjórnvöld sögðust
hafa haft samband við bandarísk
heilbrigðisyfirvöld til að spyrja hvort
Nígeríumenn gætu fengið til-
raunalyfið ZMapp sem notað hefur
verið í Bandaríkjunum. Tveir Banda-
ríkjamenn, sem störfuðu á vegum
kristinna hjálparstofnana í Líberíu,
voru fluttir á sjúkrahús í Bandaríkj-
unum eftir að þeir sýktust af ebólu.
Þeir hafa sýnt batamerki eftir að
þeir fengu tilraunalyfið. Erfitt er að
framleiða lyfið í miklum mæli.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði að enn væri of snemmt
að senda tilraunalyfið til Vestur-
Afríku. „Ég tel að við eigum að láta
vísindin ráða ferðinni,“ sagði hann.
„Og ég tel ekki að við höfum fulla
vitneskju um hvort lyfið er gagn-
legt.“
Sérfræðingar deila um hvort það
sé siðferðilega réttlætanlegt að nota
lyfið til að lækna bandaríska sjúk-
linga en senda það ekki til Afríku, að
sögn AFP. Fréttaveitan hefur eftir
einum þeirra að það geti verið rétt-
lætanlegt að nota ekki slíkt til-
raunalyf í miklum mæli vegna þess
að það geti valdið skaða og ekki hafi
verið sannað að lyfið komi að gagni.
Ebóla getur valdið bráðri blæðing-
arsótt og sótthita og hefur valdið
dauða í um 55% tilfella. Smit berst
milli manna með sýktu blóði og öðr-
um líkamsvessum.
Ebólufaraldurinn í Vestur-Afríku
GÍNEA
SÍERRA
LEÓNE
FÍLABEINS-
STRÖNDIN
ATLANTSHAF
MALÍ
SENEGAL
GÍNEA-
BISSÁ
CONAKRY
MONRÓVÍA
FREETOWN
Héruð þar sem fólk
hefur sýkst af ebóluveirunni
100 km
286
363 látnir
495 tilfelli
691
LÍBERIA
282
516
2*
NÍGERÍA
9
*Skv. upplýsingum AFP í gær
Deilt um tilrauna-
lyf gegn ebólu
Lyfið notað vestra en ekki í Afríku
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Tugir þúsunda kristinna manna í
Norður-Írak flúðu heimkynni sín
vegna árása liðsmanna samtaka
íslamista, Ríkis íslams, sem náðu
stærsta bæ kristinna Íraka og ná-
lægum byggðum á sitt vald í gær.
Íslamistarnir réðust inn í bæinn
Qaraqosh, sem var með 50.000 íbúa,
og þrjá aðra bæi kristinna manna ná-
lægt sjálfstjórnarsvæðum Kúrda.
Flestir kristnu flóttamannanna
eru Kaldeu-kaþólikkar, sem eru í
tengslum við kaþólsku kirkjuna í
Róm en halda ýmsum siðum sínum.
„Þetta er neyðarástand. Þeir hafa
lagt kirkjurnar undir sig og tekið
krossana niður,“ sagði Louis Sako,
patríarki Kaldeu-kaþólikka. Hann
bætti við árásarmennirnir hefðu
einnig brennt um 1.500 trúarleg
handrit.
Að sögn patríarkans lögðu alls
100.000 kristnir íbúar svæðisins á
flótta vegna sóknar íslamistanna.
Um hálfum mánuði áður höfðu þús-
undir íbúa Mosul-borgar flúið eftir
að íslamistarnir hótuðu þeim lífláti ef
þeir snerust ekki til íslamskrar trúar
og greiddu þeim verndarfé.
Um milljón kristinna manna bjó í
Írak fyrir Persaflóastyrjöldina árið
1991 en þeim fækkaði í um það bil
800.000 fyrir innrásina undir forystu
Bandaríkjanna árið 2003. Margir
þeirra flúðu frá Írak vegna blóðugra
átaka trúarhópa eftir innrásina og
áætlað er að kristnu íbúunum hafi
fækkað í 400.000. Rúmur helmingur
þeirra býr í héraði sem Mosul til-
heyrir.
Frá innrásinni árið 2003 hafa
íslamistar ráðist á sextíu kirkjur í
Írak og orðið um þúsund kristnum
Írökum að bana. Til að mynda létu
44 kirkjugestir og tveir prestar lífið í
árás á kirkju í Bagdad í október
2010.
Tugir þúsunda
kristinna á flótta
100 km
BAGDADRutba
Tal
Afar
Sinjar
Arbil
Najaf
Rawa
Baquba
ÍRAK
ÍRAN
SÁDI-
ARABÍA
SÝRLAND
Fallujah
Kirkuk
Hawija
Suleiman Beg
Ajil
Basra
Tus Khurmatu
Khanaquin
Mosul
Samarra
Karbala Hilla
Nasriyah
Amarah
Al Kut
Stífla í Mosul
Sharqat
Abu Kamal
Qaim
Heimild: ISW
Vígasveitir íslamista í sókn í Norður-Írak
Á valdi stjórnarhersins
í Írak
Á valdi kúrdískra
skæruliðasamtaka
Á valdi liðsmanna
Ríkis íslams
Samtök íslamista, Ríki íslams, hafa náð bæjum kristinna manna á sitt vald
Sjálfstjórnarsvæði
Kúrda
Stífla í
Mosul
Mosul
Arbil
Al-Qosh
Duhok
Qaraqosh
Gwer
Tal Kayf
Bartella
Karamlesh
Bæir sem
samtökin
náðu á sitt
vald í gær
Íslamistar ná bæjum kristinna manna í Írak á sitt vald
Nær 2.000 ára saga
» Flestir kristnu Írakanna eru
Kaldear, sem er heiti manna af
semískum þjóðflokki upp-
runnum í Arabíu, en hann sett-
ist að í grennd við borgina Úr í
Kaldeu og rann síðar saman
við Babýloníumenn. Sumir
Kaldear tala aramísku, sem var
móðurmál Krists.
» Margir kristnir Írakar teljast
til Assýríumanna, afkomenda
íbúa fornu ríkjanna Assýríu og
Babýloníu. Assýríumenn
dreifðust um Mið-Austurlönd
eftir að stórveldi þeirra hrundu
á sjöttu og sjöundu öld fyrir
Krist. Þeir tóku kristni á fyrstu
öld eftir Krist og kirkja þeirra
er álitin sú elsta í Írak.
Anders Fogh
Rasmussen,
framkvæmda-
stjóri Atlants-
hafsbandalags-
ins, hét Úkraínu
stuðningi í deil-
unni við Rúss-
land þegar hann
var í heimsókn í
Kænugarði í gær. Hann skoraði
einnig á stjórnvöld í Kreml að flytja
rússneskar hersveitir frá landa-
mærunum að Úkraínu og sakaði
Rússa um að hafa ýtt undir ófrið í
austanverðri Úkraínu.
„Sérhvert ríki hefur rétt til að
velja eigin utanríkisstefnu án er-
lendrar íhlutunar,“ sagði Anders
Fogh Rasmussen við fréttamenn
eftir fund með ráðamönnum í
Kænugarði. „NATO virðir alger-
lega þennan rétt en árás hefur nú
verið gerð á frelsi og framtíð Úkra-
ínu.“
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
„Árás á frelsi og
framtíð Úkraínu“