Morgunblaðið - 08.08.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014
Útsala Útsala Útsala ÚtsaÚtsala Útsala Útsala Útsa
la Útsala Útsala Útsa
Útsala Útsala Útsala Útsa
Útsala Útsala Útsala Útsa
Útsala Útsala Útsala ÚtsaÚtsala Útsala Útsala ÚtsaÚtsala Útsala Útsala ÚtsaÚtsala Útsala Ú
la Útsala Útsala Útsala Úla Útsala Útsala Útsala Ú
tsala Ú
la Útsala Útsala Útsala Ú
la Útsala Útsala Útsala Ú
la Útsala Útsala Útsala Úla Útsala Útsala Útsala Úla Útsala Útsala Útsala Úla Útsala Útsala Útsala Úla Ú
VERÐHRUN
20%
auk -
afsláttur
af útsöluverði
Enn er hægt að
gera góð kaup
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Fagleg þjónusta í 60 ár
Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 • Finndu HYGEA á facebook
Ný sending
af töskum
Öryggisíbúðir fyrir aldraða og almenn leiga
OPIÐ HÚS Í EIRBORGUM
laugardaginn 9. ágúst og sunnudaginn
10. ágúst milli kl. 14 og 16.
Inngangur við Fróðengi 5, Grafarvogi.
Íbúðir til leigu í lengri eða skemmri tíma.
Vandaðar tveggja og þriggja herbergja íbúðir til leigu
í Fróðengi 1 – 11, Grafarvogi 112, Reykjavík.
Öryggisíbúðarleiga, ótímabundin.
Almenn leiga til allt að tveggja ára.
Innangegnt er úr Eirborum í Borgir menningar- og
þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar.
Verslunar- og þjónustumiðstöðin við Spöngina í
göngufæri. Golfvöllur Korpu, Egilshöllin, góðar
göngu- og reiðhjólaleiðir í næsta nágrenni.
Eir, hjúkrunarheimili og öryggisíbúðir
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík • ( 522 5700
Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið: edda@eir.is
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Lögreglustjórinn á Húsavík og
Vatnajökulsþjóðgarður hafa í sam-
ráði við Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra ákveðið að aflétta þeim
takmörkunum sem verið hafa á ferð-
um við Víti í Öskju undanfarnar
vikur.
Í tilkynningu frá Almannavarna-
deild segir að berghlaupið, sem varð
í Suðurbotnum í Öskju 21. júlí, hafi
sýnt að ferðafólki kann að vera meiri
hætta búin vegna stórra berghlaupa
og flóðbylgna, en menn hafi áður
gert sér grein fyrir.
Með hliðsjón af niðurstöðum rann-
sóknar Veðurstofu og Háskóla Ís-
lands er hættan þó ekki talin gefa
nægt tilefni til að loka svæðinu
lengur en orðið er.
Ferðamönnum er þó bent á að
fylgja þeim varúðarreglum sem sett-
ar hafa verið á svæðinu. Sérstaklega
er varað við hættu á flóðbylgjum í
Öskjuvatni sem berghlaup niður í
vatnið geta hrundið af stað. Ef fólk
verður vart við hrun í fjöllunum við
vatnið ætti það að forða sér frá vatn-
inu og upp í hlíðar, að því er segir í
tilkynningunni. Talið er að flóð-
bylgja sé eina til tvær mínútur að
ferðast þvert yfir vatnið.
Ekki eru vísbendingar um vaxandi
eldvirkni í Öskju í tengslum við
berghlaupið og þá er ekki talin vera
aukin hætta á jarðskjálftum í kjölfar
berghlaupsins.
Brún öskjunnar þykir óstöðug og
er varað við öllum ferðum um sjálft
skriðusvæðið þar sem berghlaupið
féll. Brotstál skriðunnar mun vera
mjög óstöðugt og er talið að hrun
verði algengt þar næstu árin, en
sprungur eru á breiðu svæði við
jaðra berghlaupsins.
Aflétta takmörkunum
Varað við hættu á flóðbylgjum í Öskjuvatni Engar vís-
bendingar um vaxandi eldvirkni eða aukna jarðskjálftahættu
Ljósmynd/Gunnar Víðisson
Skriðan Vatn flæddi frá Öskju inn í
Víti sem sést til vinstri á myndinni.
Ingunn AK kom til Vopnafjarðar
aðfaranótt fimmtudags með um 430
tonn af makríl. Aflinn fékkst í
tveimur stuttum holum á svæðinu
frá Litladjúpi og upp á grunnið í
Breiðamerkurdjúpi, samkvæmt til-
kynningu frá HB Granda.
,,Við vorum sennilega ekki nema
fimm til sex tíma að fá þennan afla.
Lóðningar voru góðar og ef þetta
helst svona þá eru horfurnar góð-
ar,“ segir Róbert Axelsson, en hann
var skipstjóri Ingunnar í veiðiferð-
inni.
Töluvert er af skipum á veiðislóð-
inni fyrir austan og enn sem komið
er hefur lítið fengist af síld með
makrílnum. Ekki er vitað til þess að
nokkurt skip sé komið á beinar síld-
veiðar og fyrir vikið mun meirihluti
norsk-íslenska síldarkvótans vera
enn óveiddur. Vonast var til að
löndun úr Faxa RE lyki á Vopna-
firði í gærmorgun en Lundey NS er
enn á miðunum undan Suðaust-
urlandi. Nú eru óveidd rúmlega
8.000 tonn af makrílkvóta skipa HB
Granda.
Feiknagóð makrílveiði hjá Ingunni AK
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist
nú 36,2% samkvæmt niðurstöðum
könnunar MMR sem birtar voru í
gær. Minnkar stuðningur því lítillega
samanborið við 38,0% í síðustu könn-
un sem lauk 23. júní. Könnunin var
gerð á tímabilinu 28. til 31. júlí 2014.
Fylgi Framsóknar eykst
Fylgi Framsóknarflokksins jókst
lítillega á tímabilinu, en hann mælist
nú með 11,8% fylgi en var með 9,5%
fylgi í júní. Sjálfstæðisflokkurinn fer
úr 25% fylgi niður í 24,1%, en hann
nýtur samt sem áður mests stuðnings
flokkanna. Á hæla honum er Björt
framtíð með 19,2% fylgi, en var með
21,8% í síðustu könnun. Fylgi Sam-
fylkingar mælist nú 17% en var 16,5%
í síðustu könnun. Framsóknarflokk-
urinn er með fjórða mesta fylgið,
11,8% en Vinstri græn eru á svipuð-
um slóðum með 11,6% fylgi. Píratar
reka lestina hjá þingflokkunum, með
9,6% stuðning. Það er þó aukning frá
síðustu könnun, þegar stuðningur við
Pírata mældist 8,3%. Fylgi annarra
flokka mældist undir 2%.
Einstaklingar 18 ára og eldri úr
hópi álitsgjafa MMR voru úrtak
könnunarinnar.
Færri styðja
ríkisstjórnina
Sjálfstæðisflokkur stærstur og Björt fram-
tíð er næststærst Fylgi Framsóknar eykst
Morgunblaðið/Golli
Ríkisstjórnin Stuðningur við ríkisstjórnina minnkað frá síðustu könnun.