Morgunblaðið - 16.08.2014, Qupperneq 1
! "
$
%
!
&
&
L A U G A R D A G U R 1 6. Á G Ú S T 2 0 1 4
Stofnað 1913 190. tölublað 102. árgangur
TÓMAS MEÐ ÚT-
GÁFUTÓNLEIKA
Á JAZZHÁTÍÐ
ÁRLEGUR ÚTIMARKAÐUR
SNARFARAHÖFN 10MANNABÖRN 38
Morgunblaðið/Kristinn
Aukin landvinnsla Skipakaupin endur-
spegla m.a. breyttar áherslur við veiðar.
Samanlagt nemur fjárfesting ís-
lenskra fyrirtækja í nýsmíðuðum
fiski-, flutninga- og þjónustuskipum
rúmum 50 milljörðum króna á síð-
ustu tveimur árum. Þetta kemur
fram í greiningu Íslenska sjávar-
klasans.
Við bankahrunið 2008 var fjár-
festingarþörf útgerða í nýjum skip-
um orðin töluverð. Í kjölfar banka-
hrunsins var eiginfjárstaða banka
neikvæð um 80 milljarða króna í
árslok 2008. Hún hefur batnað
verulega og nam 107 milljörðum
við árslok 2012.
Fjárfestingarnar endurspegla
ekki aðeins aukna fjárfestingar-
getu heldur einnig breyttar
áherslur fyrirtækjanna, sem nú
draga úr vægi sjófrystingar en efla
í staðinn landvinnslu sína. »18
Fjárfest fyrir 50
milljarða í skipum
Erfið ár fyrir ríkissjóð
» Stærstur hluti tímabilsins
sem samantektin nær til var
afar erfiður í rekstri ríkissjóðs.
» Skv. ríkisreikningi 2012 var
uppsafnaður halli ríkissjóðs
2008–12 alls 604 milljarðar.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárheimildir til fjölda ríkisstofnana
hækkuðu í mörgun tilfellum um
meira en 50% á árunum 2007 til 2012.
Tímabilið spannar 72 mánuði og
heyrir þar af 51 mánuður undir sam-
dráttarskeiðið mikla frá því að efna-
hagshrunið varð haustið 2008.
Þetta má lesa út úr samantekt
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins og eins
fjögurra fulltrúa í hagræðingarhópi
ríkisstjórnarinnar. Hann segir þetta
sýna að ekki hafi verið eingöngu for-
gangsraðað í þágu grunnþjónustu
eins og haldið hafi verið fram.
„Það kom manni á óvart þegar
maður fór yfir þessar tölur að sjá
sérstaka áherslu á utanríkisþjón-
ustuna og vissar undirstofnanir
umhverfisráðuneytisins og eftirlits-
stofnanirnar. Þær koma oft mun
betur út úr þessu heldur en heil-
brigðisþjónustan,“ segir Guðlaugur
Þór. Má í því efni nefna að hækkun
fjárheimilda vegna ýmissa verkefna
utanríkisráðuneytisins nam 287% á
tímabilinu frá 2007 til 2012. Þá nam
hækkunin hjá Jafnréttisstofu 94%.
MJuku umsvifin »14
Ríkisstofnanir þöndust út
Fjárheimildir til fjölmargra ríkisstofnana jukust um yfir 50% árin 2007–2012
Þingmaður segir tölurnar sýna að heilbrigðismálin hafi ekki verið í forgangi
Morgunblaðið/Ómar
Salat Hafberg Þórisson í Lamb-
haga er með mörg járn í eldinum.
Hafberg Þórisson er að tvöfalda
gróðrarstöðina Lambhaga í Reykja-
vík. Það gerir hann með því að
byggja nýtt 7.000 fermetra gróður-
hús. Á síðasta ári stækkaði hann
stöðina um 3.000 fermetra, þannig
að flatarmál undir gleri hefur marg-
faldast á stuttum tíma.
Nýju gróðurhúsin verða tekin í
notkun í október. Þá hyggst Haf-
berg hefja ræktun á nýjum teg-
undum blaðsalats, en auk hins hefð-
bundna Lambhagasalats eru ýmsar
tegundir matjurta ræktaðar í stöð-
inni. Hann telur að markaður sé
fyrir aðrar tegundir, meðal annars
af öðrum litum en þeim græna.
Einnig skapist betri aðstaða fyrir
starfsfólk að skipuleggja ræktunina.
Hafberg er með fleira á prjón-
unum. Hann er í samstarfi við hol-
lenskt fyrirtæki að þróa nýja aðferð
til að rækta grænmeti utanhúss. Er
hann þegar byrjaður að undirbúa
uppbyggingu aðstöðu fyrir ræktun-
ina í gróðrarstöðinni Lundi í Mos-
fellsdal. Hann segist myndu vera
lengra kominn með þetta verkefni ef
hann hefði haft auka orku og fleiri
klukkustundir í sólarhringnum. »12
Tvöfaldar matjurtahúsin
Stórhuga uppbygging í Lambhaga Ný ræktunaraðferð
Eftir höfðinu dönsuðu limirnir á kaffihúsinu
Kaffitári í Bankastrætinu og var ekki annað að
sjá en að gestirnir lifðu sig inn í dansinn þegar
ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Fullt
tilefni er til að stíga dansinn þessa dagana í
borginni því Jazzhátíð Reykjavíkur hófst síðast-
liðinn fimmtudag og danshátíðin Reykjavik
Dance Festival er á næstu grösum. Aðrir kaffi-
húsagestir voru uppteknir í tækniheimum.
Dansinn stiginn í kringum tölvurnar á Kaffitári
Morgunblaðið/Eggert
Lifandi mannlíf í miðborg Reykjavíkur
Nú sinna 112 manns samfélags-
þjónustu í stað afplánunar í fang-
elsi. Til samanburðar eru 146
manns í fangelsum ríkisins.
„Kosturinn við samfélagsþjón-
ustu er að dómþolinn fær að vera
með fjölskyldu og vinum, auk
þess að geta stundað vinnu eða
nám,“ segir Brynja Rós Bjarna-
dóttir, umsjónarmaður samfélags-
þjónustu hjá Fangelsismála-
stofnun.
„Við erum tveir starfsmenn
sem vinnum við að útvega dóm-
þolum vinnu í þágu samfélagsins.
Á meðan er heilt fangelsiskerfi
utan um hina sem ekki geta
fengið þennan kost.“ »6
Samfélagsþjónusta
þykir góður kostur
Rækjuskipið Sigurborg SH frá
Grundarfirði er nú við rannsóknir á
úthafsrækju fyrir Norðurlandi. Út-
gerðarfyrirtækið Soffanías Cecils-
son leggur til skipið til þessa verk-
efnis í samráði við aðrar rækju-
útgerðir. Fram hafði komið að
Hafrannsóknastofnun myndi ekki
geta sinnt því í ár vegna fjárskorts.
Stofnunin auglýsti fyrr í sumar
eftir skipum í árlegt haustrall. Þessa
dagana er verið að ganga frá samn-
ingum um leigu á tveimur skipum og
koma aflaheimildir sem greiðsla
fyrir leiguna.
Úthaldsdögum rannsóknaskip-
anna fækkar úr rúmlega 320 dögum í
fyrra í innan við 200 daga á þessu ári
og verkefni hafa verið felld niður.
„Allt sem við fellum niður getur haft
fjárhagsleg áhrif á útveginn með
lægra aflamarki eða meiri áhættu,“
segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar. Hann segir
stöðuna þrönga og afleitt að þurfa að
fella niður loðnuleiðangur í haust.
Útlit er fyrir að Árni Friðriksson
verði bundinn við bryggju það sem
eftir er af þessu ári og öðru skipanna
verði lagt allt næsta ár. »16
Lögðu til skip í rann-
sóknir á úthafsrækju