Morgunblaðið - 16.08.2014, Page 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 2014
Mánudaginn 16.
júní átti ég bókað far
með Icelandair frá
Boston til Íslands
fyrir mig og ein-
hverfan son minn.
Ég hafði ferðast til
Detroit til að sækja
drenginn minn sem
ég hafði ekki séð í 18
mánuði vegna óbil-
girni föður hans. Á
leiðinni til flugvallarins bárust
mér þau skilaboð símleiðis frá
Icelandair að ég kæmist ekki til
Íslands um kvöldið vegna verk-
falls flugvirkja. Var mér boðið að
fljúga heim 18. júní. Mér brá við
tíðindin og tók þá skyndi-
ákvörðun að bíða í Detroit í stað
þess að fljúga til Boston. Taldi ég
að auðveldara yrði fyrir son minn
að dvelja á heimaslóðum. Fulltrúi
Icelandair tjáði mér að félagið
myndi endurgreiða nýja miða til
Boston. Næstu tvo tímana var ég
í panik að útvega mér lán frá Ís-
landi fyrir nýjum flugmiðum með
Delta. Verst var þó að útskýra
fyrir einhverfum syni mínum að
við þyrftum að bíða í tvo daga til
að komast til Íslands. Þeir sem
þekkja til einhverfu vita að rask-
anir á fyrirhuguðum áætlunum
orsaka kvíða og þráhyggjuspurn-
ingar.
Að fimm vikum liðnum til-
kynnti þjónustueftirlit Icelandair
mér að félagið hygðist greiða
kostnað af töfinni í Detroit, sam-
tals 66 þúsund, en ekki farmiða
fyrir mig og son minn með Delta
að fjárhæð 77 þúsund. Í sárabæt-
ur fyrir óþægindin bauð þjón-
ustueftirlitið upp á 20 þúsund
króna gjafabréf. Er ég leitaði
svara var mér tilkynnt að flug-
miðarnir frá Detroit til Boston
væru „óskyld vara“ þar sem ég
ferðaðist á tveimur aðskildum
farseðlum. Icelandair
sinnir hins vegar
ekki þeirri nútíma-
kröfu að bjóða upp á
netbókanir á vefsíðu
sinni til Detroit. Ég
óskaði eftir endur-
skoðun á ákvörð-
uninni, en Icelandair
sat fast við sinn keip.
Samanlagt fjárhags-
legt tjón mitt vegna
verkfallsins nam 143
þúsundum miðað við
útreikninga Ice-
landair og nýja flugmiða sem ég
greiddi til Boston. Gisting á flug-
vellinum í Boston í tvo daga kost-
ar 92 þúsund sem er mun dýrari
borg en Detroit. Kostnaður Ice-
landair við það tjón sem verk-
fallið olli mér var engu meiri við
það að endurgreiða mér 77 þús-
und fyrir nýja miða til Boston, en
hefði ég eytt tveimur dögum þar.
Hagnaður félagsins á síðasta ári
var 6,5 milljarðar króna. Það er
ekkert launungarmál að stór-
felldur hagnaður Icelandair var
kveikjan að verkföllum flug-
manna og flugvirkja sem olli
ómældum skaða fyrir ferða-
mannaiðnaðinn á Íslandi. Í ár eru
horfur á að ferðamenn nái einni
milljón. Icelandair er að stærst-
um hluta í eigu banka og lífeyr-
issjóða. Miðað við þá reynslu sem
landsmenn hafa af stjórn þessara
stofnana fyrir hrun er ekki laust
við að óhug setji að manni þegar
gróðavíma lætur á sér kræla. Í
áratugi héldu Íslendingar félag-
inu uppi með því að greiða hærra
verð fyrir flugmiða en erlendir
ferðamenn. Ég þori ekki að full-
yrða hvort svo sé ennþá. Vegna
EES-tilskipana má ekki mismuna
erlendum ferðamönnum með
gjaldtöku. Það virðist hins vegar
í lagi að mismuna Íslendingum
með einokun á Ameríkuflugi. Það
er að sjálfsögðu í andstöðu við
heilbrigða viðskiptahætti að leyfa
einokun eins flugfélags á flugleið
til annarrar heimsálfu. Skúli Mo-
gensen, forstjóri WOW, stendur
nú í málaferlum við Isavia og
Icelandair. Vegna samræmdra
evrópskra reglna sem lögfestar
eru hér á landi er úthlutun af-
greiðslutíma í Keflavík í höndum
óháðs samræmingarstjóra. Ís-
lendingar hafa sumsé ekkert um
það að segja hvort annað flug-
félag en Icelandair fær að fljúga
til Bandaríkjanna, það er á valdi
einhverrar stofnunar í Danmörku
sem enginn Íslendingur veit haus
né sporð á. Síðastliðin 22 ár hef
ég átt víðtæk viðskipti við Ice-
landair í Ameríkuflugi. Sam-
kvæmt reikningum sendum á net-
fang mitt hef ég greitt samtals
1.731.399 krónur til Icelandair
síðustu tvö árin í farmiðakaup
fyrir mig og börnin mín. Eina
komma sjö milljónir á tveimur
árum. Þessar tíðu ferðir eru til
komnar vegna dómsúrskurða í
Michigan um umgengnisrétt á Ís-
landi og í Bandaríkjunum. Það
gefur auga leið að ég hef skuld-
sett sjálfa mig upp í rjáfur til að
virða úrskurðina. Í eintómum
barnaskap trúði ég því að ég
hefði viðskiptavild hjá Icelandair.
Ánægja viðskiptavina er í fyr-
irrúmi hjá fyrirtækjum sem eiga
í samkeppni. Einokunarfyr-
irtækið Icelandair veit hins vegar
að ég verð að fljúga með því
áfram, hvort sem mér líkar betur
eða verr. Ég trúði því líka að Ice-
landair hefði skilning á aðstæðum
móður sem er strand í tvo daga
með fatlaðan son sinn, ekki síst
þar sem félagið styður langveik
börn. Ég hef að mestu unnið lág-
launastörf með einhverfum börn-
um og unglingum frá því ég flutti
til Íslands. Það tekur mig marga
daga að vinna fyrir þeim 77 þús-
undum sem ég skulda ættingjum
fyrir nýja farmiða til Boston.
Fyrirsvarsmönnum Icelandair
væri hollt að hafa í huga að þeg-
ar þeim er treyst fyrir einok-
unaraðstöðu á stórum markaði
ber þeim að beita valdi sínu af
varúð og varast hroka.
Ég ætla að bjóða stjórn Ice-
landair Group í hádegisverð fyrir
20 þúsund króna gjafabréfið mitt.
Gjafabréfið dugir hvort sem er
engan veginn til að bæta mér og
einhverfum syni mínum 48
klukkustunda erfiða bið og þann
ómælda tíma og hugarangur sem
farið hafa í samskipti mín við
Icelandair síðustu vikurnar.
Valdníðsla Icelandair
í skjóli einokunar
Eftir Margréti
Jónsdóttur » Í sárabætur fyrir
óþægindin bauð
þjónustueftirlitið upp á
20 þúsund króna gjafa-
bréf.
Margrét Jónsdóttir
Höfundur er lögfræðingur, M.Ed í
sérkennslufræðum og atferlisfræð-
ingur (BCBA).
Þóroddur S. Skaptason lögg. fasteignasali
gardatorg@gardatorg.is
www.gardatorg.is
GARÐATORGI 7
210 GARÐABÆ
Sími 545 0800
Glæsilegt og mjög vandað einbýlishús (lögbýli) á 1,83 ha eignalóð í landi Torfastaða í Fljótshlíð,
samtals 177,3 fm. Eignin skiptist í 119,0 fm íbúðarahús, 47,3 fm gestahús og 11 fm gufubað
auk sólskála sem er ekki inní fermetratölu. Timburhús með steyptum sökklum.
Sölumaður: Þóroddur s. 868 4508
TIL SÖLU - HLÍÐARBAKKI Í FLJÓTSHLÍÐ
Opið hús sunnudaginn 17. ágúst kl. 14-15
OP
IÐ
HÚ
S
ÍSALIND – KÓPAVGUR
Til sölu glæsilegt einbýlishús við Ísalind í Kópavogi. Húsið er timburhús, stærð
159,7 fm auk þess 41,9 fm bílskúrs. Vandaðar innréttingar, glæsilegur
garður. Frábær staðsetning .
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar,
sjá einnig fasteignamidstodin.is
HLÍÐARBAKKI – FLJÓTSHLÍÐ
Til sölu Hlíðarbakki, lögbýli Fljótshlíð. Glæsilegur vandaður húsakostur sem
gefur ýmsa möguleika. Óvenju fagurt umhverfi með glæsilegu útsýni.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar.
HRAFNAGIL
Fasteignamiðstöðinn er með til sölu lögbýlið Hrafnagil í Ölfusi staðsett rétt
austan við Hveragerði. Góður húsakostur, hitaveita og þriggja fasa rafmagn.
Landstærð tæpir fjórir hektarar af frjósömu landi.
Landið að stórum hluta ræktuð tún. Allt landið rafgirt.
Möguleiki á meira byggingarmagni á landinu ef það hentar.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar.
Sjá einnig fasteignamidstodin.is
- með morgunkaffinu
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Skógarás 3, 204-6560, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Hrefna Sigurðar-
dóttir og Hilmar Jón Kristinsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður,
Reykjavíkurborg, Skógarás 3,húsfélag, ogTrilla ehf, miðvikudaginn
20. ágúst 2014 kl. 11:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
15. ágúst 2014.