Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Page 13
marktæka gagnrýni frá fem-
ínistum. Ég hef skrifað nokkrar
greinar í Kvennablaðið þar sem
ég gagnrýni kvenhyggju og fem-
ínistar hafa samband við rit-
stjórn, lýsa hneykslun sinni og
krefjast þess að greinin verði
fjarlægð. Þær fá alltaf sama
svarið: Ykkur er velkomið að
svara. En þær svara ekki. Ég
fæ enga málefnalega gagnrýni,
bara þöggunartilburði og fullyrð-
ingar um að ég viti ekki hvað
ég sé að segja, ég misskilji fem-
ínismann og sé með útúrsnún-
inga, án þess að nokkur geti út-
skýrt í hverju þeir
útúrsnúningar eða misskilningur
felist.
Ef maður fær gagnrýni sem
byggir á rökum þá er hægt að
nota hana til að fara lengra með
umræðuna en rökvillur og skít-
kast er ekki eitthvað sem maður
þarf að taka til sín. Ég hef
reynt að halda uppi samræðu
við femínista en það þýðir ekk-
ert.“
Er andstaða þín við femínisma
hluti af andstöðu þinni við póli-
tíska rétthugsun og forræð-
ishyggju?
„Já, algjörlega. Það sem fer
mest fyrir brjóstið á mér er
yfirvaldshyggjan sem gegnsýrir
femínistahreyfinguna. Hugmyndin
er sú að það eigi að berjast fyr-
ir réttindum kvenna og betri
heimi fyrir konur með því að
taka fram fyrir hendurnar á
fólki. Stóra systir á að ákveða
hvað okkur sé fyrir bestu.“
Finnst þér pólitísk rétthugsun
vera ríkjandi á mjög mörgum
sviðum?
„Nú er ég frekar vinstri sinn-
uð, en mér finnst pólitísk rétt-
hugsun og forræðishyggja ein-
kenna vinstri hreyfinguna í of
miklum mæli. Sérstaklega er
þetta áberandi meðal femínista.
Ég hef ekki séð neitt gott koma
út úr þessari óskaplegu fordæm-
ingu á því að fólk hafi skoðanir
sem falla ekki að fyrirfram
ákveðnum gildum. Mér finnst til
dæmis rasismi ömurlegur en það
er fulllangt gengið þegar má
ekki segja brandara um blökku-
menn eða aðra hópa án þess að
það sé flokkað sem hat-
ursáróður. Það er líka mjög
slæmt ef fólk má ekki tjá vond-
ar skoðanir. Ég er algjörlega
ósammála Snorra í Betel og
finnst skoðanir hans á samkyn-
hneigð viðbjóðslegar en mér
finnst enn verra ef það á að
banna fólki eins og honum að
tjá skoðanir sínar. Vondum skoð-
unum á að svara með rökum en
ekki pólitískum ofsóknum.“
Þú skrifar mikið af greinum á
netið og færð viðbrögð þar.
Finnst þér umræðan á netinu
oft verða sóðaleg?
„Hún verður oft sóðaleg en
það er bara gjaldið sem við
borgum fyrir það að allir hafi
aðgang að umræðunni. Við get-
um ekki ætlast til þess að ein-
ungis þeir sem eru smekklegir,
málefnalegir og kurteisir fái að
tjá sig. Annaðhvort erum við
með samfélag þar sem allir fá
að tjá sig sem þýðir að við tök-
um subbuskapinn með eða þá
við erum með samfélag þar sem
lítill hópur stjórnar allri um-
ræðunni.“
Of mikil refsihyggja í
réttarkerfinu
Þú rakst á sínum tíma galdra-
búð á Vesturgötu. Ertu trúuð á
galdra?
„Ég hef gaman af gömlum
norrænum rúnum og spekinni í
kringum þær. Búðin var aðallega
stofnuð í kringum rúnagaldur og
ýmsar jurtir. Galdratrú er víð-
tæk og innan hennar rúmast alls
konar vitleysa og hjátrú en hún
snýst alltaf um þrá mannsins til
að hafa stjórn á eigin örlögum.
Ég held að mannshugurinn búi
yfir gífurlegum hæfileikum sem
við vitum lítið um ennþá, en ég
held ekki að það sé neitt yf-
irnáttúrulegt. Hugur okkar hefur
áhrif á veruleikann og okkur
finnst það dularfullt af því að
við skiljum það ekki. Sálarfræðin
og skildar greinar hafa að ein-
hverju leyti varpað ljósi á þetta,
það hefur til dæmis komið í ljós
að fólk getur aukið líkur sínar á
því að fá það sem það vill með
því að nota réttar líkamsstell-
ingar og undirbúa sig andlega.
Ég held að galdratrú fyrri tíma
hafi að nokkru leyti verið sjálfs-
styrking en í dag heitir það sál-
fræði. Öll vísindi spretta úr dul-
speki og galdri, vísindin reyna
svo að skýra eða afsanna það
sem við teljum okkur vita.“
Þú lokaðir galdrabúðinni og
fluttir til útlanda. Af hverju?
„Árið 2009 var engin rekstar-
grundvöllur fyrir búðinni og ég
ákvað að loka henni áður en ég
lenti í því að geta ekki borgað
birgjunum og leigusalanum. Ég
flutti til Danmerkur, aðallega af
því að ég hafði ekki geð á að
taka þátt í samfélagi sem var
sýnilega gegnsýrt af spillingu.
Ég bý í Glasgow í dag því mað-
urinn minn, Einari Stein-
grímsson, vinnur þar. Við erum
mjög ánægð í Glasgow. Í ágúst
hef ég nám í lögfræði við Há-
skóla Íslands en þar sem ég vil
helst vera hjá Einari reyni ég
að taka eins mikið utan skóla og
hægt er.“
Hvernig lögfræðingur viltu
vera?
„Ég hef mestan áhuga á
mannréttindamálunum og get
ekki sagt að ég sé hrifin af því
hvernig við Íslendingar stöndum
okkar þar. Við ættum að hafa
allar forsendur til að standa
okkur virkilega vel en víða er
pottur brotinn. Hvað eftir annað
hefur það gerst að íslenskir
dómstólar og ríkið hafa fengið
ákúrur frá alþjóðlegum mann-
réttindadómstólum og samtökum.
Þetta er nokkuð sem menn ættu
virkilega að taka til athugunar
en lítill áhugi virðist vera á því.
Guðmundar- og Geirfinnsmálið er
svo einn af svörtu blettunum í
sögu þjóðarinnar, það er skamm-
arlegt að ekki skuli ekki vera
búið að taka það mál upp fyrir
löngu.
Mér finnst líka ríkja of mikil
refsihyggja í réttarkerfinu, sér-
staklega þegar verið er að refsa
fólki fyrir að vera alkóhólistar. Í
síðustu viku birti Kvennablaðið
grein eftir konu sem situr í
kvennafangelsinu í Kópavogi.
Hennar glæpur var sá að fara
inn í verslanir og drekka úr
kardimommudropaglösum. Þetta
er flokkað sem auðgunarbrot og
hún dæmd í eins árs fangelsi.
Getum við litið á þetta sem
glæp? Það er fullt af fólki í
fangelsi sem þarf aðstoð en ekki
refsingu.
Sumarið 2000 vann ég sem
fangavörður og fékk innsýn í
mjög forpokaðan og undarlegan
hugsunarhátt. Á Litla-Hrauni var
þá algengt viðhorf, sérstaklega
meðal yfirmanna, að það væru
bara til tvær tegundir af fólki:
fólk og fangar. Allur ytri aðbún-
aður var í lagi en lítið var unnið
með fólk og nánast ekkert gert
til að koma því út í samfélagið í
betra ástandi. Ég held að þetta
hafi skánað og að nú sé meiri
áhersla lögð á betrun, en samt
engan veginn nógu mikið.“
Heftandi að þurfa
blessun hópsins
Þú ert alveg óhrædd við að
segja skoðanir þínar. Hefurðu
alltaf verið þannig?
„Ég var alltaf fremur opinn
og frakkur krakki og átti auð-
velt með að tjá mig. Ég hef lík-
lega verið átta ára þegar ég
fékk fyrst ákúrur fyrir þess-
háttar framhleypni. Það var í
barnaskóla og við krakkarnir
áttum að telja upp allt það sem
Guð hefði skapað. Ég taldi upp
eitthvað og skrifaði að Guð hlyti
líka að hafa skapað vond dýr –
í merkingunni sníkjudýr – og
sjúkdóma. Kennarinn kallaði
þetta hortugheit en það varð nú
ekkert alvarlegra en það.
Ég hef aldrei lent í sérstökum
vandræðum fyrir að hafa skoð-
anir sem víkja frá norminu.
Hvað er það versta sem getur
gerst ef þú segir skoðun þína?
Jú, einhver getur rekið þessa
skoðun ofan í þig – en um leið
ertu búin að fá réttar upplýs-
ingar og getur myndað þér nýja
skoðun og haft rétt fyrir þér.
Eða þá að einhver verður reiður
við þig og hvað með það? Er þá
búið að rústa lífi þínu? Á það
að þykja gott að fólk sé ekki
reitt við þig og haldi að þú haf-
ir allt önnur viðhorf en þú hef-
ur?
Mér finnst fólk alltof hrætt
við að segja skoðanir sínar. Yf-
irleitt hefur það ekki vondar af-
leiðingar að hafa skoðun og
segja hana. Og þegar ég tala
um skoðanir í þessu sambandi
er ég auðvitað ekki að réttlæta
hótanir, ærumeiðingar og lygar.
Ég á við að þegar einhver sem
tekið er mark á segir tóma
þvælu og jafnvel eitthvað sem
getur verið skaðlegt, þá er ekk-
ert hættulegt að benda á það,
ekki heldur þótt það sé einhver
sem manni líkar vel við. Það er
kannski að einhverju leyti þægi-
legt að vera í ákveðnu liði en
það hlýtur að vera heftandi að
þurfa blessun hópsins til að þora
að tjá sig og ég held líka að
hjarðhugsun geri samfélaginu
meira illt en gott.“
„Vondum skoðunum á að
svara með rökum en ekki
pólitískum ofsóknum,“
segir Eva Hauksdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
* Það sem fer mest fyrir brjóstið á mérer yfirvaldshyggjan sem gegnsýrirfemínistahreyfinguna. Hugmyndin er sú að
það eigi að berjast fyrir réttindum kvenna
og betri heimi fyrir konur með því að taka
fram fyrir hendurnar á fólki. Stóra systir á
að ákveða hvað okkur sé fyrir bestu.“
3.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Síðumúla 33
Sy ru sson Hönnunar hús
Klassísk og falleg íslensk hönnun
Syrusson - alltaf með lausnina
Fannar60 Delux
Verð frá ISK 199.200,-
Mikið úrval áklæða og leðurs
Fannar60
Verð frá ISK 98.500,-
Mikið úrval áklæða og leðurs