Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Blaðsíða 49
il vinna liggur að baki útgáfu bókarinnar og
uppsetningu heimasíðunnar en fjölskylda
Gísla hefur séð um þá vinnu. Heimasíðan og
bókin eru afmælisgjöf til Gísla frá börnum
hans. „Ég veit minnst um þetta, ég er í list-
inni,“ segir Gísli en hann hóf listamannsferil
sinn af alvöru eftir að hann hætti dagvinnu
sinni sem vélfræðingur. „Listin hafði hins
vegar lengi blundað í mér, bæði málun og
eins að sjóða saman listaverk úr járni og
gleri,“ segir Gísli. „Ég hafði áhuga á þessu
sem ungur maður og bjó til skúlptúra þegar
ég var að læra. Járn og gler fannst mér
mjög spennandi. Ég var auðvitað að vinna á
þessum tíma og gat því ekki einbeitt mér
að listinni, en löngunin til listarinnar greip
mig og ég sinnti því kalli.“
Reynslan nýtist í listinni
Í afmælishófi í Iðnó á laugardag verður
heimasíðan kynnt gestum og útgáfa bók-
arinnar sömuleiðis en einnig verða til sýnis,
í u.þ.b. viku, álplötur sem á eru ljósmyndir
af verkunum. „Plöturnar eru blásnar með
gleri og lakkaðar, þannig að það kemur svo-
lítill fiðringur í þær,“ segir Gísli kíminn.
Sem fyrr sagði er Gísli menntaður vél-
fræðingur og starfaði sem slíkur alla starfs-
ævina. Hann segir þá reynslu nýtast í glímu
sinni við þau efni sem hann hefur valið í
skúlptúrana. Járnið er þar ávallt í forgrunni
en hann notar önnur efni með járninu, t.d.
gler og tré. „Kunnáttan nýtist. Maður verð-
ur t.d. að vita hversu mikinn hita efnin
þola, hvernig þau spila saman og hvernig
nota má tæki til vinnslunnar. Þessi kunn-
átta verður öll að vera til staðar í lista-
manninum sjálfum. Annars segja sumir að
það sé ekkert endilega betra að vera
menntaður þegar maður skapar list. Það er
nefnilega svo merkilegt að þeir sem eru
ólærðir gera oft eitthvað sem enginn lærður
listamaður myndi láta sér detta í hug að
gera. Útkoman úr slíku verður oft mjög
skemmtileg.“
Gísli vinnur enn að list sinni þrátt fyrir
að standa brátt á níræðu. Vinna með járn
er oft erfiðisvinna og blaðamanni er spurn
hvort listsköpunin taki ekki á? „Jú, hún get-
ur gert það. Sérstaklega er erfitt að setja
járnið í gegnum gler. Oft má litlu muna að
maður brjóti allt verkið við þær tilfær-
ingar,“ segir Gísli en kveðst þó sem betur
fer ekki hafa lent í því enn. „Maður myndi
þá bara byrja upp á nýtt.“
Lætur listina ögra sér
Listamaðurinn hefur gaman af vinnu sinni.
„Þetta er ofsalega gaman. Að láta eitthvað
ögra mér sem enginn hefur áður gert og
leysa það síðan,“ segir Gísli og á þar við
sérstakar aðferðir sem hann notar er hann
vinnur saman járn og gler, sem eru ólík
efni að eiginleikum og því ekki hlaupið að
því að blanda þeim saman í skúlptúr. „Ég
hef ekki haft hátt um aðferðirnar,“ segir
Gísli og hlær en bætir því við að hann ætli
ekki með þær í gröfina. Hann hefur síðustu
ár kennt gamlar aðferðir við járnsuðu í
Myndhöggvarafélaginu.
Spurður að því hvernig hann hafi upp-
haflega fengið þá hugmynd að blanda sam-
an járni og gleri, svarar Gísli einfaldlega:
„Það kitlaði mig.“ Hugmyndir að verkum
sínum segist Gísli einkum fá úr umhverfinu.
„Gott dæmi um þetta er Ráðhúsið sem ég
gerði skúlptúr um. Maður sér oft eitthvað
sem verður manni innblástur. Ég gerði til
dæmis skúlptúr af Ingólfi Arnarsyni. Það
getur verið að enginn sjái að fyrirmyndin sé
Ingólfur en fyrir mér er það ekki aðalatriði.
Skúlptúrinn stendur sjálfur og þarf ekki að
æpa af hverju hann er. Þegar ég skapa er
mér fyrst og fremst í mun að skúlptúrinn
sé fallegur og að fólk hafi ánægju af að
horfa á hann,“ segir Gísli að lokum.
Skannið QR-kóðana að neðan með
snjallsíma til að skoða verk Gísla.
Ráðhúsið Ingólfur ArnarsonRósavasinn
3.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari kemur fram á
næstu stofutónleikum
Gljúfrasteins 3. ágúst. Hún
mun flytja Sónötu í a-moll nr. 2 fyrir
einleiksfiðlu eftir Johann Sebastian
Bach. Tónleikarnir hefjast kl. 16.
2
Sunnudaginn 3. ágúst opnar
Gréta Berg Bergsveins-
dóttir myndlistarsýningu í
anddyri Perlunnar. Sýningin
ber yfirskriftina „Leyndardómar
steinanna“. Á sýningunni eru 20 olíu-
málverk sem flest túlka það sem
Gréta sér í steinum sem hún hefur
fundið úti í náttúrunni.
4
Ástæða er til að minna á tón-
listarhátíðina Innipúkann,
sem fram fer öll kvöld helg-
arinnar á skemmtistöðunum
Húrra og Gauknum. Þetta er í
þrettánda sinn sem hátíðin er haldin
en dagskráin er sérlega metnaðarfull.
5
Listagleðin, árlegur Lista-
mannadagur Álfagarðsins í
Hellisgerði, hefst kl. 13,
laugardaginn 2. ágúst. Um
fjölskylduhátíð er að ræða en meðal
viðburða verða álfaganga, lýru- og
sekkjapípuleikur, söngur og dans.
Boðið verður upp á spáspilalestur og
ungir sem aldnir listamenn verða að
störfum hér og þar í Hellisgerði.
3
Á næstu tónleikum sumarjazz-
tónleikraðar veitingahússins
Jómfrúarinnar, laugardaginn 2.
ágúst, kemur fram söngkonan
Kristjana Stefánsdóttir ásamt
kvartett saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar. Tónleikarnir hefjast kl. 15.
MÆLT MEÐ
1
stáli af blöðruhundi – er það metverð fyrir
verk eftir lifandi listamann.
Gagnrýnandi The New York Times segir
sýninguna hrífandi, þrátt fyrir að hún sé
ójöfn og inn á milli séu „meistaraverk“. Rýn-
ir The New Yorker tekur enn dýpra í árinni.
Hann segir að kalla mætti þá peningadrifnu
tíma sem við höfum lifað í listinni „Koons-
tímann“ og segir að sýningin sanni að ekki
sé hægt að hæðast að verkum listamannins,
þau búi yfir mikilli fagurfræðilegri dýpt og
sýni hvers vegna safnarar þrái að eignast
verk eftir hann. Og víst er áhugavert að
ganga um sali Whitney-safnins og velta þess-
um einstaka, á köflum háðulega og oftast
nær furðulega ögrandi sköpunarheimi fyrir
sér. Af því má enginn listunnandi sem held-
ur til New York á næstu mánuðum missa.
Listamaðurinn Jeff Koons við nýjasta verkið á yfirlitssýningunni, hið stóra „Play-Doh“ sem gagnrýnandi The New York Times segir „meistaraverk“.
AFP
Við upphaf ferilsins stillti Koons ryksugum upp í plexiglerkössum og vöktu verkin þegar athygli. Vörður við „Lobster“, verk úr plasthúðuðu áli.