Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Blaðsíða 34
Á
ttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur
að fatakaupum?
Mér þykir alltaf gott að kaupa það sem gengur við fleira
en eina flík sem ég á fyrir.
Átt þú þér einhverja tískufyrirmynd?
Nei, í rauninni á ég enga sérstaka fyrirmynd en mér finnst allir
flottir sem eru með sinn eigin persónulega stíl.
Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut?
Það mun vera skoskt ullarsjal sem ég
keypti mér eitt sinn í London. Sjalið
gengur við allt sem kemur fyrst upp í
hugann. Svo er ýmislegt skart og tösk-
ur sem eru í uppáhaldi og ég nota
mikið.
Hver hafa verið bestu kaupin þín
fatakyns?
Ég hugsa að bestu kaupin séu án
efa leðurbuxur mínar sem ég er
búin að nota mjög mikið.
Hverju er mest af í fataskápn-
um?
Gallabuxum og eiginlega öllu,
hann er að springa!
Hvert er þitt eftirlætistísku-
tímabil og hvers vegna?
Mér þykir 50s - 60s alltaf flott.
Mad men er í miklu uppáhaldi; þar
eru línurnar kvenlegar og elegant.
Hver er uppáhaldsverslunin þín?
Þær eru margar og ólíkar, ég leitast
við að finna það sem mér þykir fallegt
hverju sinni. Annars versla ég mest í út-
löndum.
Hvaðan sækir þú innblástur?
Alls staðar, lífið er tíska!
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú
tókst þátt í?
Ég átti Buffalo-skó, á sínum tíma virkaði það
eins og góð hugmynd.
Áttu þér einhvern uppá-
haldsfatahönnuð?
Það er mikið til af flottum
hönnuðum og fremur erfitt
að gera upp á milli þeirra.
Elma segir fataskápinn
við það að springa
vegna offramboðs
fatnaðar og þá sér-
staklega gallabuxna.
Elma Lísa Gunnars-
dóttir leikkona er
alltaf glæsileg til fara.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LEÐURBUXURNAR Í MIKLU UPPÁHALDI
Lífið er tíska
ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR LEIKKONA ER ALLTAF FLOTT
TIL FARA. ELMA ER MEÐ FÁGAÐAN OG PERSÓNULEGAN
FATASTÍL EN HÚN SÆKIR INNBLÁSTUR ALLS STAÐAR AÐ.
ELMA SEGIST EIGA GRÍÐARLEGT MAGN AF FATNAÐI OG
FATASKÁPURINN SÉ VIÐ ÞAÐ AÐ SPRINGA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Elma heldur upp á ára-
tuginn 1950 og 1960 og
þá sérstaklega stílinn í
sjónvarpsþáttunum
Mad Men.
Elma heldur upp á leðurbux-
urnar sínar sem hún segir hafa
verið mikið notaðar undanfarið.
Elma segir skoskt ullarsjal
sem hún keypti í London eina
af sínum uppáhaldsflíkum.
Tíska
Nýr listrænn stjórnandi Hermès
AFP
*Franska tískuhúsið Hermès hefur ráðið nýjan listrænanstjórnanda yfir kvenfatalínu hússins. Nadège Vanhee-Cybulski, 36 ára, tekur við af Christophe Lemaire sem starf-að hafði sem listrænn stjórnandi kvenfatalínunnar frá árinu2010. Þrátt fyrir að Vanhee-Cybulski sé lítt þekkt innantískuheimsins hefur hún starfað fyrir tískuhús á borð viðThe Row, Céline og Maison Martin Margiela. Fyrsta lína
Vanhee-Cybulski fyrir Hermès verður sýnd í mars og er það
vetrarlínan 2015/2016.