Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Síða 20
Jákvæð áhrif íþróttaiðkunar eru óyggjandi og sýnt hefur veriðfram á að íþróttaiðkun bætir líðan iðkenda á margvíslegan hátt,rýfur félagslega einangrun fólks og minnkar líkur á vímuefn-
anotkun. Þórður Ólafsson, framkvæmdastjóri Íþróttafélags fatl-
aðra í Reykjavík, tekur heilshugar undir jákvæð áhrif íþróttaiðkunar
og -starfs en íþróttafélög fatlaðra um allt land hafa lyft grettistaki
á undanförnum áratugum í að gera fötluðum einstaklingum kleift að
stunda íþróttir til jafns við aðra í samfélaginu. „Íþróttir eru fyrir
alla og við gerum engan greinarmun á íþróttastarfi fatlaðra og öðru
íþróttastarfi. Allir jákvæðir þættir íþrótta eiga jafnt við um okkur
öll, hvaða aldri sem fólk er á og hvort það býr við einhverja fötlun
eða ekki.“
Frumkvöðlastarf í fjörutíu ár
Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík fagnaði 40 ára afmæli sínu í vor
en félagið var stofnað 30. maí 1974 og á þeim tíma hefur starfið
vaxið og dafnað með hverju árinu. Þórður segir það ánægjuefni
hversu vel hefur tekist til enda íþróttastarfið hjálpað fjölda ein-
staklinga að rjúfa félagslega einangrun sína, bætt líkamlegan styrk
þeirra og hjálpað til við að auka sjálfstraust og um leið andlega
heilsu. „Við erum að takast á við svo margt í íþróttastarfinu sem
hjálpar fólki og bara það að koma og vera innan um annað fólk,
æfa með öðrum og finna það hjá sjálfum sér hvernig árangurinn
eykst gerir öllum gott,“ segir Þórður.
Starf Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík hefur sýnt og sannað mik-
ilvægi sitt. Hjá félaginu eru á þriðja hundrað iðkenda og fjöldi
sjálfboðaliða kemur að starfinu. Félagið hefur byggt upp frábæra
íþróttaaðstöðu fyrir félagsmenn sína og mun halda áfram að vera
brautryðjandi í íþróttastarfi fatlaðra á komandi árum.
Morgunblaðið/Golli
AÐ VERA ÞÁTTTAKANDI ER STÆRSTI SIGURINN
Íþróttafélag
fatlaðra í
Reykjavík
ÍÞRÓTTAFÉLAG FATLAÐRA Í REYKJAVÍK FAGNAÐI 40 ÁRA
AFMÆLI SÍNU Í VOR OG HEFUR FÉLAGIÐ VERIÐ BRAUT-
RYÐJANDI Í ÍÞRÓTTASTARFI FATLAÐRA FRÁ STOFNUN.
Íþróttafélag Fatlaðra í Reykjavík tók nýlega í notkun flottan bogfimivöll.
Á fyrstu árum ÍFR var æft og keppt í borðtennis á göngum skóla og skrif-
stofubygginga en í dag er aðstaðan öllu glæsilegri og þátttakendur fleiri.
Einbeittur íþróttamaður á ögurstundu.
Frá Íslandsmóti fatlaðra í frjálsum íþróttum en
þar falla iðulega Íslandsmet í hrönnum.
Íþróttastarfið snýst
fyrst og fremst um
góðan félagsskap.
* Íþróttafélag Fatl-aðra í Reykjavíkfagnaði 40 ára afmæli
sínu í vor. Frá stofnun
hefur f́élagið verið
brautryðjandi í
íþróttastarfi fatlaðra
Heilsa og
hreyfing
Bætum nám barnanna
Morgunblaðið/Ernir
Morgunblaðið/Ernir
*Aukin hreyfifærni barna getur hjálpað þeim ínámi og því mikilvægt fyrir foreldra að hafaþað í huga að vera duglegir að sjá til þess aðbörnin fái útrás fyrir hreyfiþörf sína. Þráttfyrir að íþróttafélög, skólar og ungmenna-félög bjóði upp á margs konar hreyfingu fyrirbörnin þurfa foreldrar líka að vera duglegir
að fara út með börnunum og leyfa þeim að
njóta sín í náttúrunni og nýta ímyndunaraflið.