Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Side 28
Jakob H. Magnússon, matreiðslumaður og eigandi Hornsins, segir þaðhafa verið meiri viðhöfn að fara út að borða þegar hann var að byrja ímatreiðslugeiranum en það er nokkurn tímann í dag. „Það þótti svo fínt og flott að fólk klæddi sig upp en nú getur maður ákveðið að skella sér bara út að borða á virku kvöldi og úr nógu er að velja,“ segir Jakob. Hornið var opnað árið 1979 og var fyrsti staður sinnar tegundar í Reykjavík en á þessum árum voru grillstaðir áberandi líkt og Askur og Sælkerinn og fínni staðir t.a.m. Naustið og Grillið. Jakob, sem er lærður matreiðslumaður á Hótel Sögu og því með klassískan bakgrunn, hafði unnið á ítölskum stað í Danmörku og flutti heim með nýjar hugmyndir í farteskinu. „Margt sem við gerðum hér var nýtt og þótti spennandi t.d. að það voru engir básar á staðnum heldur var rýmið opið og gluggarnir stór- ir og opnir sem var nú reyndar dálítið ströggl að fá leyfi fyrir meira að segja því það þótti sjást heldur mikið hér inn án gardína og hvaðeina. Á þessum tíma voru líka engir fjölskyldustaðir þar sem þjónustað var á borðin og það þótti því nýtt og öðruvísi. Svo fannst fólki spennandi að sjá bakarann baka pitsurnar fyrir framan gestina. Hvað hráefnið varðar not- aði ég að mestu leyti það sem maður fékk en pepperóní fékkst t.d. ekki og það þurfti ég því að láta kjötiðnaðarmann búa til fyrir mig og flytja sjálfur inn kaffibaunirnar í kaffivélina sem ég hafði flutt heim með mér. Í dag er úrvalið mun fjölbreyttara, sérstaklega hvað varðar grænmeti og salöt,“ segir Jakob. Hann játar því að geta orðið kallast klassískur frumkvöðull og segir skemmtilegt að hafa átt sinn þátt í að breyta veitingahúsasögu borg- arinnar. Hornið er í dag fjölskyldurekinn veitingastaður en dóttir Jakobs lærði matreiðslu hjá pabba sínum og er í dag matreiðslumeistari og sér um rekstur eldhússins og sonur hans er aðstoðarframkvæmdastjóri. Því lítur ekki út fyrir annað en Hornið muni áfram eiga sinn samastað í veit- ingahúsaflóru borgarinnar líkt og það hefur gert í ríflega 30 ár, í hjarta miðborgarinnar. Morgunblaðið/Styrmir Kári VEITINGAHÚSIÐ Í HJARTA BORGARINNAR Góður matur í fallegu umhverfi VEITINGAHÚSIÐ HORNIÐ ER Á EINUM BESTA STAÐ Í REYKJAVÍK, HLUTI AF OG UMKRINGT GAMLA BÆNUM, OG REKIÐ AF SÖMU FJÖLSKYLDUNNI Í 35 ÁR. Gestir veitingastaðarins sjá þegar pizzan er gerð en það er mikil listasýning að verða vitni að matarástinni í eldhúsinu. Matur og drykkir Grillum rétt um helgina Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Ómar *Verslunarmannahelgin er án nokkurs vafastærsta ferðamannahelgi ársins. Grillin eruað jafnaði tekin fram og ljúffengir réttir rennaniður um kverkar landsmanna. Gott er aðhafa það í huga að gegnsteikja þarf fuglakjötog svínakjöt. Hiti í miðju þarf að ná a.m.k.75°C til að koma í veg fyrir hugsanlega mat- arsýkingu. Þá skal varast að borða brenndan mat, bæði er hann vondur og óhollur. 3 góðir bitar af útvötnuðum salt- fiski grillaðir og kryddaðir með salti og pipar. Við notum ítalskt sjávarréttakrydd. JÓGÚRTMYNTUSÓSAN 1 dós jógúrt, 1 tsk. hunang, salt og pipar mynta eftir smekk Allt sett í matvinnsluvél og smakkað til. Má líka gera þetta án matvinnsluvélar, þá þarf bara að skera myntuna smátt og hræra öllu saman. GRÆNMETISRISOTTO Það á að byrja á því að gera soð með 1 lítra af vatni og 1 tening grænmetiskrafti. Svissa smátt skorinn lauk í öðrum potti og setja svo risottoið út í, soðið er svo sett út á grjónin smátt og smátt í pott- inum og þetta látið sjóða í soðinu. Svo er grænmeti steikt á pönnu, 1 dós hakkaður tómatur og 1 maukaður hvítlaukur sett út í og því næst soðna risottoið. þetta er svo borið fram heitt með fiskinum. Gott að bera fram með góðu salati. Saltfiskur Ólöf ásamt föður sínum Jakobi en bæði eru þau meistarakokkar og matreiða heimsklassa rétti. Veitingastaðurinn Hornið býður upp á gott andrúmsloft í opnu rými þar sem gestir geta slakað á yfir góðum mat í hjarta miðborgarinnar. Hornið hefur verið rekið á sama stað í borginni í 35 ár og er alls ekki á förum. PANNA COTTA ½ l rjómi ½ l Mjólk 1 dós bláberjaskyr (eða venjulegt hrært með berjapúrru) 8 msk. flórsykur 4 tsk. flórsykur 10 stór matarlímsblöð Mjólk, rjómi vanilla og flórsykur sett í pott og hitað að suðu, matarlímið linað upp í köldu vatni á meðan. Svo er matarlíminu bætt út í rjómablönduna og látið kólna örlítið. Skyrið sett í skál og hrært aðeins upp í því og svo mjólk- urblöndunni blandað varlega saman við. Sett í form og inn í kæli og látið stífna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.