Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.8. 2014
Matur og drykkir
T
apasréttir Guðbjargar nutu sín vel á fallegu handrenndu postu-
línsmatarstelli sem heitir Jökla. Það var Guðbjörg sjálf sem gerði
matarstellið en hún er hluti af hönnunarteyminu Postulínu ásamt
hönnuðinum Ólöfu Jakobínu Ernudóttur. Guðbjörg er nýkomin
frá Barcelona og því fannst henni tilvalið að bjóða upp á tapasrétti í mat-
arboðinu. „Í Barcelona er mikið um veitingastaði sem bjóða upp á tapas-
rétti og ég er svo hrifin af þeim. Það er gott úrval á þessum stöðum og
maður getur auðveldlega valið sér það sem manni finnst gott,“ segir Guð-
björg sem bauð gestum sínum upp á fjölbreytta tapasrétti. „Mig langaði
að halda matarboð sem minnti svolítið á þessa staði,“ útskýrir Guðbjörg.
„Ég er í matarklúbbi með góðum vinum, við skiptumst allaf á að halda
matarboð og allir eru með. Við erum búin að vera í þessum klúbbi í um
tuttugu ár og hjálpumst alltaf að við undirbúninginn og eldamenskuna,“
segir Guðbjörg sem deilir með lesendum uppskriftum að meðal annars
gazpacho-súpu, tapas með önd, aspasrétti og tvenns konar eftirréttum.
Guðbjörg segir undirbúninginn tiltölulega auðveldan en hún fékk hjálp
frá nokkrum úr matarklúbbnum við eldamennskuna. „Vanalega er það
einn út matarklúbbnum sem sér um að elda aðalréttinn, Valgarð Már Jak-
obsson, hann er nokkurs konar yfirkokkur. Í þetta sinn sá hann um þrjá
tapasrétti, m.a. saltfisks-tapasið,“ segir Guðbjörg að lokum.
Guðbjörg Káradóttir
var undir áhrifum frá
Barcelona þegar hún
undirbjó matarboðið.
Matarboð - Gestgjafi er Guðbjörg Káradóttir
FÉKK INNBLÁSTUR FRÁ BARCELONA
Bauð upp á
fjölbreytta
tapasrétti
LEIRKERASMIÐURINN GUÐBJÖRG KÁRADÓTTIR ER Í MAT-
ARKLÚBBI SEM HEFUR ELDAÐ REGLULEGA SAMAN Í UM
TUTTUGU ÁR. NÝVERIÐ BAUÐ GUÐBJÖRG VINUM SÍNUM
ÚR MATARKLÚBBNUM HEIM TIL SÍN OG GÆDDU GESTIR
SÉR Á LJÚFFENGUM TAPASRÉTTUM.
Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is
Gazpacho-súpa
1,5 kg ferskir tómatar, afhýddir
2 hvítlauksrif
4 msk. ólífuolía
4 msk. sérríedik
1 bolli tómatsafi úr fernu eða flösku
salt og pipar
ísmolar (má sleppa)
Bætt við þegar súpan er borin fram:
Agúrka, smátt skorin
lítill laukur, smátt skorinn
græn og rauð paprika, smátt skorin
brauðteningar
Tómatarnir eru lagðir í sjóðandi vatn og hnífi
stungið í hvern, þannig losnar hýðið frá. Þá er
miðjan hreinsuð úr tómötunum og þeir settir
í djúpa skál. Afganginum af hráefninu er svo
blandað saman við tómatana og allt maukað
saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél
þar til áferðin er silkimjúk. Smakkið til með
því að bæta pipar eða ediki við. Súpan er svo
kæld og borin fram með brauðteningum,
lauk, agúrku og papriku.