Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Blaðsíða 37
STUTT PILS VINSÆL Í FIMM ÁRATUGI
H
önnun minipilsins þótti bæði flott og praktísk og töluðu konur um að stuttu pilsin
veittu þeim aukið frelsi og auðvelduðu þeim til dæmis að hlaupa á eftir strætó. Þeg-
ar vinsældir minipilsins stóðu sem hæst sagði Quant að hún hefði einfaldlega verið
að svara kalli viðskiptavina sinna þegar hún hannaði pilsið, þeir vildu pilsin alltaf
styttri og styttri. Til gamans má geta að Quant nefndi minipilsið eftir uppáhalds bílnum sínum,
Mini Cooper.
Amerískir fataframleiðendur voru hikandi við að aðlaga sig að tískustrauminum þar sem stutt
pils þóttu ögrandi. Það var ekki fyrr en Jackie Kennedy sást í slíku pilsi að þeir ákváðu að láta
undan.
Síðan minipilsið komst í tísku hafa vinsældir þess síður en svo farið dvínandi og þykir enn
þann dag í dag flott að klæðast minipilsi.
Minipilsið er enn
vinsælt ef marka má
haust/vetrar 2014-15-
línu Louis Vuitton.
Í ÁR ERU HEILIR FIMM ÁRATUGIR SÍÐAN MINIPILSIÐ, SEM OFT ER KENNT
VIÐ BRESKA FATAHÖNNUÐINN MARY QUANT, KOM FYRST FRAM Á SJÓN-
ARSVIÐIÐ. ÞAÐ VAR ÁRIÐ 1950 SEM QUANT BYRJAÐI AÐ GERA TILRAUNIR
MEÐ STUTTA PILSFALDA EN ÁRIÐ 1964 HANNAÐI HÚN OG SETTI Á
MARKAÐ MINIPILSIÐ EINS OG VIÐ ÞEKKJUM ÞAÐ Í DAG.
Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is
Í haustlínu Johns Galliano árið 1998
mátti finna þetta skemmtilega vín-
rauða minipils.
Minipilsið er oft kennt við breska
fatahönnuðinn Mary Quant.
Minipilsið er 50 ára
Franska söng- og leik-
konan Brigitte Bardot
klæddist gjarnan minipilsi.
AFP
3.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
HÁR
Dreifingaraðili
Getum bætt
við söluaðilum
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á Hár ehf
Hárteygjur Hárburstar
MEST SELDU HÁRVÖRURNAR Á MARKAÐNUM Í DAG
RÍFA EKKI HÁRIÐ / ENGAR FLÆKJUR