Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.8. 2014
Sunnudaginn 3. ágúst fara tónleikarnir
Stretched Present, eða Teygt nú, fram í
Kaldalóni í Hörpu. Flytjendur verða Flute-
Machine, flautudúó sem samanstendur af
flautuleikurunum Kirsi Ojala og Kirstine Lin-
demann, Hungry Dragon en það dúó skipa
Ásthildur Ákadóttir píanóleikari og Kirstine
Lindemann flautuleikari. Auk þeirra koma
fram Noora Nenonen dansari og Ilkka
Heinonen, sem leikur á líru með boga. Flute-
Machine er flautudúó sem vinnur með nú-
tímatónlist og spuna fyrir blokkflautur og
norrænar þjóðlagaflautur. Hungry Dragon
leikur nútímatónlist en tekur mið af gjörn-
ingalist og spuna svo nýjar víddir koma í ljós.
Tónleikarnir byrja kl. 14.
TÓNLEIKAR Í KALDALÓNI
TEYGT NÚ
Áhugaverðra tónleika er að vænta í Hörpu.
Tríóið sem leikur á lokahelgi Sumartónleika við
Mývatn er nýkomið úr tónleikaferð erlendis.
Nú er komið að lokahelgi Sumartónleika við
Mývatn. Tónleikar verða haldnir laugardaginn
2. ágúst kl. 21 í Reykjahlíðarkirkju og sunnu-
daginn 3. ágúst kl. 21 í Skútustaðakirkju. Kl.
14 á sunnudeginum verður helgistund með
tónlist í kirkjunni í Dimmuborgum. Prestur
verður sr. Þorgrímur Daníelsson en tónlist-
armenn helgarinnar eru Guðrún S. Birgis-
dóttir og Martial Nardeau flautuleikarar og
Selma Guðmundsdóttir, píanó- og orgelleik-
ari. Tríóið er nýkomið úr tónleikaferð í Kína
og Frakklandi en á efnisskrá eru stærri verk
og glæsilegri í bland við hugljúf lög, íslensk
þjóðlög og sönglög Sigfúsar Halldórssonar.
SUMARTÓNLEIKAR VIÐ MÝVATN
LOKAHELGI
Sunnudaginn 3. ágúst
verða tveir viðburðir í
tengslum við sumarsýn-
ingu myndlistarmið-
stöðvar Austurlands,
Skaftfells, en sýningin ber
yfirskriftina RÓ RÓ. Við-
burðirnir fara fram í bak-
garði Skaftfells og í ná-
munda við miðstöðina. Kl.
15 verða fluttir gjörningar.
Raftónlistarmaðurinn Auxpan (Elvar Már
Kjartansson) flytur eigið efni. Daníel Karl
Björnsson flytur gjörninginn „Fjallræða“ sem
inniheldur meðal annars blöðrur og gúmme-
laði. Gunnhildur Hauksdóttir endurflytur
gjörninginn „Manntal“ en gjörningurinn hef-
ur verið endurbættur frá síðasta flutningi. Kl.
16 verður haldin Fjallkonuhátíð en garðveisla
Fjallkonunnar er vettvangur fyrir hvers konar
innlegg og uppákomur þar sem öllum gefst
færi á að deila því sem þeim liggur á hjarta.
RÓ RÓ Í SKAFTFELLI
FJALLKONUHÁTÍÐ
Gunnhildur
Hauksdóttir.
„Jú, ætli þetta séu ekki svolítil tímamót,“
segir listamaðurinn Gísli Kristjánsson en
hann fagnar níræðisafmæli sínu um helgina
með opnun listsýningar á skúlptúrum sínum
sem unnir eru úr gleri og járni. Ekki er
hún þó með hefðbundnu sniði, því sýningin
er fyrst og fremst á rafrænu formi. Einnig
verður gefin verður út bók af þessu tilefni
sem geyma mun ljósmyndir af verkum Gísla
en aftast í bókinni verða QR-kóðar sem
skanna má með snjallsímum. Sá sem skoðar
er þá leiddur inn á heimasíðu Gísla,
www.eldmodur.is, og getur virt fyrir sér
hvert verk fyrir sig frá öllum sjónarhornum,
því verkunum má snúa á heimasíðunni. Mik-
OPNAR RAFRÆNA LISTSÝNINGU
Gripinn af löngun til listar
Morgunblaðið/Kristinn
LISTAMAÐURINN OG VÉLFRÆÐING-
URINN GÍSLI KRISTJÁNSSON OPNAR
SÝNINGU UM HELGINA. HONUM
ER Í MUN AÐ FÓLK HAFI ÁNÆGJU
AF VERKUM HANS.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Gísli Kristjánsson, listamaður og vélfræð-
ingur, ásamt verkinu „Vírunum í gegnum
glerið“. Málverkið er einnig eftir hann.
Menning
Hann gerir stærstu og dýrustu lista-verkin, en er alltaf umdeildur þóttgagnrýnendur séu farnir að segja
hann vera manninn sem mótað hafi myndlist
liðinna áratuga öðrum fremur. Fyrir rúmum
mánuði opnaði í The Whitney Museum of
American Art í New York, síðasta sýningin í
hinni frægu byggingu safnsins sem Marcel
Breuer teiknaði og stendur við Madison
Avenue, áður en það flytur í rúmbetri sali
neðar á Manhattan. Þetta er yfirlitssýning á
verkum Jeffs Koons; á myndverkum sem
þessi 59 ára Bandaríkjamaður hefur haldið
áfram að ögra með og um leið gleðja safnara
sem greitt hafa fyrir þau hærri upphæðir en
þekkst hefur.
Áður en sýningin var opnuð var hamrað á
því að þetta væri viðameiri yfirlitssýning en
sett hefði verið upp í Whitney-safninu á
verkum nokkurs annars; verkin væru stærri
og þyngri en áður hefði þekkst þar – verk-
fræðingar þurftu að leysa vandamálin sem
tengdust því að koma þeim inn í bygginguna,
og svo var það verðmætið. Þessi gljáfægði
veruleiki kostar sitt. En spennan var mikil
og þegar dyrnar voru opnaðar þótti sumum
nóg um, talað var um yfirborð og spurt um
listræna dýpt, en gagnrýnendur hafa engu
að síður verið jákvæðir. Þeir eru farnir að
viðurkenna að Koons tróni efstur á píramída
myndlistarmanna vestanhafs, og vegna fleiri
þátta en verðmiðans eins.
Jeff Koons nam myndlist í Baltimore en
flutti 21 árs gamall til New York, þar sem
hann starfaði fyrst í MoMA-safninu við að
þjónusta gesti og síðar á Wall Street við að
selja vörur á markaði. Samhliða var hann að
koma undir sig fótum sem listamaður og
nýtti sér reynsluna af markaðsstörfum.
Verk Koons vöktu athygli strax upp úr
1980 en þá var hann farinn að vinna með al-
geng tæki og leikföng á gagnrýninn hátt, í
anda pop-listarinnar. Kitsið eða listlíkið kom
þá strax inn í sköpun Koons og hann hlaut
heimsfrægð um 1990 þegar hann kvæntist
klámleikkonunni Ilana Staller, eða „La Cicci-
olina“ og notaði samfarir þeirra í fjölda lista-
verka; ljósmyndir, málverk sem skúlptúra
svo mörgum þótti nóg um. Á liðnum árum
hefur Koons sífellt gengið lengra í fram-
leiðslu metnaðarfullra og afar dýrra verka,
sem mörg eru gerð í þremur eintökum af
120 starfsmönnum í vinnustofu hans í New
York og safnarar mega iðulega bíða eftir ár-
um saman. Og greiða hundruð milljóna fyrir.
6,7 milljarðar voru greiddir fyrir skúlptúr úr
VIÐAMIKIL YFIRLITSSÝNING Á VERKUM JEFFS KOONS Í NEW YORK VEKUR ATHYGLI OG UMTAL
Gljáfægð og rándýr
ÞAU ERU STÆRST, ÞYNGST OG
DÝRUST, EN GAGNRÝNENDUR
VIÐURKENNA AÐ MYNDVERK JEFF
KOONS BÚI LÍKA YFIR DÝPT.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Í forgrunni er skúlptúrinn „Sea Walrus (Trash-
cans)“ en málverkið „Elvis“ í baksýn.
„Hulk“ kallast skúlptúr í mannsstærð sem jafn-
framt er pípuorgel sem unnt er að leika á.
Sýningargestir virða fyrir sér einn skúlptúra Koons sem eru fyrir utan safnbygginguna.