Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 46
Úttekt
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014
T
eiknimyndin Frozen eða Frosinn
frá Disney hefur fangað hug og
hjarta barna og slegið í gegn um
allan heim. Frozen er tekjuhæsta
teiknimynd allra tíma en hún hef-
ur halað inn rúman milljarð dollara. Áður var
Toy Story 3 tekjuhæst með um milljarð doll-
ara en Frozen er nú komin yfir þau mörk,
eða upp í 1,2 milljarða dollara á heimsvísu.
Auk þess hefur lagið Let it go, sem er titillag
myndarinnar, fengið tæplega 315 milljón
smelli á Youtube. Ábreiðungar og annað
hækka áhorfstölur líklega um tugi milljóna.
Teiknimyndin hefur farið fram úr björtustu
vonum og misreiknaði Disney algjörlega eft-
irspurnina og hefur til dæmis ekki haft undan
við framleiðslu á leikföngum og öðrum varn-
ingi eftir persónum Frozen. Sumir hafa geng-
ið svo langt að kalla persónur Frozen Bítlana,
því í rauninni eiga þær álíka stóran aðdá-
endahóp og fjórmenningarnir ódauðlegu áttu.
Disney hefur gengið vel á hlutabréfamark-
aðnum í Bandaríkjunum og hefur hagnaður
fyrirtækisins fjórfaldast frá því í fyrra. Mun
ástæða velgengni Disney vera Frozen.
Barátta góðs og ills
Frozen er byggð á sögu Hans Christians
Andersens um Snjódrottninguna en eins og
mörgum er kunnugt samdi hann einnig æv-
intýrin um Litlu hafmeyjuna, Nýju fötin keis-
arans, Hnotubrjótsprinsinn og fleiri. Sagan
um snjódrottninguna hefur lengi verið í píp-
unum hjá Disney en hingað til ekki tekist að
koma ævintýrinu í nýjan búning. Útgáfa HC
Andersens er fremur ólík öðrum ævintýrum
hans en þar eru sögupersónur í meirihluta
kvenkyns. Hins vegar voru kvenkyns auka-
hlutverkin tekin út úr sögunni fyrir Frozen
og önnur sett í staðinn, snjókarlinn Olaf,
fjallagarpurinn Kristoff og hreindýrið hans
Sven. Einnig er ævintýri HC Andersens mun
drungalegra.
Frozen segir hins vegar frá systrunum
Elsu og Önnu sem eru prinsessur í konungs-
ríkinu Arindelle. Það sem er sérstakt við
Elsu er að hún fæddist með óvenjulega hæfi-
leika sem gera henni kleift að búa til frost og
snjó. Þegar systurnar eru litlar leika þær sér
saman að hæfileikum Elsu og búa til snjókarl
og fleira en í eitt skiptið slasast Anna óvart
af völdum Elsu. Eftir slysið er Elsu kennt
alla tíð að fela hæfileika sína og fyrir vikið
vaxa systurnar í sundur. Þegar systurnar
verða eldri og kemur að því að krýna Elsu
drottningu yfir ríkinu koma frystihæfileikar
hennar í ljós, sem hrekur hana lengst upp í
fjöll. Við það fellur snjóbölvun á allt ríkið og
nístingskuldi umvefur það. Anna og fjalla-
garpurinn Kristján hefja leit að Elsu til þess
að aflétta bölvuninni og fá hana til að snúa
aftur.
Systraást vakti athygli
Endirinn á myndinni hefur vakið athygli og
er talinn fremur óhefðbundinn. Konungsríkið
er undir álögum Elsu, þar sem frost og snjór
ráða ríkjum á annars fremur sólríku svæði.
Þegar Anna verður fyrir frostskoti systur
sinnar kemur í ljós að það eina sem getur af-
létt álögunum er hrein og sönn ást. Persón-
urnar halda að sú ást sé milli karls og konu
en í ljós kemur að sú er ekki raunin. Systra-
ást milli Önnu og Elsu verður til þess að
álögunum er aflétt, sem er fremur óhefð-
bundið miðað við önnur ævintýri á borð við
Mjallhvíti og dvergana sjö, Þyrnirós, Fríðu og
Dýrið og Shrek. Frozen hefur hins vegar
rómantískan endi, eins og svo margar Disn-
ey-myndir, og því er endirinn og myndin sem
slík ekki svo frábrugðin öðrum prinsessu-
ævintýrum frá Disney.
Gagnrýnendur á öndverðum meiði
Gagnrýnendur og blaðamenn eru ekki allir á
sama máli um Frozen. Margir hafa haft orð á
því að teiknimyndin hafi brotið ákveðið gler-
þak sem hefur verið nokkuð einkennandi fyrir
margar teiknimyndir Disney á meðan aðrir
telja að enn séu teiknimyndir Disney litaðar
af staðalímyndum. Dæmi hver fyrir sig.
Til að mynda hefur teiknimynd í fullri
lengd frá Disney aldrei áður verið stýrt af
kvenkyns leikstjóra. Bent er á að ekkert
brúðkaup sé í myndinni og auk þess sé það
systraást sem sigrar, ekki rómantísk ást.
Frozen stenst einnig Bechdel-prófið, próf sem
kom til í kringum 1985. Til að standast Bech-
del-próf þurfa þrír þættir að vera fyrir hendi.
Í fyrsta lagi þarf kvikmyndin að innihalda
tvær konur sem báðar hafa nafn. Í öðru lagi
þurfa konurnar að eiga í samræðum í mynd-
inni og í þriðja lagi þarf samtalið að snúast
um annað en karlmenn. Þessir þrír þættir
eru uppfylltir í Frozen.
Hins vegar heyrast gagnrýnisraddir sem
telja að Frozen sé enginn vendipunktur í sög-
um Disney. Þrátt fyrir að myndin eigi að
sýna fram á systraást og þannig velta
ákveðnum staðalímyndum um prinsessur frá
Disney er Anna mestalla myndina trúlofuð
manni sem hún hefur aðeins þekkt í skamma
stund. Þá er einnig gagnrýnt að sögu-
persónur HC Andersens úr hinu upprunalega
ævintýri um snjódrottninguna, sem margar
eru kvenkyns, séu klipptar út. Aðalpersónan
Gerda, sem er í rauninni Anna í Frozen, átti
góða ömmu og einnig komu þar fram ræn-
ingjastúlka, gömul galdranorn, förukona,
prinsessa og kráka. Athygli vekur að í Fro-
zen skuli ekki vera fleiri kvenkyns sögu-
persónur eins og í ævintýri Danans.
Þrátt fyrir ólíkar skoðanir verður ekki
horft framhjá því að teiknimyndin Frozen
hefur haft gríðarleg áhrif og hreyft við börn-
um um allan heim. Ljóst er að Frozen er
skref í rétta átt og auk þess ákveðin umbylt-
ing bæði innan höfuðstöðva Disney en einnig
fyrir konur í bransanum í Hollywood yfirhöf-
uð. Þróun í rétta átt.
Frosið er brosið
á börnum
TEKJUHÆSTA TEIKNIMYND ALLRA TÍMA HEFUR FARIÐ FRAM ÚR
BJÖRTUSTU VONUM. BÖRN VILJA HORFA Á TEIKNIMYNDINA
FROZEN AFTUR OG AFTUR OG KUNNA LÖG MYNDARINNAR UT-
AN AÐ. LEIKFÖNG SELJAST JAFNÓÐUM UPP OG ANNA VÖRUHÚS
VART EFTIRSPURN. ÞÁ ER SÖGUÞRÁÐUR MYNDARINNAR TALINN
HAFA BROTIÐ ÁKVEÐIÐ GLERÞAK Í TEIKNIMYNDUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Um þessar mundir er unn-
ið að því að gera persónur
Frozen sýnilegri í skemmti-
görðum Disney um víða
veröld, enda er Frozen
orðið eitt af fimm stærstu
vörumerkjum Disney.
Konur í kvikmyndum
Þrátt fyrir sigra Frozen eru konur þó enn í minnihluta í kvikmyndum
„Ástandið er mjög dapurlegt að
mínu mati. Við erum stödd á 21.
öldinni en samt er ennþá mjög
sjaldgæft að frásagnir sem beint
er að stúlkum séu sagðar út frá
kvenlægu sjónarhorni,“
segir Brenda Chapman,
aðstoðarleikstjóri
teiknimyndarinnar Brave
frá Disney.
Heimild: Geena Davis Institute on Gender in Media / Miss Representative
Í fjölskyldumyndum
eru þrír af hverjum
fjórum einstaklingum í
aðalhlutverki karlar
29% aðalpersóna
teiknimynda eru kvenkyns
Konur eru 6% leikstjóra
teiknimynda og þá
aðstoðarleikstjórar
Aðeins 10% höfunda teiknimynda eru konur
Kynjahlutfall þeirra sem starfa við kvikmyndir er fimm
á móti einum, körlum í vil
29% 6%