Morgunblaðið - 26.09.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sveppurinn ullblekill er ætur meðan hann er
ungur en það er best að safna honum þar sem
landið er laust við mengun frá umferð bíla, segir
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun. Ullblekill vex í veg-
köntum og í grasflötum og spretta aldinin upp
síðsumars. Þeir finnast víða á umferðareyjum
borgarinnar um þessar mundir. Hún telur að
margir hafi náð ágætis sveppaforða þetta árið.
Ullblekill breiðir úr sér á grasbölum
Morgunblaðið/Ómar
Sveppurinn ullblekill er ætur en best er að safna honum fjarri bílaumferð
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikla fjármuni vantar til fjárfest-
inga sem snúa að viðhaldi flugvalla
og leiðsögubúnaðar við þá. Þetta er
mat öryggisnefndar Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna sem
fjallar um málið í nýjasta fréttabréfi
félagsins. Nefndin hefur að undan-
förnu yfirfarið drög að endurkoðaðri
samgönguáætlun og telur miður að
aðstaða í innanlandsfluginu sé ekki
nógu góð.
Egilsstaðaflugvöllur og Akureyr-
arflugvöllur eru helstu varaflugvellir
fyrir innan- og utanlandsflugið og
stendur Isavia að rekstri þeirra. Með
aukinni flugumferð er mikilvægt,
segja atvinnuflugmenn, að þessir
vellir séu í stakk búnir til að taka við
þessari umferð ef svo skyldi fara að
flugvellirnir í Keflavík og Reykjavík
lokuðust samtímis. Í eldgosinu í
Eyjafjallajökli hafi mikilvægi Akur-
eyrarflugvallar komið í ljós.
Og nú þarf að gera bragarbætur á
Egilsstöðum segja flugmenn. Er
bent á að umdæmisstjóri Isavia á
Austurlandi hafi nýlega sent bréf til
umhverfis- og samgöngunefndar Al-
þingis. Þar segir að þörf sé á að mal-
bika flugbrautina á Egilsstöðum því
að erfitt sé við núverandi aðstæður
að tryggja þar viðunandi bremsu-
skilyrði á veturna. Þá þurfi að
stækka flughlaðið því æ fleiri noti nú
Egilsstaði sem varaflugvöll.
Starfsmenn standa sig vel
Flugfélag Íslands flýgur á Egils-
staði allt að fimm sinnum á dag.
„Við höfum ekki fundið fyrir því að
bremsuskilyrði á flugvellinum vegna
slitins malbiks séu farin að versna.
Starfsmenn Isavia fyrir austan
standa sig vel við að tryggja að
ástand vallarins sé sem allra best.
Við notendurnir verðum ekki alltaf
varir við hvar úrbóta er þörf. Þeir
sem eru á vaktinni og þekkja að-
stæðurnar og búnaðinn geta best
sagt til um slíkt,“ segir Árni Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri FÍ.
Öryggi flugvalla minnkar
Atvinnuflugmenn hafa áhyggjur af innanlandsvöllum Bagalegt ef vellir lokast
Akureyri sannaði gildi sitt Lélegt malbik skapar hálkuhættu á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Egilsstaðir Mikilvægur flugvöllur þar sem gera þarf ýmsar bragarbætur.
Ákvæði um að fólksflutningar í af-
þreyingarskyni verði ekki undan-
þegnir virðisaukaskatti í framtíðinni
líkt og aðrir fólksflutningar í frum-
varpi fjármálaráðherra um breyting-
ar á virðisaukaskatti er gagnrýnt í
umsögn laganefndar Lögmanna-
félags Íslands (LMFÍ) til efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis.
„Afmörkun þeirrar starfsemi, sem
á ekki lengur að falla undir fram-
angreinda undanþágu, er mjög
óskýr, svo ekki sé fastar að orði
kveðið,“ segir í umsögn Lögmanna-
félagsins.
Í greinargerð frumvarpsins kem-
ur fram að undanþágan nái ekki til
fólksflutninga ef „… megintilefni
ferðar er afþreying“. Gert er ráð fyr-
ir að sú þjónusta verði í lægra skatt-
þrepinu ef þetta ákvæði frumvarps-
ins verður lögfest.
Í umsögn laganefndar LMFÍ er á
það bent að í gildistíð söluskattslaga
og síðar laga um virðisaukaskatt sé
komin löng hefð fyrir því að skil-
greina skattskyldusvið og hafi verið
leitast við að líta til hlutlægra þátta,
eins og þeir líta út frá sjónarhóli
rekstraraðila, en forðast að líta til
huglægra þátta, svo sem þess hvert
tilefni einhverra ferða er, einkum ef
vísað er til tilefnis þess sem nýtur
þjónustunnar.
„Vafalaust er að orðalag þetta
mun kalla á mörg álitaefni og deilu-
mál, ekki aðeins vegna íslenskra
rekstraraðila heldur einnig erlendra
aðila sem koma hingað til lands með
eigin farartæki til afnota fyrir skjól-
stæðinga þeirra, eftir atvikum í af-
þreyingarskyni,“ segir í umsögn
LMFÍ. omfr@mbl.is
„Mjög óskýr, svo ekki
sé fastar að orði kveðið“
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn Skoðunarferðir verða
virðisaukaskattsskyldar.
LMFÍ gagnrýnir
afnám undanþágu
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Í tilkynningu sem ríkissaksóknari
birti á heimasíðu sinni í gær kemur
fram að sérstakt tilefni sé til þess að
gera athugasemd við nokkur atriði
sem fram koma í áliti umboðsmanns
barna, vegna niðurfellingar á máli
tengdu leikskólanum 101. Ríkis-
saksóknari segist líta það alvar-
legum augum að umboðsmaður
barna skuli draga þær ályktanir af
afgreiðslu þessa tiltekna máls að
börnum sé ekki veitt refsivernd
gegn líkamlegri valdbeitingu starfs-
fólks leikskóla og að ætla megi að
það teljist ekki refsivert að beita
barn ofbeldi, svo lengi sem það hafi
ekki sýnilegar afleiðingar.
Slíkar ályktanir segir ríkissak-
sóknari að eigi ekki við nokkur rök
að styðjast.
Röng nálgun umboðsmanns
Ríkissaksóknari rekur í upphafi
þær reglur sem gilda um sönnun-
arkröfu í sakamálum. Segir í til-
kynningunni að þetta séu reglur sem
fulltrúar ákæruvaldsins þurfi að
hafa í huga við afgreiðslu mála auk
þess sem kveðið sé á um skyldu
ákærenda til að gæta hlutleysis í 3.
mgr. 18. gr. laga um meðferð saka-
mála nr. 88/2008. Sönnunarbyrðin
um sekt sakbornings og atvik sem
telja megi honum í óhag hvíli á
ákæruvaldinu, sbr. 108. gr. laganna.
Í þessu felist að ákæruvaldið þurfi
ekki einungis að sanna að sakborn-
ingur hafi gerst sekur um háttsemi
sem honum er gefin að sök, heldur
jafnframt að sanna að háttsemin feli
í sér brot á refsiákvæði. Allan vafa
beri þannig að skýra sakborningi í
hag.
Að þessu sögðu rekur ríkissak-
sóknari feril málsins og segir um-
boðsmann barna halda því ranglega
fram í þrígang í áliti sínu að rík-
issaksóknari telji það ekki líkamlega
refsingu að slá barn á afturendann.
Ríkissak-
sóknari svar-
ar fyrir sig
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Margrét María
Sigurðardóttir
Athugasemdir við álit
umboðsmanns barna
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Í dag rennur út frestur sem fyrir-
tæki á Grænhöfðaeyjum hefur til
þess að leggja inn greiðslu fyrir
kaup á ferjunni Baldri sem sinnt
hefur siglingum um Breiðafjörð og
er í eigu Sæferða. Er um að ræða
aukafrest frá því í fyrradag en ef
fyrirtækið leggur ekki inn greiðslu í
dag verða samningar lausir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra segir að verið sé
að meta hagkvæmni kaupa á ferj-
unni ef tækifæri gefst til. „Vega-
málastjóri heldur utan um málið í
samstarfi við okkur. Við höfum vilj-
að skoða þetta og
fara nákvæmlega
yfir það hvort það
geti verið hag-
kvæmt fyrir okk-
ur að kaupa Bald-
ur. Það ferli er í
gangi og ekki
komin niðurstaða
í það. Það er al-
gjörlega óljóst á
þessari stundu
hvort þetta gengur upp,“ segir
Hanna Birna. Hún segir að hún hafi
átt í samskiptum við vegamálastjóra
vegna málsins undanfarna daga og
að niðurstöðu sé að vænta innan
fárra daga.
Málið í höndum
vegamálastjóra
Frestur vegna Baldurs rennur út
Hanna Birna
Kristjánsdóttir