Morgunblaðið - 26.09.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Íslenska sjávarútvegssýningin var
opnuð í Smáranum í Kópavogi í gær-
morgun og stendur þangað til síð-
degis á morgun. Viðstaddir opn-
unina voru meðal annars Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra og Ármann Ólafs-
son, bæjarstjóri í Kópavogi.
Marianne Rassmusen-Coulling,
framkvæmdastjóri sýningarinnar,
sagði í ræðu sinni að á sýningunni
gerðu menn viðskiptasamninga sem
myndu koma til með að hafa áhrif á
sjávarútveg um allan heim á næstu
árum. Veitti hún því einnig athygli
hvernig íslenskur sjávarútvegur hef-
ur risið úr erfiðleikum sem ein-
kenndu greinina fyrir þremur árum.
Fram kemur á heimasíðu sýning-
arinnar að búist sé við yfir 13 þús-
und gestum og að sýnendur séu
fleiri nú en nokkru sinni áður eða um
500, innanhúss og utan. Þátttak-
endur koma frá fimm heimsálfum.
Sýningin er haldin á þriggja ára
fresti en hún var fyrst haldin fyrir 30
árum. Henni er ætlað að ná til allra
hliða í sjávarútvegi og fiskvinnslu,
allt frá veiðum og fiskileit til vinnslu
og umbúða, markaðssetningar og
dreifingar fullunninna afurða.
Í gærkvöldi voru íslensku sjávar-
útvegsverðlaunin afhent í sextán
flokkum. Að auki voru veitt heild-
arverðlaun til þess birgis sem þótti
skara mest fram úr og féllu þau
Marel í skaut.
Auk þess verða haldnar þrjár ráð-
stefnur, ein um fullnýtingu sjávar-
afurða, önnur um samstarf og deilu-
mál í sjávarútvegi og sú þriðja um
strandveiðar og strandsamfélög við
N-Atlantshaf. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Fastus Björn Björnsson, Unnþór Halldórsson, Guðmundur Halldórsson, Oddur Halldórsson og Bjarni Halldórsson.
Sjávarréttarsúpa Veitingar eru snar þáttur í stórum sýningum. Elín Þór-
unn Eiríksdóttir og Björn Ásgeir Guðmundsson við pottinn í bás Sjóvár.
Mikil tækni Íslenskur sjávarútvegur byggir á háþróaðri tækni á öllum stigum veiða, vinnslu og markaðsmála og er
hún kynnt á sýningunni. Á myndinni eru Jónatan Gíslason frá Friðriki A. Jónssyni og Ketil Dahl frá Olex í Noregi.
Allar hliðar
veiða og vinnslu
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík
leggur til að deiliskipulag á Ný-
lendureit, þar sem rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan hefur fengið kirkju-
lóð við Mýrargötu 21, verði óbreytt.
Hann telur að flutningur kirkjunnar
á lóð við horn Seljavegar og Mýrar-
götu hafi ekki ótvíræða kosti í för
með sér.
„Kirkjan yrði mun stærri á nýjum
stað og líklegt að ekki yrði mikil sátt
um það, einkum má búast við því að
ný staðsetning verði umdeild meðal
lóðarhafa nálægra lóða,“ segir í
niðurstöðu umsagnar skipulagsfull-
trúans. Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjavíkur samþykkti umsögnina.
Breyting á deiliskipulagi Nýlendu-
reits var á dagskrá umhverfis- og
skipulagsráðs Reykjavíkur 24. sept-
ember sl.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram tillögu í borg-
arráði í nóvember sl. um að skoðað
yrði hvort unnt væri að koma kirkj-
unni fyrir á nýjum og rúmbetri stað,
á horni Mýrargötu og Seljavegar, í
því skyni að ná meiri sátt um kirkju-
bygginguna. Í framhaldi af því ósk-
aði borgarráð eftir upplýsingum um-
hverfis- og skipulagsráðs.
Höfundur deiliskipulags Nýlendu-
reits, Richard Briem hjá VA arki-
tektum, var fenginn til að teikna til-
lögur að nýrri staðsetningu kirkj-
unnar. Einnig var líkani breytt til að
bera mætti saman staðsetningarnar.
Haldinn var fundur 1. apríl sl. með
fulltrúum rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar og rússneska sendi-
ráðsins. Í framhaldi af því bárust
tvær tillögur frá aðstandendum
kirkjunnar. Í síðari tillögunni var
gert ráð fyrir að kirkjan risi innan
um aðrar byggingar á horni Selja-
vegar og Nýlendugötu. M.a. kom
fram í tillögu Rússanna að þeir fóru
fram á að kirkjan yrði hækkuð yrði
hún flutt á lóð við Seljaveg.
Skipulagsfulltrúinn mat kosti og
ókosti við báðar umræddar mögu-
legar staðsetningar kirkjunnar.
Meðal kosta núverandi staðsetn-
ingar var að við Bræðraborgarstíg
yrði opið svæði aðgengilegt almenn-
ingi. Þá var það talið til kosta við að
færa kirkjuna að Seljavegi að að-
koma að kirkjunni yrði einfaldari
þar og líklega yrði minna rask í
Nýlendugötu vegna umferðar að
kirkjunni. gudni@mbl.is
Tillaga um óbreytt skipu-
lag á Nýlendureitnum
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan Útlit fyrir að hún rísi á Nýlendureit.
Rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan
við Mýrargötu