Morgunblaðið - 26.09.2014, Page 11
Uppbygging Agi og skipulag skiptir að sögn Árna miklu hjá ungum leikmönnum. Í skólanum er leitast við að
kenna nemendum allt það helsta sem prýðir gott handboltafólk. Að hafa trú á sjálfum sér skiptir þar miklu máli.
staðan er glæsileg, flott íþróttahöll
og gisting, matur og fyrirlestrasalir.
Allt er þetta á sama stað. Síðan fór
ég í samstarf við Icelandair og þeir
sjá um flugið,“ segir Árni.
Í fyrstu ferðinni, í lok júlí 2013,
var farið með rúmlega fimmtíu
krakka utan og í sumar var talan að-
eins lægri eða rúmlega þrjátíu þar
sem fleiri pláss fengust ekki í
íþróttamiðstöðinni. Árni býst við að
fjöldinn næsta sumar verði svipaður
því sem var árið 2013.
Sjálfstraust og hópefling
Alls er námið í eina viku. Hand-
boltaæfingar eru tvisvar á dag og ein
æfing utanhúss þar sem gerðar eru
liðkandi og styrkjandi æfingar.
„Þetta eru líka æfingar til að fyrir-
byggja meiðsli og teygjur og annað
slíkt. Til viðbótar við æfingarnar er-
um við með fyrirlestra um hand-
bolta, hugarfar, sjálfstraust, mark-
miðssetningu og næringarfræði. Við
reynum að sýna krökkunum hvað
þarf að gera til að geta náð langt í
þessari íþrótt,“ segir Árni.
Mikið er lagt upp úr því að fara
vel í andlega þáttinn, það að hafa trú
á sjálfum sér og vera öruggur í því
sem þau eru að gera. „Mataræðið
skiptir auðvitað gríðarlegu máli og
allt sem tengist heilbrigðu líferni
eins og að sofa nægilega mikið. Svo
reynir maður að koma því inn hjá
þeim að þau þurfi að hafa skipulag á
öllu í lífinu, bæði í námi og öllu sem
þau gera því ef þau ætla að ná langt
þurfa þau að skipuleggja sinn tíma
vel til þess að geta komist yfir allt,“
segir Árni.
Krakkarnir sem geta komið í
handboltaskólann eru á aldrinum 14-
17 ára. Dagskráin er vissulega stíf en
hún er að sama skapi fjölbreytt. „Um
miðja vikuna förum við í dagsferð til
Kiel. Krakkarnir hafa æft tvisvar
þennan dag. Önnur æfingin er á
frjálsíþróttavelli þar sem Alfreð er
með þau í alls konar hlaupum og
styrkjandi æfingum. Svo fáum við að
vera hjá liðinu þegar þeir eru að gera
æfingar og síðan fá krakkarnir að
spjalla við strákana í liðinu. Í fyrra
voru þeir Guðjón Valur ogt Aron
þarna þannig að krakkarnir fylgdust
vel með þeim. Síðan er borðað á góð-
um veitingastað í Kiel og seinnipart-
inn er seinni æfingin. Þar fer Alfreð
yfir leikkerfin og annað sem þarf að
gera til að koma leikmönnum inn í
leik liðsins,“ segir þjálfarinn og
skólastjóri handboltaskólans í Kiel,
Árni Stefánsson. Næsta ferð verður í
lok júlí á næsta ári. Þeir sem vilja
frekari upplýsingar geta skoðað Fa-
cebook-síðu skólans sem finna má
undir „handboltaskóli í Kiel“.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
Í lok síðasta árs tók ég þá ákvörðun
að segja skilið við einkabílinn. Áður
en mér er gert of hátt undir höfði fyr-
ir að vera ungur og framsýnn maður
með hugann við umhverfið og um-
ferðargæði er rétt að fyrirbyggja all-
an misskilning.
Ástæðan var fyrst og fremst fjár-
hagsleg. Einkabílaeign er tryllings-
lega dýr, sérstaklega í ljósi þess að
95% af deginum gerir aumingja bíll-
inn ekkert annað en að standa kyrr,
eldast og falla í verði. Illu heilli þá er
skipulag í Reykjavík álíka úthugsað
og húsarústir í Stalíngrad (sem sagt,
ekki neitt), þannig að hún teygir anga
sína út um allt, og jafnvel aðeins
lengra. Af þeim sökum, og að vera
með starfsstöð nánast á miðhá-
lendinu, kemur stundum upp
sú staða að ég þarf að sinna
erindum vestan Elliðaáa.
Við þau tækifæri þarf bíl-
lausi hægrihippinn ég að
leita á náðir vina og ættingja
til að fá lánaðan farskjóta, því
strætóferðir taka því miður of
mikinn tíma frá vinnu. Háð
og spott fylgir yfirleitt
snyrtilega í kjölfar-
ið, því það að geta
ekki komist leiðar
sinna frá A til B,
alltaf, alls staðar,
algjörlega óháð
kostnaði og
þeirri stað-
reynd að B er
fyrir ofan snjó-
línu allt árið, er
auðvitað end-
anleg sönnun þess að
þessi bíllausi lífsstíll er
argasta þvæla og
kommúnismi, og eitt-
hvað sem ber að for-
dæma við hvert
tækifæri. Ég læt þetta þó ekki á mig
fá því ég hlæ alla leið í bankann þar
sem sparnaðurinn af því að vera laus
við hinn aðþrengda og aðfarna einka-
bíl nemur margföldum útgreiddum
blaðamannslaunum.
Eini raunverulegi ókosturinn við
Strætó er morgunspjallið. Ég er B-
týpa. Örugglega C-týpa, ef sú mann-
gerð væri til. Ég veit fátt verra en að
vakna fyrir klukkan átta, nema
kannski að vakna fyrir klukkan sex.
Svefnmissirinn við það að taka
strætó er þó ekki nema um 20
mínútur hvern morgun, sem má
vinna upp með því að dorma í
vagninum. Það heppnast þó
ekki alltaf. Illu heilli þá er oft
mér mun morgunhressara fólk
á sömu leið og ég, ýmist vinir
eða kollegar, sem sýna því tak-
markaðan skilning að fyr-
ir hádegi, eða að
minnsta kosti fyrir
fimmtánda morg-
unkaffibollann, þá
get ég ekki lagt
neitt frumlegra
til samræðna en
einsatkvæð-
isuml á borð við
„Úgg“,
„hrumpf“
„eða“ „öö-
öðgh“. Aðgát
skal höfð í nær-
veru B-sálar.
»Eini raunverulegiókosturinn við Strætó
er morgunspjallið
Heimur Gunnars Dofra
Gunnar Dofri
Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Hrein
akstursgleði
BMW X5
www.bmw.is
AKTU FRAMFÖRUM.
#BMWstories
Við kynnum þriðju kynslóðina af BMW X5 með sparneytnari vél en nokkur annar bíll í þessum flokki.
Nýi BMW X5 er léttari og með minni loftmótstöðu en keppinautarnir. Hann kostar frá 10.490 þús. kr.
með 218 hestafla dísilvél og 8 gíra sjálfskiptingu og notar einungis 5,8 l/100 km í blönduðum akstri.
Aktu framförum – kynntu þér nýjan BMW X5!
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
BMW X5, verð frá:10.490.000 kr.
5,8 l/100 km er viðmiðunartala framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
X5 sDrive25d