Morgunblaðið - 26.09.2014, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2014
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Seðlabanki Íslands (SÍ) mun þurfa
að greiða á fjórðu milljón króna
vegna málskostnaðarmáls Más Guð-
mundssonar gegn bankanum.
Þetta fékkst staðfest hjá Jóni
Helga Egilssyni, starfandi formanni
bankaráðs, í kjölfar þess að banka-
ráð samþykkti á fundi sínum sl.
þriðjudag að greiða ekki málskostn-
að Más vegna umrædds dómsmáls.
Athygli vekur að í tilkynningu frá
bankaráðinu kemur ekki skýrt fram
að Seðlabankinn muni bera kostnað
vegna þessa, né er upphæð tilgreind.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá var fulltrúum í fv. banka-
ráði Seðlabankans ekki kunnugt um
þá ákvörðun þáverandi formanns
ráðsins, Láru V. Júlíusdóttur, að
bankinn myndi bera kostnaðinn við
málsóknina, sem var alls rúmar 7,4
milljónir. Kostnaður lögfræðistofu
bankans var þar af 3,3 milljónir.
Lára var formaður ráðsins 2009-13.
Núverandi bankaráð fól í mars sl.
Ríkisendurskoðun að gera úttekt á
málinu og skilaði hún svari í júnílok.
Var meginniðurstaðan sú að Lára
hefði sem formaður átt að bera
ákvörðunina undir bankaráðið, sem
væri fjölskipað stjórnvald.
Í kjölfar þess að svar Ríkisendur-
skoðunar var birt skrifaði Már nú-
verandi bankaráði bréf sem er dag-
sett 11. júlí sl. Kemur þar fram sú
skoðun Más að ráðið standi frammi
fyrir þremur kostum í málinu:
1. Að bankaráðið samþykki kostn-
aðinn sem rekstrarkostnað bankans.
2. Að bankaráð samþykki að gera
málskostnað fyrir Hæstarétti að
rekstrarkostnaði en ekki fyrir undir-
rétti.
3. Að bankaráð samþykki ekki að
gera málskostnaðinn að rekstrar-
kostnaði bankans.
Málsmeðferðin e.t.v. rannsökuð
Veldi bankaráð síðasta kostinn
útilokaði Már ekki að hann myndi
beita sér fyrir rannsókn á bankaráði.
„Hafni bankaráð að staðfesta
kostnaðinn sem rekstrarkostnað
bankans mun ég greiða Seðlabank-
anum þann útlagða kostnað sem
bankaráðið telur rétt að ég geri. Í því
sambandi afsala ég mér öllum rétti
sem ég kynni að hafa … Jafnframt
mun ég ekki vefengja niðurstöðuna
síðar. Það þýðir
ekki að ég afsali
mér rétti til þess
síðar meir að láta
skoða aðra þætti
heildarmálsins,
svo sem málsmeð-
ferð bankaráðs
vorið 2010.“
Með hliðsjón af
því að bankaráð
valdi þriðja kost-
inn virðist ekki hægt að útiloka að
Már muni beita sér fyrir rannsókn á
málsmeðferðinni síðar. Myndi sú
rannsókn m.a. beinast að Láru, en
fram hefur komið að hún taldi sig
vera að gæta hagsmuna Más og um
leið Seðlabankans í málinu.
Sem kunnugt er taldi Már að
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneytinu,
hefði í júní 2009 gefið honum vilyrði
fyrir því að laun seðlabankastjóra
yrðu ekki lækkuð ef hann tæki við
stöðunni. Var þá komið fram frum-
varp um að lækka laun forstöðu-
manna ríkisstofnana eftir að tekjur
ríkisins minnkuðu mikið eftir hrunið.
Jafnframt hefur Már upplýst að
hann ræddi málið milliliðalaust við
Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi
forsætisráðherra. Engar upptökur
eru til af því samtali og gaf Jóhanna
ekki kost á viðtali vegna þessa.
Það vekur því athygli að Már skuli
gagnrýna framgöngu Jóhönnu:
„Þegar þáverandi formaður
bankaráðs í framhaldi af úrskurði
kjararáðs hugðist standa við þetta
loforð með tillögu í bankaráði á vor-
mánuðum 2010 brast hins vegar
stuðningur í bankaráðinu þar sem
forsætisráðherra kannaðist ekki við
loforðið þegar málið komst í hámæli í
fjölmiðlum meðan það var enn til
umfjöllunar í bankaráði.“
Báðir aðilar gerðu kröfu
Jón Helgi Egilsson, starfandi for-
maður bankaráðs Seðlabankans í
fjarveru Ólafar Nordal, segir SÍ
verða fyrir kostn-
aði vegna máls
Más.
„Auðvitað varð
Seðlabankinn fyr-
ir kostnaði sem
mótaðili í mála-
ferlum við seðla-
bankastjóra. Báð-
ir aðilar gerðu
kröfu fyrir dómi
um greiðslu máls-
kostnaðar. Hins vegar var niður-
staða Hæstaréttar að fella niður
málskostnað þannig að hvor aðili
þarf þá að bera sinn kostnað. Þannig
ber bankinn eigin kostnað vegna
málaferlanna. En þar til viðbótar
greiddi bankinn málskostnað Más og
það er sá hluti sem bankaráðið sam-
þykkir ekki.“
– Hvað ætlar bankaráð Seðla-
bankans að gera næst í málinu?
„Eins og fram kemur í yfirlýsingu
bankaráðs er málinu lokið hvað okk-
ur varðar. Í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar kemur fram að það sé undir nú-
verandi bankaráði komið hvort ráðið
samþykkir þennan gjörning eftir á.
Það var sú spurning sem við svör-
uðum. Við samþykkjum ekki þennan
gjörning eftir á. Svo geta menn haft
uppi mismunandi sjónarmið um hvað
er rétt og rangt eins og málið var
rekið á sínum tíma. En við tókum
semsagt þá ákvörðun að samþykkja
ekki þennan gjörning nú mörgum
árum síðar. Síðan var það ákvörðun
seðlabankastjóra, óháð okkur, að
endurgreiða yrði þetta niðurstaða
bankaráðsins.“
– Nú er það niðurstaða Ríkis-
endurskoðunar að Lára hefði ekki
umboð til að taka þessa ákvörðun á
sínum tíma, með vísan til þess að
bankaráð sé fjölskipað stjórnvald.
Telur þú að þarna sé hugsanlega um
saknæmt athæfi að ræða sem beri að
rannsaka frekar?
„Ég vil ekki tjá mig um það. Hún
hefur lýst því að hún taldi sig hafa
umboð bankaráðsins. Á móti hafa
einhverjir fyrrverandi bankaráðs-
menn lýst því í fjölmiðlum að þeir
vissu ekki af þessu. Ég ætla ekki að
gerast dómari í þessu máli.“
– Í bréfi seðlabankastjóra til ráðs-
ins 11. júlí segir orðrétt: „Það þýðir
ekki að ég afsali mér rétti til þess síð-
ar meir að láta skoða aðra þætti
heildarmálsins, svo sem málsmeð-
ferð bankaráðs vorið 2010.“ Höfðu
þessi ummæli seðlabankastjóra ein-
hver áhrif á ákvörðun ráðsins sl.
þriðjudag?
„Auðvitað get ég ekki svarað fyrir
aðra bankaráðsmenn en þetta hafði
engin áhrif á mig. Þetta hefur ekkert
með núverandi bankaráð að gera.
Við vildum fyrst og fremst svara
spurningunni hvort við værum tilbú-
in að leggja blessun yfir þennan
gjörning sem gerðist í tíð fyrra
bankaráðs. Svarið við þeirri spurn-
ingu er nei. Þetta hafði því engin
áhrif á mig.“
Már tjáir sig ekki að sinni
Þegar leitað var eftir viðbrögðum
seðlabankastjóra í gær fékkst svo-
hljóðandi svar: „Af hálfu seðlabanka-
stjóra er málinu lokið. Hann hefur
hvorki áform né tíma til að tjá sig á
næstu dögum um hugleiðingar sínar
í framhaldi af niðurstöðunni, hvað
sem síðar kann að verða.“
Hjá lögfræðistofu Láru fengust
þær upplýsingar að hún yrði í fríi til
mánudags. Hún svaraði ekki skila-
boðum í farsíma. Þegar ákvörðun
bankaráðs var borin undir Ólaf Þór
Hauksson, sérstakan saksóknara,
var svarið stutt: „Bankaráð, sem fer
með yfirstjórn bankans, hefur ekki
beint til okkar erindi vegna málsins
og því bíður embættið átekta.“
Telur rétt að Seðlabanki borgi
Starfandi formaður bankaráðs SÍ telur rétt að bankinn greiði sinn hluta vegna málskostnaðarmálsins
Kostar bankann milljónir Seðlabankastjóri útilokar ekki rannsókn á málsmeðferð bankaráðs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seðlabanki Íslands Már Guðmundsson seðlabankastjóri fór í mál við bankann vegna launadeilu sinnar.
Már
Guðmundsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
Lára V.
Júlíusdóttir
Jón Helgi
Egilsson
í 40 ár