Morgunblaðið - 10.10.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Metfjöldi, um 2.100 manns, fylgdist með því þegar
kveikt var á Friðarsúlunni í Viðey í blíðskapar-
veðri í gærkvöldi. Fyrr um daginn afhenti lista-
konan Yoko Ono LennonOno-friðarverðlaunin en
meðal viðtakenda var Jón Gnarr, fyrrverandi
borgarstjóri. Hann tilkynnti að verðlaunaféð, um
6 milljónir króna, myndi renna til Kvenna-
athvarfsins. Við athöfnina sparaði Ono ekki lofið
og sagði Ísland farið að tákna von um frið.
2.100 manns fylgdust með því þegar Friðarsúlan var tendruð í Viðey
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kvennaathvarfið fær verðlaunaféð
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Aðildarviðræður Íslands við Evr-
ópusambandið (ESB) voru ferð án
fyrirheitis eftir mars 2011. Þetta
kom fram í erindi Ágústs Þórs Árna-
sonar, aðjunkts við lagadeild Há-
skólans á Akureyri, á aðalfundi
Heimssýnar í gærkvöldi. Hann er
höfundur viðauka 1 í skýrslu Hag-
fræðistofnunar Háskóla Íslands sem
unnin var fyrir utanríkisráðherra
um aðildarviðræðurnar við ESB og
þróun mála innan sambandsins.
Ágúst Þór sagði í samtali að svo
virtist sem Íslendingar hefðu ekki
áttað sig á þeirri breytingu sem varð
á ESB frá því að Svíþjóð, Finnland
og Austurríki fengu aðild árið 1995
og þar til Ísland sótti um aðild í júlí
2009. Hann sagði að pólitískur þrýst-
ingur hefði verið innan ESB á að fá
Norðurlöndin og Austurríki í sam-
bandið snemma á 10. áratug 20. ald-
ar, áður en austantjaldslöndin færu
að sækja um aðild. ESB hliðraði því
til í ýmsum málum gagnvart Svíþjóð,
Finnlandi, Noregi og Austurríki. Að-
ildarferli Norðurlandanna var „kýlt í
gegn“ á 18 mánuðum. Svo virtist sem
íslensk stjórnvöld hefðu talið að við
ættum hugsanlega jafn greiða leið
fyrir höndum.
Enginn slíkur pólitískur þrýsting-
ur var innan ESB árið 2009 á að fá
Ísland inn. ESB hefði því ekki ætlað
að gefa neinn afslátt af því að Ísland
þyrfti að gangast undir heildarlög-
gjöf og almennar reglur sambands-
ins. Ljóst megi telja að þetta hefði
stöðvað umræðurnar um sjávarút-
vegskaflann og á því hefði aðildar-
ferlið strandað. Ágúst Þór sagði að
ESB hefði í raun stöðvað aðildarvið-
ræðurnar eftir seinni rýnifundinn
um sjávarútvegsmál í mars 2011.
ESB skilaði ekki rýniskýrslu eftir
þennan fund og þar af leiðandi hefð-
um við ekki getað lagt fram samn-
ingsafstöðu okkar í sjávarútvegs-
málum. Rýniskýrsla ESB var ekki
komin fram í lok árs 2012. Eftir það
hefðu Íslendingar ákveðið að hægja
á aðildarferlinu. Ágúst Þór sagði það
vel geta verið að fyrrverandi utan-
ríkisráðherra og embættismenn
gætu útskýrt hvers vegna rýni-
skýrsla ESB var aldrei birt.
Ágúst Þór kvaðst hafa rætt við
samningamenn ESB í Brussel sem
sögðu að öllum í ESB hefði verið
ljóst að Íslendingar hefðu vonast eft-
ir því að komast í skjól af evrunni.
Samningamenn ESB sögðu við
Ágúst Þór að það hefði aldrei verið
inni í myndinni, enda væri aðild að
myntbandalaginu flóknara mál en
aðild að ESB.
Strandaði á sjávarútvegskafla
ESB skilaði aldrei rýniskýrslu um sjávarútvegsmál eftir fund í mars 2011 Enginn pólitískur þrýst-
ingur var innan ESB á að fá Ísland inn ólíkt því sem var gagnvart Norðurlöndum á 10. áratug 20. aldar
Morgunblaðið/Golli
Heimssýn aðalfundur Ágúst Þór Árnason hélt erindi um aðildarviðræður
Íslands og ESB og benti m.a. á að ESB hefði í raun stöðvað viðræðurnar.
Níumenningarnir sem ákærðir voru
fyrir mótmælin í Gálgahrauni í
Garðabæ í fyrra voru allir dæmdir til
þess að greiða 100 þúsund króna sekt
í ríkissjóð í Héraðsdómi Reykjaness í
gær, eða að öðrum kosti sæta fangelsi
í átta daga. Þeim var einnig gert að
greiða málskostnað, 150 þúsund
krónur hvert. Níumenningarnir voru
allir viðstaddir dómsuppkvaðninguna
og höfðu nokkur þeirra á orði að þau
íhuguðu að áfrýja.
„Tjáningarfrelsið og stjórnarskrá-
in eru ekki virt, en hún heimilar að
stofnað sé til friðsamlegra mótmæla.
Það að við séum dæmd fyrir það eru
auðvitað mjög slæm tíðindi fyrir rétt-
arríkið Ísland,“ sagði Gunnsteinn
Ólafsson, einn níumenninganna, í
gær. Hann sagðist ekki vera búinn að
ákveða næstu skref en sagði ákæruna
gegn sér ekki halda vatni.
„Ég er ákærður fyrir að víkja ekki
af vinnusvæði, en ég fór aldrei inn á
vinnusvæði. Þetta er fölsk ákæra en
samt er ég dæmdur,“ sagði hann.
100 þúsund krónur á mann
Greiða einnig
150 þúsund krónur
í málskostnað
Morgunblaðið/Eggert
Dómur Níumenningarnir voru allir viðstaddir dómsuppkvaðninguna í gær.
8.042 heimili
fengu fjárhags-
aðstoð sveitarfé-
laga í fyrra.
Heimilum sem
þáðu greiðslur af
því tagi hafði
fjölgað um 306,
eða 4%, frá árinu
áður, að því er
segir í grein um
félagsþjónustu
sveitarfélaga 2013 í Hagtíðindum
Hagstofunnar.
Fjölmennasti hópurinn sem naut
fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga í
fyrra var sem áður einstæðir barn-
lausir karlar eða 44,5% heimila. Ein-
stæðar konur með börn voru 26%
heimila sem nutu aðstoðar.
Breyting í fjölda þeirra sem
þiggja fjárhagsaðstoð hefur yfirleitt
haldist í hendur við hagsveiflur. Árið
2013 varð undantekning á þeirri
reglu þegar þeim sem þáðu fjár-
hagsaðstoð fjölgaði samhliða minnk-
andi atvinnuleysi.
Aldurssamsetning viðtakenda
fjárhagsaðstoðar breyttist lítið milli
2012 og 2013. Stærsti aldurshóp-
urinn var sem áður á aldrinum 25-39
ára eða rúm 42% alls hópsins 2013
en var tæp 43% 2012. gudni@mbl.is
Fleiri fengu
fjárhags-
aðstoð
4.421 barn bjó á
heimili sem fékk
fjárhagsaðstoð.
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Flogið með Icelandair
Kanarí
Allra síðustu sætin
31. okt. - 26. nóv.
Verð frá 168.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í íbúð á hótel Roque Nublo í 26 nætur
*Verð án Vildarpunkta 178.900 kr.
Aðeins flugsæti: 79.900 kr.*
*Verð án Vildarpunkta 89.900 kr.
RoqueNublo
Síðustu sætin
í sólina í október