Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2014
„Ríki íslams“, og stuðningsmanna
Verkamannaflokks Kúrdistans, sem
barðist í þrjá áratugi fyrir sjálfstæði
Kúrda í Tyrklandi.
Stuðningsmenn Verkamanna-
flokks Kúrdistans eru reiðir vegna
þess að tyrkneskir hermenn hafa
komið í veg fyrir að þeir geti farið yf-
ir landamærin til að berjast með sýr-
lenskum Kúrdum gegn samtökum
íslamistanna. Þeir segja að Tyrkir
myndu fagna falli Kobane ef það yrði
til þess að Kúrdar gætu ekki komið á
sjálfstjórnarsvæði í Sýrlandi, við
landamærin að Tyrklandi.
Yfirvöld hafa sett útgöngubann á
kvöldin í sex héruðum í Tyrklandi til
að reyna að koma í veg fyrir frekari
mótmæli.
Yfir 180.000 manns
liggja í valnum
Kúrdar og stuðningsmenn þeirra
hafa efnt til mótmæla víðar í Evrópu.
Yfir þúsund Kúrdar mótmæltu á
götum þýskra borga í fyrrakvöld.
Kvöldið áður særðust 23 í óeirðum í
Hamborg.
Vígamenn „Ríkis íslams“ hafa lagt
stór svæði í Sýrlandi og Írak undir
sig og hafa setið um Kobane í þrjár
vikur. Talið er að ef bærinn fellur
verði það mikill sigur fyrir íslamist-
ana og stórt skref í sókn sem þeir
hófu til að ná löngu belti við landa-
mærin að Tyrklandi á sitt vald.
Hermt er að um 40 liðsmenn sam-
taka íslamistanna hafi beðið bana í
Kobane í fyrrinótt, þar af 23 í loft-
árásum Bandaríkjahers og araba-
ríkja. Fimmtán Kúrdar féllu í átök-
unum.
Hátt í 200.000 manns hafa þurft að
flýja heimkynni sín vegna sóknar ísl-
amistanna við tyrknesku landamær-
in. Yfir 180.000 manns hafa beðið
bana í stríðinu í Sýrlandi frá því að
það hófst árið 2011.
Istanbúl
ANKARA
Batman
200 km
Agri
Karliova
Van
Mannskæð átök milli kúrdískra mótmælenda og lögreglu í Tyrklandi
Suruc
Kobane
Diyarbakir
Mardin
Siirt
Mus
Blóðug átök í Tyrklandi
ÍRAK
GEORGÍA
Svartahaf
Miðjarðarhaf
GRIKKLAND
BÚLGARÍA
ARMENÍA
ÍRANTYRKLAND
SÝRLAND
Átök án
dauðsfalla
Útgöngu-
bann sett
Byggðir
Kúrda
Mannskæð
átök
Antalya Adana
Mersin
Lýðræðissinnar í Hong Kong sögð-
ust í gær ætla að halda mótmælum
sínum áfram í fjármálahverfi
borgarinnar eftir að hætt var við
fyrirhugaðar samningaviðræður
þeirra við yfirvöld. Viðræðurnar
áttu að hefjast í dag en þeim var af-
lýst nokkrum klukkustundum eftir
að mótmælendur sögðust ætla að
leggja fleiri svæði undir sig ef yfir-
völdin verða ekki við kröfum þeirra
um lýðræðislegar kosningar.
Lýðræðissinnar boða frekari mótmæli í Hong Kong
AFP
Viðræðum aflýst
Einn farþeganna í MH17, malasísku
farþegaþotunni sem var skotin niður
yfir austurhluta Úkraínu í júlí, var
með súrefnisgrímu um hálsinn.
Þetta er talið benda til þess að
sumir farþega þotunnar hafi vitað í
hvað stefndi. Þetta er meðal þess
sem kom fram í sjónvarpsþætti í
Hollandi í fyrrakvöld, en utanríkis-
ráðherra landsins var gestur þátt-
arins.
„Hvernig og hvenær gríman end-
aði um háls fórnarlambsins er ekki
vitað,“ sagði saksóknari sem var
einnig gestur þáttarins.
Leitað var að fingraförum, munn-
vatni og erfðaefnum á grímunni án
árangurs.
298 manns voru í vélinni en far-
þeginn sem um ræðir er sá eini sem
var með súrefnisgrímu um hálsinn.
larahalla@mbl.is
Einn farþega MH17
var með súrefnisgrímu
AFP
Flug MH17 Brak úr malasísku þot-
unni í austanverðri Úkraínu.
Aukin geislavirkni, sem rakin er til
kjarnorkuslyssins í Tsjernobyl, hef-
ur orðið til þess að hreindýrakjöt í
miðhluta Noregs telst nú óhæft til
neyslu, nær þremur áratugum eftir
að slysið varð.
Inger Margrethe Eikelmann,
rannsóknarkona við geislavarna-
stofnun Noregs, sagði að magn
geislavirkra efna í hreindýrakjöti á
svæðinu hefði mælst langt yfir
hættumörkum. Þetta varð til þess
að hreindýraslátrun var bönnuð á
svæðinu, en yfirleitt er hundruðum
hreindýra slátrað þar í lok sept-
embermánaðar. Aukna geislavirkn-
in er rakin til veðurfarsins á svæð-
inu í sumar, en það var óvenju hlýtt
og rakt. Vegna sumarveðursins er
óvenjumikið um sveppi sem hrein-
dýrin éta. Sveppirnir taka í sig
næringarefni úr efri lögum jarð-
vegsins þar sem megnið af geisla-
virku efnunum er.
Gert er þó ráð fyrir því að eig-
endur hreindýrabúa á svæðinu geti
hafið slátrun í nóvember eða des-
ember ef hreindýrin hætta að éta
sveppina og snúa sér að hollari
fæðu. bogi@mbl.is
Hreindýrin óhæf til átu
vegna geislavirkra sveppa
Hreinar Dýrin þurfa að éta hollari
fæðu til að verða hæf til slátrunar.
AFP
Heilsuborg 5 ára
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010www.heilsuborg.is
Opið hús 11. október
frá kl. 11:00-14:00
DJ sólhattur
og þjálfarar okkar kenna saman
í afmælishóptíma kl. 11:00
Afmæliskaka a’la Sólveig kl. 12:30
100 heppnir
gestir fá gjöf frá Heilsuborg
Kynningar og tilboð
á vörum og þjónustu
Edda Björgvins
verður með stórskemmtilegan
fyrirlestur kl. 13:00
Gleði og húmor
– dauðans alvara
Allir velkomnir!
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899
Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
Bandsög 100mm.
Bandsög 260mm.
Bandsög BS-260G Blað: 2455x27mm.
Geta: = 277mm = 260x110mm.
Mótor: 1000w. TT 388017
Súluborvél
Súluborvél T-25A
Mótor: 0,65 KW.
3Ph. 400 V
MT3Festing:
Færsla: 125mm
Geta stál: 25mm
Hraðar: 8 Gírar
Þyngd: 190 kg.
TT 390002
Bandslípivél
Bandslípivél S-75
Slípiband: 75X2000mm.
Mótor: 3000w.
TT 389001
Bandsög BS-100 Blað: 1470x13mm.
Geta: = 100mm. = 100x150mm.
Mótor: 375w. TT 388001
349.000,-
T i lboð
326.300,-
T i lboð
134.900,-
T i lboð
95.500,-
Tilboð