Morgunblaðið - 28.10.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.10.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2014 www.isfell.is Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is Ísnet Húsavík s. 5 200 555 Ísnet Akureyri s. 5 200 550 Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565 Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560 Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Vertu viðbúinn vetrinum Mest seldu snjókeðjur á Íslandi LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Lítið miðar í kjaradeilu Félags tón- listarskólakennara, FT og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundi deilu- aðila lauk á sjöunda tímanum í gær- kvöldi og sagði Sigrún Grendal Jó- hannsdóttir, formaður FT, að honum loknum að mikið bæri á milli. Nýr fundur hefur verið boðaður kl. 14 í dag. FT er aðili að Kennarasambandi Íslands og fer fram á sambærileg kjör og félagsmenn annarra félaga sam- bandsins hafa. Formaður samninga- nefndar sveitarfélaganna segir slík kjör ekki í boði nema FT sé tilbúið í breytingar á samningum og vinnuum- hverfi. Tónlistarkennarar í Félagi ís- lenskra hljómlistarmanna, FÍH, greiða þessa dagana atkvæði um samning sem skrifað var undir á mið- vikudaginn. Félagar í þessum tveim- ur stéttarfélögum sinna sambæri- legum störfum. Félögin tvö voru áður í samstarfi um kjarasamninga en koma nú að samningaborðinu hvort í sínu lagi. Segir að breytinga sé þörf Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir þessi tvö félög hingað til hafa verið á sama kjarasamningi gagnvart sveitarfélög- unum. „Við semjum við þessi félög um sömu störf, en áherslur þeirra gagn- vart okkur eru ólíkar.“ Inga Rún seg- ir sveitarfélögin ekki tilbúin til að ganga að kröfum FT um sambærileg laun og annarra hópa innan KÍ án þess að verulegar breytingar verði gerðar á kjarasamningum og vinnu- umhverfi. „Grunnskólakennarar náðu fram viðamiklum breytingum á sínum samningum eftir mikla vinnu og ein- földun á samningnum,“ segir Inga Rún. „Á grundvelli þeirra breytinga sköpuðum við tækifæri til hagræðing- ar, sem gerði okkur kleift að hækka laun þeirra. Við erum tilbúin í slíka vinnu með Félagi tónlistarskólakenn- ara en höfum ekki fengið mikinn hljómgrunn.“ „Við erum í sama stéttarfélaginu með sömu kjarastefnuna. Erum við heppilegt bitbein í einhverri stjórn- málafléttu?“ spyr Sigrún, formaður FT, og á þar við að þau 5% félags- manna KÍ, sem eru í Félagi tónlistar- skólakennara, eru með lægri laun en aðrir félagsmenn. „Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistar- náms rennur út núna um áramótin og við vitum ekki til þess að menn séu að ræða saman um framhaldið,“ segir Sigrún. „Er verkfallið okkar kannski kærkomin búbót fyrir sveitarfélögin í lok fjárhagsárs?“ Hún segist hafa orðið fyrir von- brigðum með gang viðræðna. Þær hafi hafist í byrjun desember í fyrra en ekki hafi komið fram neinar haldbærar hugmyndir samninganefndar sveitar- félaganna fyrr en eftir að ákveðið hafði verið að greiða atkvæði um boðun verkfalls. „Ég átta mig ekki á því hvaða skilaboð er verið að senda. Það er a.m.k. búið að gera okkur fyllilega ljóst að við höfum ekki sama slagkraft og t.d. leikskólakennarar eða flug- menn. Hingað til hafa þetta ekki verið eiginlegar samningaviðræður.“ Félag tónlistarskólakennara hefur borið saman laun félagsmanna og um- sjónarkennara í grunnskóla og munar þar talsverðu á. Samkvæmt upplýs- ingum frá FT verða laun 45 ára tón- listarkennara 378.169 krónur í byrjun næsta árs, en laun umsjónarkennara á sama aldri 439.447. Sigrún segir raunhæft að bera þessi tvö störf sam- an. „Bæði krefjast mikilla samskipta við foreldra, utanumhalds og einstak- lingsmiðaðs náms.“ Slitnaði upp úr samstarfi FÍH er aðildarfélag BHM og segir Freyja Gunnlaugsdóttir, formaður samninganefndar FÍH, nýja samn- inginn góðan og að hann taki mið af samningum annarra félaga innan BHM. Hann gildir fram á næsta sum- ar og Freyja segir að tekist hafi að ná þeim skammtímamarkmiðum sem sett voru. „Þetta eru hreinar launa- hækkanir, engar breytingar í starfs- umhverfi né aukið vinnuframlag,“ segir Freyja. Alls nemur hækkunin 7,5%, þar af eru 3,2% afturvirk til 1. mars og 4,3% koma til hækkunar 1. nóvember. „Þetta er stuttur og ein- faldur samningur. Í honum felst að- gerðaáætlun þar sem farið verður yfir ýmis atriði sem ræða þarf og endur- skoða í samráði við sveitarfélögin.“ Spurð hvers vegna slitnað hafi upp úr samfloti félaganna tveggja í samn- ingagerð segir Freyja það hafa verið að frumkvæði FT. „Þarna er fólk í sambærilegum störfum á sömu stöð- um. Við náum meiri árangri samein- uð.“ Sigrún segir ástæðu þess að félögin ganga til samninga hvort í sínu lagi fyrst og fremst vera mismunandi áherslur í starfsemi félaganna. „Okk- ar starfsemi beinist öll að faglegu starfi tónlistarskólanna og mennta- málum sem hluti af KÍ. En ég efast ekki um að samstarfið eigi eftir að vera meira í framtíðinni.“ Sumir í verkfalli, aðrir semja  Félag tónlistarskólakennara enn í verkfalli  Ekkert samstarf milli tveggja félaga tónlistarkennara  Sveitarfélögin vilja gera breytingar á samningum Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjá ríkissáttasemjara Sigrún Grendal og félagar í FT fylktu liði í Karp- húsið fyrr í mánuðinum og hugðust afhenda þar ályktun. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Íslandsbanki hefur krafið þá Ragnar Z. Guðjónsson, fv. sparisjóðsstjóra Byrs, og Jón Þorstein Jónsson, fv. stjórnarformann sparisjóðsins, um milljarð króna í skaðabætur vegna tjóns sem bankinn telur sig hafa orð- ið fyrir af lánveitingu Byrs til félags- ins Exeter Holdings árið 2008. Kraf- an var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Þeir Ragnar og Jón Þorsteinn voru dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi vegna umboðssvika í tengslum við lánveitinguna árið 2012. Lánið var veitt til kaupa á stofnfjárbréfum í eigu Jóns Þor- steins og nokkurra starfsmanna sparisjóðsins og félags sem að hluta var í eigu Ragnars. Upphæð þess var 1,1 milljarður króna. Byr varð gjaldþrota árið 2010 en Íslandsbanki tók yfir starfsemi sparisjóðsins ári síðar. „Í grundvallaratriðum hefur ekki verið sýnt fram á það að Íslands- banki hafi orðið fyrir einhverju tjóni enda er þessi atburður sem á að hafa leitt til skaðabótaskyldu bankanum óviðkomandi,“ segir Hróbjartur Jónatansson, verjandi Jóns Þor- steins. Þá segir hann að hið meinta tjón hafi verið algerlega ofmetið í rann- sókn málsins. Af einhverjum ástæð- um hafi ekki verið litið til markaðs- virðis stofnbréfanna í Byr þegar lánið var veitt. Þau bréf hafi haft verðgildi 2008. Sparisjóðurinn hafi ekki farið í þrot fyrr en átján mán- uðum síðar. „Hefði verið ráðist í að ráðstafa þessum bréfum strax og tilefni var til, þá má ætla að tjónið hefði orðið miklu minna en sem nam andvirði lánsins,“ segir hann. Krafðir um millj- arð persónulega  Fv. stjórnendur Byrs krafðir um bæt- ur af Íslandsbanka Morgunblaðið/Eggert Byr Tvímenningarnir voru dæmdir fyrir umboðssvik vegna lánsins. Samtök atvinnulífsins leggjast gegn þingsályktunartillögu um að félags- og húsnæðismálaráðherra hefji vinnu við útreikning nýrra neysluviðmiða fyrir íslensk heim- ili. Segja samtökin að neyslu- viðmið séu hvorki endanlegur mælikvarði á hvað teljist nægj- anleg neysla einstakra heimila né dómur um hvað einstakar fjöl- skyldur þurfa sér til framfæris. Hagsmunasamtök heimilanna styðja tillöguna hins vegar heils- hugar. Þá telja Jafnréttisstofa og Barnaverndarstofa jákvætt að Al- þingi samþykki slíka tillögu. Seg- ir Barnaverndarstofa að ýmsir fastir útgjaldaliðir heimila hafi hækkað mikið undanfarin ár. Jafnréttisstofa bendir á nauðsyn þess að taka tillit til kynjasjón- armiða varðandi útreikninginn eftir því sem við eigi. Þetta kemur fram í umsögnum um þingsályktunartillöguna, sem Elsa Lára Arnardóttir, þingmað- ur Framsóknarflokksins, lagði fram á Alþingi ásamt fleiri þing- mönnum. Í greinargerð með til- lögunni segir að það sé morgun- ljóst að ýmsir fastir útgjaldaliðir hafi hækkað mikið undanfarin ár og hafi það haft áhrif á íslensk heimili. Því sé afar brýnt að vinna við útreikning nýrra neyslu- viðmiða fari fram. Morgunblaðið/Kristinn Alþingi Alþingismenn á þingfundi. Ólík afstaða til neyslu- viðmiða Á föstudaginn birtist bréf á vef- síðu FÍH, skrifað af nafngreindum félaga í FT. Bréfið hafði þennan sama dag verið sent á netfanga- lista FT og félagsmenn hvattir til að „sannfæra vini okkar og kollega hjá FÍH um að samþykkja ekki þennan samning“. Er þar átt við kjarasamning sem félagsmenn FÍH greiða atkvæði um þessa dagana. Bréfið er birt á vefsíðu FÍH undir fyrirsögninni „Siðlaus hegðun“ og þar segir líka að bréfið sé „hugs- anlega“ sent af forystu Félags tón- listarskólakennara og það bendi til þess að umræðan sé í slæmum farvegi. Spurð hvort umrætt bréf hafi verið sent á vegum stjórnar FT segir Sigrún, formaður félagsins, svo ekki vera. „Við vorum sökuð um að standa á bak við þetta en myndum aldrei skipta okkur af störfum annarra stéttarfélaga. Mér sýnist þetta vera skoðun þessa tiltekna aðila, það er reynd- ar umhugsunarefni að það hafi verið sett á opna vefsíðu.“ Freyja segir FÍH lítið vilja tjá sig um málið að öðru leyti en því að félagið sé ósátt við að reynt hafi verið að hafa áhrif á afstöðu fé- lagsmanna til samningsins. FT-félagar fengu bréf REYNT AÐ HAFA ÁHRIF Á ATKVÆÐAGREIÐSLU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.