Morgunblaðið - 28.10.2014, Síða 16

Morgunblaðið - 28.10.2014, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2014 VIÐTAL Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Við Arnarholt á Kjalarnesi er verið að útbúa gistirými fyrir 40 manns. Nokkrar hugmyndir eru uppi um heppilegustu starfsemina í húsinu og eru eigendurnir í leit að hent- ugum rekstraaðilum. Að sögn Stef- áns Stefánssonar, staðarhaldara og atvinnulífsfræðings, eru tvær hug- myndir sem helst er verið að vinna með. Annars vegar að þar verði rek- ið heilsuhótel og hins vegar að þar verði vistleg aðstaða fyrir flótta- menn á meðan þeir bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu í kerfinu. Stef- án talaði við ráðuneytið í vor um þá hugmynd, en þar á bæ eru menn enn að ráða ráðum sínum. Allt var í niðurníðslu Arnarholt er í eigu Fylkis ehf. sem unnið hefur að endurbótum á húsinu. Að sögn Stefáns er hótelið þegar komið með gistileyfi fyrir 15 herbergi en að auki er verið að standsetja 25 herbergi. „Hér var allt í niðurníðslu. Við byrjuðum á því að loka húsinu að utan. Það tók langan tíma og í framhaldinu hófum við framkvæmdir að innan.“ Þar hafa þegar dvalið hópar frá fyrirtækjum og segir Stefán að meðal annars sé verið að útbúa sal sem hentar undir fyrirlestra. Stefán er þess fullviss að ferða- menn sjái sér hag í að dvelja á Kjal- arnesi, sem hann segir að sé á milli borgar og sveitar. Nálægðin við borgina geri þetta að tilvöldum stað fyrir þá sem bæði vilji upplifa nátt- Uppbygging Þegar hafa verið gerð 15 herbergi og von er á 25 herbergjum til viðbótar. Tíminn mun leiða reksturinn í ljós  Heilsuhótel eða vistheimili fyrir flóttamenn í Arnarholti REYKJAVÍK2014Á FERÐ UMÍSLAND  Fjöldaframleiðsla á alíslenskum bíl getur hafist þegar fjármagn er tryggt. Hönnunarvinnu fyrstu línu svonefnds Ísar-bíls er lokið. Hann er sérstaklega hugsaður fyrir utanvega- og óbyggðaakstur með þarfir ferðaþjónustu og björgunarsveita í huga. Verkefnið var kynnt á sprotaþingi Arion banka – Seed Forum – á föstudaginn. Ísar er er fleirtalan af orðinu ís, og kallast sú tegund sem lokið er við að hanna Ísar Torveg. „Þetta er fyrsti bíllinn í heiminum sem er hannaður frá grunni fyrir óbyggð- irnar, hannaður með þessa dekkjastærð í huga og þessa getu,“ segir Bjarni Hjartarson, hönnuður Ísar Torveg, í samtali við mbl.is., og bætir við að hingað til hafi þurft að breyta bílum fyrir þessar aðstæður. Bíllinn verður framleiddur í þremur mismunandi stærðum. gudmundur@mbl.is Teikning/Ísar Íslenskur Svona lítur hinn nýi alíslenski bíll, Ísar Torveg út. Hafa hannað bíl fyrir ferðaþjón- ustuna og björgunarsveitirnar  Reykjavíkurborg á fjölbreytt safn verka eftir listamanninn Erró; mál- verk, skúlptúra, klippimyndir, vatns- litamyndir og grafíkverk, auk einka- bréfa og ýmissa gagna sem varpa ljósi á feril hans sem listamanns. Árið 1989 gaf listamaðurinn borginni um 2.000 verk sín, síðan þá hefur bæst talsvert við safnið sem telur nú um 4.400 verk. Hluti verka Errós er ávallt uppi á Listasafni Íslands í Hafnarhúsinu og þar er leitast við að gefa mynd af ferli hans. Reglulega eru haldnar sérsýningar á verkum hans, þeirri síðustu lauk í haust. Erró, eða Guðmundur Guðmunds- son, fæddist árið 1932 og er einn þekktasti samtímalistamaður Íslend- inga. Hann hefur verið búsettur í Par- ís í rúma hálfa öld og hefur á þeim tíma fengist við fjölbreytta list- sköpun. annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Listamaðurinn Erró við verk sín í Hafnarhúsinu árið 2012. Undanfarin 25 ár hefur hann gefið borginni á fimmta þúsund verka sinna frá ýmsum tímum. Borgin á 4.400 Errómyndir „Vörurnar okkar komu á markað í Rússlandi og Slóveníu núna í haust. Það hefur gengið vel að kynna þær og þær hafa fengið góðar móttökur,“ segir Brynhild- ur Ingvarsdóttir, fram- kvæmdastjóri nýsköpunar- fyrirtækisins Marinox. Fyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum, þróun og fram- leiðslu á lífvirkum efnum úr sjáv- arþörungum og afurðum sem inni- halda slík efni. Fyrsta vörulínan, UNA skincare-húðvörurnar, kom á markað fyrir tveimur árum og er á boðstólum á um sextíu sölustöðum hér innanlands. Um er að ræða dagkrem, næturkrem og augnkrem. Nú er markaðs- sókn að hefjast utanlands og á fyrirtækið um það sam- starf við Íslandsstofu. Sjón- um er fyrst beint að mörk- uðum í Austur-Evrópu og hefur að sögn Brynhildar gengið ágæt- lega að fá fjölmiðla þar eystra til að fjalla um vörurnar. Mikil samkeppni ríkir á snyrti- Vörur Marinex fást nú í Austur-Evrópu  Húðvörur úr sjávarþörungum Ljósmynd/Marinox Vörulínan Marinox framleiðir dagkrem, næturkrem og augnkrem. Vörurnar fást á 60 sölustöðum innanlands. Þegar hafa komið hópar frá fyr- irtækjum og gist í Arnarholti og sumir hafa komið oftar en einu sinni. Stefán segir að íbúar í ná- grenni við Arnarholt séu mjög áhugasamir um hótelbygginguna og hafi sýnt uppbyggingaráformum mikinn stuðning. „Þeir hafa boðið þeim gestum sem hingað hafa kom- ið upp á vöfflur, kaffi og kakó. Fólk kann vel að meta slíka heim- ilisstemningu. Við viljum viðhalda henni og að fólk fái það ekki á til- finninguna að verið sé að plokka af því peninga, heldur að hér sé nota- legt að vera,“ segir Stefán. Heimilisstemning í Arnarholti EKKERT PENINGAPLOKK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.