Morgunblaðið - 28.10.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.10.2014, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2014 ✝ Kristín Möllerfæddist í Stykkishólmi 4. janúar 1940. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 21. október. Kristín var dótt- ir hjónanna Will- iams Thomasar Möller, póst- og símstjóra í Stykk- ishólmi, f. 1885, d. 1961, og konu hans Margrétar Jónsdóttur Möller, húsfreyju, f. 1905, d. 2003. Kristín átti þrjú hálfsystkini; Guðrúnu, f. 1914, d. 1994, Óttar, f. 1918, og Jó- hann, f. 1920, d. 2011. Hún átti tvo albræður: Agnar, f. 1929, d. 2010, og William Thomas, f. 1942. Kristín giftist hinn 7. janúar 1961 Kristjáni Ragnarssyni, f. 1938. Börn þeirra eru: 1) Mar- grét Vala, lögfræðingur, f. 1962, gift Sæmundi Sæmunds- barna- og miðskóla Stykk- ishólms og síðar í Kvennaskól- ann í Reykjavík þar sem hún útskrifaðist 1957. Hún starfaði hjá Útvegsbankanum, hjá Lögreglustjóranum í Reykja- vík, var læknaritari á Borg- arspítalanum og lauk starfsævi hjá Fósturskólanum. Þessi störf vann hún lengst af ásamt upp- eldi barna sinna. Kristín að- stoðaði Rauða krossinn til margra ára við afgreiðslustörf í Borgarspítalanum. Kristín tók virkan þátt í starfi Oddfellow- stúkunnar Bergþóru og eign- aðist þar vini sem voru henni einstaklega kærir. Hún var fé- lagi í Golfklúbbi Reykjavíkur og spilaði golf hér og erlendis og eignaðist golffélaga sem urðu vinir hennar til æviloka. Kristín hafði gaman af laxveiði, náði góðum árangri og naut þess að taka þátt í þeim með manni sínum. Kristín var sæmd gullmerki LÍÚ árið 2003. Útför Kristínar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 28. októ- ber 2014, og hefst athöfnin kl. 13. syni, f. 1962, tölvunarfræðingi. 2) Tómas, við- skiptafræðingur, f. 1965, kvæntur Þóru Hrólfsdóttur, f. 1965, viðskipa- fræðingi. 3) Hildur Ragna, f. 1970, við- skiptafræðingur, gift Alexander K. Guðmundssyni, f. 1970, viðskipta- fræðingi. Börn Margrétar Völu eru Kristján Pétur, f. 1988, Arnar Geir, f. 1991, og Þröstur, f. 1998. Börn Tómasar eru Hrólfur Andri, f. 1988, Ragnar Atli, f. 1992, og Kristján Ari, f. 1998. Börn Hildar Rögnu eru Sandra Kristín, f. 1997, Óttar, f. 1999, og Kristín Helga, f. 2004. Kristín ólst upp í Stykk- ishólmi þar til hún fluttist með foreldrum sínum til Reykjavík- ur 17 ára að aldri. Gekk í Í dag kveð ég elsku mömmu mína. Hún hefur alltaf verið svo skammt undan og stór hluti af daglegu lífi fjölskyldna okkar systkinanna. Ég á því erfitt með að hugsa mér að geta ekki teygt mig ósjálfrátt í símann til að heyra aðeins hljóðið í henni eða til að stinga upp á hittingi með henni og pabba. Það var fyr- irhafnarlítið að fá hana til að smitast af einhverjum hugdett- um. Lýsandi fyrir hugarfar hennar var símtal í sumar þegar við Þóra ásamt Hildi systur og Alla höfðum fyrirvaralaust ákveðið að skjótast úr Skorra- dalnum yfir í Stykkishólm. Á ör- skömmum tíma voru þau komin úr náttfötunum í bústaðnum sín- um Lyngbrekku og í Hólminn, uppeldisbæ mömmu sem var henni afar kær. Úr varð ógleym- anlegur dagur þar sem við geng- um um bæinn og hlustuðum á sögur. En það þurfti aldrei mikið til, hugmyndir um samveru þóttu alltaf afbragðsgóðar. Skemmtilegar stundir voru óteljandi og erfitt að hugsa til þess að þar hafi verið bundinn endi á, en núna eru það samt mannkostir mömmu minnar sem eru stöðugt í huga mér. Hún var mjög skemmtileg og hafði til að bera ómælda jákvæðni gagnvart fólki sem endurspeglaðist í öllum hennar samskiptum. Það var eitthvað jákvætt og áhugavert í fari allra sem hún hitti og þannig kallaði hún fram það besta í fólki. Það endurspeglaðist í frá- sögnum hennar af vinum sínum þar sem oft var sagt í miklum smáatriðum frá mannkostum og verkefnum viðkomandi. Hún fylgdist af miklum áhuga og stolti með okkur börnum sínum og barnabörnum og gætti þess að við vissum um athafnir hvert annars sem í flestum tilfellum fólu í sér nokkuð mikil afrek að hennar mati. Áhuginn hefur allt- af náð til vina okkar allra í fjöl- skyldunni. Það voru allir vel- komnir í Seljugerðið þar sem við ólumst upp. Þar var mjög gest- kvæmt enda gestrisni foreldra minna mikil. Ég veit að hún fann hversu samferðafólki hennar fannst vænt um hana og þannig fékk hún mikið til baka. Jákvæðnin og bjartsýnin auk baráttuþreks sem braust fram á síðustu árum hjálpaði mömmu mikið í baráttunni við krabba- meinið. Hún vann ótrúlega sigra í þeirri baráttu og bjartsýnin dró hana áfram og okkur fjölskyld- una með. Á þessum fjórum árum sem hún barðist við krabbamein- ið komu hennar miklu mann- kostir fram með svo sterkum hætti að hún eiginlega geislaði. Bjartsýnin, jákvæðnin og húm- orinn gaf öllum ótrúlega mikið í samskiptum við hana. Það voru margar ógleymanlegar gleði- stundir á þessum tíma þegar henni leið ekki alltaf vel. Það er jákvætt við tíma sem þennan að maður fer að veita samskiptum meiri athygli og maður áttar sig á að hafa í gegnum árin tekið ómetanlegum hlutum sem sjálf- sögðum. Ég hef fylgst betur með sambandi foreldra minna og átt- að mig enn betur á því hversu náin þau voru. Ég hef þannig horft á eftir þeim leiðast frá heimili mínu í hvert skipti sem þau hafa farið þaðan síðustu ár- in, rúmri viku fyrir andlátið leiddust þau þaðan í síðasta sinn. Söknuðurinn er mikill en minningarnar um einstaka konu munu vonandi verða okkur styrkur. Tómas. Þegar leiðir okkar Kristínar tengdamóður minnar lágu fyrst saman vissi ég ekki að samband mitt við dóttur hennar færði mér ekki einungis eiginkonu og börn þegar tímar liðu. Ég var svo heppinn að tengdaforeldrar mín- ir urðu fljótt meðal minna bestu vina og hafa verið það alla tíð síðan. Sem nánir vinir hafa þau ávallt verið til staðar fyrir okkur hjónin, í blíðu sem stríðu, og stutt okkur með ráðum og dáð. Hjónaband Kristínar og Krist- jáns var einstaklega fallegt og forréttindi að vera hluti af fjöl- skyldunni sem þau hafa haldið utan um og hlúð að í rúm 50 ár. Þau voru samtaka í því sem þau tóku sér fyrir hendur, studdu hvort annað og hvöttu til dáða. Kristín var einstök manneskja. Hún var límið í stórri fjöl- skyldu, frænkan sem var uppá- hald allra. Hún var stoðin að baki tengdaföður mínum í þeim krefjandi verkefnum sem hann vann að á sinni starfsævi. Hún var lykilmanneskja í þeim fé- lagasamtökum sem hún vann með í gegnum tíðina. Hún hafði alltaf tíma til að sinna fjölskyldu sinni, ættingjum, vinum og hverjum þeim sem leitaði til hennar. Umfram allt var hún einstaklega jákvæð og lífsglöð manneskja. Glíma hennar við erfið veikindi undanfarin ár lýsir henni betur en flest annað. Af einstöku æðruleysi og baráttu- vilja tók hún veikindunum sem hverju öðru verkefni. Hún hafði marga sigra í þessari erfiðu glímu en að lokum varð hún að lúta í lægra haldi. Síðustu stund- irnar sem Kristín lifði lagði sjúk- dómurinn kalt og hvítt teppi yfir hana. Á sama tíma lagði vetur konungur kalt og hvítt teppi yfir jörðina fyrir utan Landspítal- ann. Um leið og Kristín hafði yf- irgefið þessa jarðvist og haldið til bjartari heima braust sólin fram úr skýjum með birtu og yl. Náttúran skartaði sínu fegursta, rétt til að minna okkur á að þannig lýsti Kristín upp og fegr- aði allt sitt umhverfi. Einstaka konu, tengdamóður og afar kær- an vin kveð ég með miklum söknuði, en umfram allt þakk- læti fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég bið góðan Guð að styrkja Kristján tengdaföður minn sem nú kveð- ur einstaka eiginkonu og lífs- förunaut. Sæmundur Sæmundsson (Sæmi). Það er með sorg í hjarta en þakklæti í huga sem ég rita þessi minningarorð um tengda- móður mína Kristínu Möller. Það er fjölskyldunni mikill miss- ir að Kristín skuli ekki lengur vera á meðal okkar og geta tekið þátt í lífi okkar. En að sama skapi er ekki hægt að vera ann- að en óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að deila með henni lífi okkar Hildar og barna okkar. Þegar við Hildur giftumst var ég svo heppinn að fá til viðbótar við mína yndislegu konu algjör- lega frábæra tengdamóður. Kristín hafði einstakt lag og natni við að ná til fólks. Ég man hversu vel Kristín tók þessum unga og hálfvandræðalega manni sem farinn var að venja komur sínar í Seljugerðið. Strax frá upphafi fannst mér ég vel- kominn og vera partur af fjöl- skyldunni. Við Hildur vorum mikið í Seljugerðinu á upphafs- árum sambands okkar og þar fékk ég tækifæri til að kynnast af eigin raun þeirri umhyggju og hlýju sem Kristín bjó yfir. Gest- kvæmt var í Seljugerðinu enda voru gestir velkomnir og þeim vel tekið. Til marks um það þá held ég að ég hafi aldrei séð ann- an eins herskara af Möller- frænkum og -frændum sem vöndu komur sínar til Kristínar og Margrétar Möller, móður Kristínar, sem þá bjó hjá Krist- ínu og Kristjáni. Nálægðin og tengslin við Kristínu hafa með árunum bara styrkst. Þegar við hugsum nú til baka til þeirra stunda sem okkur eru kærar þá tengjast þær svo margar Kristínu. Hún var nálæg annaðhvort í eigin persónu eða með lifandi áhuga á frásögnum af því sem á daga okkar hafði drifið. Skemmst er að minnast stunda í Lyngbrekku, í Stykk- ishólmi og ferðar til Vestmanna- eyja með stórfjölskyldunni. En minningarnar eru margar og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Kristín náði einstaklega vel til barna okkar og myndaði við þau sterk tengsl sem eru þeim afar mikils virði. Þegar við eignuðust okkar fyrsta barn, Söndru Krist- ínu, í Stokkhólmi þá var Kristín fyrst allra á vettvang til að að- stoða nýbakaða foreldra og berja þennan nýjasta afkomanda augum. Hann Óttar okkar var hjá dagmömmu í nágrenni við Seljugerði og naut þess oft að vera sóttur af ömmu sinni. Krist- ín Helga, yngsta dóttir okkar, lýsir þessu vel og segir að amma sín hafi alltaf getað talað við hana eins og passaði. Þegar hún var lítil þá talaði hún við hana eins og á að tala við barn og eftir því sem hún stækkaði þá gat hún haldið áfram að tala við hana eins og passaði hverju sinni. En Kristín átti alltaf einkastund með litlu nöfnu sinni þegar hún kom í heimsókn til okkar. Kristín sýndi alla tíð, og hafði, einlægan áhuga á öllu sínu fólki og öllu því sem það tók sér fyrir hendur, allir fundu að sama skapi fyrir væntumþykju og ást hennar. Við finnum vel fyrir þessu nú þegar andlát hennar ber að í gegnum velvild og væntumþykju vina okkar sem votta okkur sam- úð. Að hafa fengið að kynnast og deila ævisporum með Kristínu voru forréttindi og ég veit að við munum áfram njóta hlýju henn- ar og væntumþykju í gegnum alla þá sem hún snerti á sínu æviskeiði. Hvíl í friði elsku tengdó. Alexander Kristján Guðmundsson. Í dag verður yndisleg tengda- móðir mín kvödd í hinsta sinn. Betri tengdamóður er ekki hægt að hugsa sér og hef ég oft hugs- að um hvað ég hafi verið heppin með tengdaforeldra. Þau hafa verið ein af okkar bestu vinum í gegnum tíðina og hafa samskipti okkar við þau ávallt verið mikil og öll fjölskyldan mjög samhent, sem var ekki síst Kristínu að þakka. Við höfum ferðast mikið sam- an bæði innanlands og erlendis. Margar góðar stundir áttum við í Lyngbrekku, sumarbústaðnum þeirra í Svínadal. Þar dvöldum við oft um páskana þar sem tengdamamma eldaði dýrindis pörusteik ofan í allan skarann en best fannst henni þegar við gát- um verið þar öll saman. Í mörg ár fórum við einnig í jeppaferðir á sumrin inn á hálendið þar sem við sameinuðum fjölskyldur okk- ar beggja. Við Tommi byrjuðum í golfi fyrir nokkrum árum og fórum við oft í golf með Kristínu og Kristjáni. Ógleymanleg er golf- ferð sem við fórum í með þeim fyrir þremur árum til Spánar þegar Kristín var nýbúin í fyrstu lyfjameðferðinni og enn að jafna sig. Hún ætlaði nú ekkert að spila golf í ferðinni og tók ekki settið sitt með, en var ekki fyrr komin út en hún var búin að leigja sér golfsett og farin að spila, sem hún gerði svo alla dagana. Undanfarin ár dvöldu þau Kristján í nokkrar vikur á Flórída og stunduðu golf með vinum sínum og var næsta golf- ferð skipulögð í febrúar næst- komandi. Það sýnir kannski hversu bjartsýn og jákvæð Kristín var að hún var að vonast til þess að komast í þá ferð allt fram að andlátinu. Einnig verð ég að minnast á ferð sem við fórum til London fyrir ári. Þá var Kristín búin að greinast aftur með krabbameinið og var komin í aðra lyfjameð- ferð. Vorum við á báðum áttum með hvort hún ætti að koma með okkur en á endanum ákvað hún að koma. Ferðin gekk framar vonum, Kristín var nokkuð slöpp fyrstu dagana en hresstist síðan mikið og endaði með því, síðasta daginn, að ganga um London þvera og endilanga. Ég hef alltaf dáðst að því hversu vinmörg Kristín var og dugleg að halda sambandi við fólk. Hún átti einstaklega auð- velt með samskipti við aðra og var fljót að kynnast fólki, enda vinahópurinn stór. Hún var mjög oft í símanum að tala við vini sína eða frændfólk og fylgd- ist vel með öllum. Á spítalanum síðasta mánuðinn var líka mikill gestagangur því allir vildu koma og hitta hana og gladdist hún yf- ir öllum gestakomunum þrátt fyrir að vera oft mikið veik. Minning um elsku tengdamóð- ur mína mun lifa. Þóra. Amma var alltaf svo góð og fín. Hún var alltaf í fallegum föt- um og með hárið á hreinu. Amma setti aðra í forgang og vildi fylgjast með því hvað við vorum að gera. Þegar hún kom í heimsókn kom hún sérstaklega inn í herbergi til okkar til að hlusta á okkur þótt við höfum ekki endilega alltaf haft mikið að segja. Amma og afi voru dugleg að ferðast um heiminn og mynd- um við vilja koma á alla þá staði sem þau hafa komið á, verst hvað það væri dýrt. Við höfum ferðast talsvert með þeim og var aldrei leiðinlegt að koma í sum- arbústaðinn þeirra og fá nýbak- aðar vöfflur. Við höfum öll rólað mikið í rólunni í Lyngbrekku, þ.e. á meðan við pössuðum í hana. Við höfum farið í Stykkishólm með ömmu og var gaman að sjá hvað henni leið vel í Hólminum, þar fannst henni hún vera komin heim. Áhugamálin hennar voru að eltast við laxa og golfkúlur með afa. Við munum alltaf sakna henn- ar en erum þakklát fyrir hvað hún lifði góðu lífi og reyndist okkur alltaf vel. Sandra Kristín, Óttar og Kristín Helga. Amma okkar var einstök kona. Með endalausri getu og vilja til þess að tengjast fólki og sameina það hefur hún haldið fjölskyld- unni náinni, dekrað við okkur barnabörnin og kallað fram bros á varir allra þeirra sem henni kynntust. Það er vart teljandi, fólkið sem átti ömmu okkar sem trúnaðarvin. Hún hafði þennan einstaka hæfileika til þess að skilja aðstæður fólks, sýna ótak- markað umburðarlyndi og segja manni til syndanna ef þess reyndist þörf. Ætli við barna- börnin getum ekki öll vottað það að hún lét okkur líða eins og við værum það eina sem skipti hana máli. Margir þekkja eflaust til afa, en enn fleiri til „Kristjáns og Kristínar“. Þau voru teymi. Teymi sem ekkert gat skilið í sundur. Teymi sem stóð saman í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur. Teymi hvers minningar munu móta öll okkar sambönd og hvernig við helst viljum hafa þau; hamingjusöm og einlæg. Án þess að við gerðum okkur grein fyrir því þá kenndi amma okkur eitthvað í hvert skipti sem við hittum hana. Hún kenndi okkur hvernig réttast væri að bera sig að í samkvæmum, sinna gestum, hafa húmor fyrir sjálf- um sér og halda ákveðnum þrjóskum karakterum á mott- unni. Hún sýndi okkur líka hvernig manneskja maður á að leitast við að vera. Við áttuðum okkur alltaf betur á, eftir því sem tíminn leið, að sá innri mað- ur sem við viljum venja okkur við að vera var holdgerður í ömmu okkar. Á einhvern óskiljanlegan máta var það hún sem hélt okkur hin- um á floti undir það síðasta og þrátt fyrir allt það sem hún gekk í gegnum virtist hún samt ennþá einbeitt í því að láta öllum öðrum líða vel. Þetta lýsir ömmu í hnot- skurn, hún gat sett eigin raunir til hliðar til þess að láta öllum öðrum líða betur. Hún gat bros- að í gegnum tárin og tæklað þær áskoranir sem henni var gert að mæta af jákvæðni sem á sér vart hliðstæðu. Það er erfitt að sætta sig við að við höfum misst einn okkar besta vin og eina sterkustu manneskjuna úr okkar lífi. Þennan fallega engil sem nú hef- ur kvatt okkur. Það hjálpar þó að vita að hún átti gæfu- og hamingjuríka ævi og safnaði í kringum sig risastórum hópi fólks sem þótti óendanlega vænt um hana. Kristján Pétur, Arnar Geir og Þröstur. Þegar lítill drengur tók fyrstu skrefin í Hólminum varð hann var við rauðhærða freknótta stelpu, tveimur árum eldri en hann, sem var kölluð Dinna. Ald- ursmunurinn sagði til sín, hún var hans fyrirmynd, ástrík syst- ir, góður félagi og verndari. Þannig hefur það verið alla tíð og aldrei borið skugga á sam- skiptin. Við höfum aldrei rifist. Systir mín var indæl, frábær. Kærleikur og umhyggja var hennar leiðarljós. Nú er hún dá- in. Hún erfði frá foreldrum okkar þeirra bestu eðliskosti, ástríki, réttsýni, heiðarleika, svo og ein- lægan áhuga á annarra hag og velferð, einkum þeirra sem stóðu þeim næst. Líkt og móðir okkar gerði hefur hún alla tíð leitast við að halda stórfjölskyldunni saman. Dinna lauk landsprófi frá mið- skólanum í Stykkishólmi og fór síðan í Kvennaskólann í Reykja- vík. Þá varð daufara í Hólm- inum. Það rættist úr þegar fjöl- skyldan flutti öll suður 1957 og sameinaðist á ný í Eskihlíðinni. Dinna vann í Útvegsbankanum við Lækjartorg í nokkur ár. Það var gæfuspor þegar Dinna kynntist Kristjáni Ragnarssyni, þeim öðlingsmanni. Þau gengu í hjónaband 1961 og eignuðust síðan þrjú börn og níu barna- börn. Dinna og Kristján hafa verið samhent og heimili þeirra og heimilisbragur til fyrirmynd- ar, höfðingjar heim að sækja. Börn okkar og barnabörn hafa á hverju ári hlakkað, allt árið, til þess að koma til Dinnu frænku og Kristjáns á Þorláksmessu en þá hafa undanfarin ár margir úr fjölskyldum þeirra beggja kom- ið, hvílt lúin bein, spjallað og fengið ærlega í gogginn eftir as- ann við jólainnkaupin. Samskipti fjölskyldu okkar Önnu við fjölskyldu Dinnu og Kristjáns hafa alla tíð verið góð og gefandi, á heimilunum, í ferð- um um landið, tjaldferðum, sum- arbústaðardvöl og á ferðum er- lendis. Og svo toppurinn; heimsóknir í Hólminn sem ávallt hefur verið okkur öllum kær, sérstaklega okkur Dinnu. Það var oft á tali þegar ég hringdi í Dinnu. Það var þá nær- og stórfjölskyldan, sem hún hafði samband við, og þessi haugur af ættingjum, vinum og vinkonum sem ekki er unnt að hafa tölu á. Oft sagt á mínu heimili: „Það er á tali hjá Dinnu.“ Áhugi Dinnu á annarra hag endalaus. Þetta er ritað daginn eftir að systir mín dó. Hún er ekki leng- ur hér, horfin á ókunnar slóðir. Guð blessi hana. Ég sakna henn- ar mjög sem systur og vinar. Hugur minn og Önnu og fjöl- skyldu okkar er hjá Kristjáni, hjá börnunum og mökum þeirra, Margréti Völu, Sæmundi, Tóm- asi, Þóru, Hildi Rögnu, Alexand- er og hjá barnabörnunum. Blessuð sé minning Kristínar Möller. William Thomas Möller. Mikið er erfitt að hugsa sér að Dinna frænka, föðursystir mín, sé dáin. Hún var ennþá að berj- ast og öll trúðum við því að hún myndi sigra enn einu sinni. Þetta er sárt og allt of snemmt. Minningarnar hrannast upp. Ég hef þekkt Dinnu allt mitt líf. Hún passaði mig þegar ég var lítil og kenndi mér svo margt. Hún hefur verið fyrirmynd mín í lífinu. Falleg, geislandi, ham- ingjusöm og kröftug. Dinna gerði allt svo vel og svo fallega. Það er sama hvað tengdist henni, allt fallegt. Hamingjusöm með Kristjáni sínum, alltaf. Þau Kristín Möller

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.