Morgunblaðið - 28.10.2014, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2014
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
BRÁÐSKEMMTILEG
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Ísl. tal
POWERSÝNING
KL. 10
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
16
16
Þriðjudagstilboð Þriðjud
agstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
L
FURY Sýnd kl. 7-10 powersýning
BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 5:50-8-10:10
KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 5
GONE GIRL Sýnd kl. 10
DRACULA UNTOLD Sýnd kl. 8
TOMBSTONES Sýnd kl. 5:40
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
-Empire
-H.S.S., MBL
-H.S., MBL
★★★★★
-T.V., biovefurinn
★★★★★
-V.J.V., Svarthöfði.is
Bíólistinn 24.-26. október 2014
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Fury
Gone Girl
Borgríki 2 Blóð hraustra manna
Box Trolls Kassatröllin
Afinn
The Rewrite
Alexander and the Terrible, Horrible, No Good, Very Bad Day
House Of Magic (Töfrahúsið)
The Judge
Annabelle
Ný
2
1
3
4
Ný
5
10
7
6
1
3
2
2
5
1
3
6
2
4
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Stríðsmyndin Fury, sem segir af
skriðdrekasveit bandamanna í
seinni heimsstyrjöldinni, er sú
kvikmynd sem mestra miða-
sölutekna aflaði yfir helgina af
þeim sem sýndar eru í bíóhúsum
landsins. Alls seldust rúmlega
2.500 miðar á myndina og miða-
sölutekjur eru tæpar 3,3 milljónir
króna. Á hæla henni fylgdi Gone
Girl, nýjasta kvikmynd Davids
Fincher sem segir af dularfullu
mannshvarfi. Tekjuhæsta mynd
síðustu helgar, Borgríki 2, er nú í
þriðja sæti listans.
Bíóaðsókn helgarinnar
2.500 manns sáu Fury
Heimsstyrjöld Shia LaBeouf leikur
hermann í kvikmyndinni Fury.
Sýning Steinunnar Þórarinsdóttur,
Borders, sem sett var upp í Grant
Park í miðborg Chicago fyrr á árinu,
hefur verið valin ein af 25 bestu
myndlistarsýningum ársins á alþjóð-
legum vettvangi. Hópur sérfræðinga
úr myndlistarheiminum valdi þessar
sýningar og keppa þær í fimm flokk-
um um svokölluð Global Fine Art
verðlaun. Tilkynnt verður 1. desem-
ber næstkomandi hverjar sýninganna
hreppa þessi eftirsóttu verðlaun.
Sýning Steinunnar er tilnefnd í
flokknum „Opinber sýning eða inn-
setning utandyra“. Aðrar sýningar
sem komust í úrslit í þeim flokki eru
Uncommon Ground sem sett var upp
af Southbank Centre í London; sýn-
ing Rachel Feinstein í Madison
Square Park í New York; sýning
Kara Walker: A Subtlety, or the Mar-
velous Sugar Baby í Domino Sugar
Factory í Williamsburg, New York;
Phoenix eftir Xu Bing í dómkirkju St.
John the Divine í New York; og Echo
eftir Jaume Plensa við Seattle Art
Museum.
Í hinum fjórum flokkunum eru
m.a. tilnefndar sýningar Hiroshi
Sugimoto í Palais de Tokyo, Vik
Muniz í Líma, David Hockney í San
Francisco og Caravaggio to Cana-
letto í Fagurlistasafninu í Budapest.
Valin ein besta sýningin
Morgunblaðið/Kristinn
Listarkonan Farandsýning Steinunnar Þórarinsdóttur, Borders, er ein af
sex sem tilnefndar hafa verið í flokki sýninga og innsetninga untandyra.
Sýning Stein-
unnar Þórarins-
dóttur í úrslitum
Sænski píanóleikarinn Carl Peters-
son heldur tónleika í Norræna hús-
inu í kvöld kl. 20 og eru þeir hluti af
tónleikaröðinni Klassík í Vatnsmýr-
inni. Petersson leikur fjölbreytta
efnisskrá úr ýmsum áttum fyrir
einleikspíanó, Tunglskinssónötuna
eftir Beethoven auk verka eftir
Scarlatti, Chopin, Liszt, Peterson-
Berger, Alkan og Godowsky. Pet-
ersson hefur unnið til fjölda verð-
launa, vann meðal annars Chopin
píanókeppnina í Póllandi árið 2011
og hlaut Isman-verðlaunin árið
2005 í Ísrael. Hann hefur komið
fram víða um heim sem einleikari,
lék t.d. Grieg píanókonsertinn á
tónleikaferðalagi um Kanada og
Norður-Ameríku haustið 2012, m.a.
í Toronto þar sem honum var líkt
við einn fremsta píanóleikara Kan-
ada, Glenn Gould.
Margverðlaunaður Carl Petersson
hefur gott vald á flyglinum.
Petersson á Klassík í Vatnsmýrinni
Rithöfundurinn JK Rowling, höf-
undur bókanna um galdrastrákinn
Harry Potter, hefur greint frá því
að smásaga eftir hana um eina af
persónum bókanna, hina illgjörnu
galdrakennslukonu Dolores Um-
bridge, verði birt á aðdáaendavef
Harry Potter-bókanna, Potter-
more, á föstudaginn, 31. október.
Sagan er 1.700 orð að lengd og
verður í henni rakin ævi Umbridge
og vangaveltur Rowling um per-
sónuna. Leikkonan Imelda Staun-
ton fór með hlutverk Umbridge í
tveimur kvikmyndum um Harry
Potter og refsaði þar nemendum
Hogwarts galdraskólans grimmi-
lega. Rowling hefur sent frá sér
tvær smásögur á þessu ári tengdar
Harry Potter og í annarri þeirra
voru rakin ævintýri Potters þegar
hann er orðinn 33 ára. Í hinni
fjallaði hún um syngjandi seiðkon-
una Celestinu Warbeck.
Metsöluhöfundur Rowling sló í
gegn með bókunum um Harry Potter.
Smásaga um Um-
bridge birt 31. okt.
stofna lífi sínu þannig stórkostlega í
hættu, en við það eykur hann öryggi
skriðdrekans og áhafnar hans til
muna. Þetta er nokkuð sem „War-
daddy“ og kollegar hans hika ekki
við að gera, jafnvel þótt þeim mæti
þung vélbyssuskothríð nasista.
Leikstjóri myndarinnar, David
Ayer, lagði mikið upp úr því að
skriðdrekarnir í myndinni yrðu eins
raunverulegir og völ væri á. Þess
vegna var myndin tekin upp á Eng-
landi, í nágrenni við skriðdrekasafn-
ið í Bovington, þar sem eini starf-
hæfi Tiger-skriðdreki heims er
geymdur, en hann birtist einmitt í
myndinni.
Ekki skapaðir jafnir
Ólíkt því sem margir halda eru ekki
allir skriðdrekar skapaðir jafnir.
Skriðdrekar bandamanna, sem vel-
flestir voru Sherman-skriðdrekar,
áttu sér til dæmis litla von gegn Tig-
er-skriðdrekum nasista. Brynvörnin
á tígrinum var svo þykk að fall-
byssuskot bandamanna bókstaflega
skoppuðu af stálinu og skildu ekkert
eftir sig nema litla rispu í brynvörn-
inni. Til að granda Tiger þurfti yf-
irleitt annaðhvort aðstoð flugvéla
eða mjög djarfa sókn margra Sher-
man-skriðdreka gegn einum Tiger,
sem þýddi yfirleitt að nokkrir skrið-
drekar bandamanna fórust í átök-
unum. Myndin lýsir þessum vonleys-
islega raunveruleika bandarískra
skriðdrekahermanna óþægilega vel.
Myndin er eins mikil bíómynd og
hugsast getur – háværar spreng-
ingar, mikill djöfulgangur og óþægi-
legar þagnir þar sem þær eiga síst
við, mynd sem enginn aðdáandi
stríðsmynda ætti að láta framhjá sér
fara.
Fury Hermennirnir fimm og „heimili“ þeirra, skriðdrekinn Fury.