Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Page 3
Samtök aldraðra Síðumúla 29, 108 Reykjavík - Sími 552 6410 - Fax 562 6414 - www.aldradir.is.
Fyrir félaga Samtaka aldraðra og aðra áhugasama, sem eru á þröskuldi
55 ára aldurs og vilja ganga til liðs við samtökin. Kópavogsgerði 5-7 rís
á Kópavogstúni í Kópavogi. Húsið verður 5. hæða vandað fjölbýlishús,
sem byggt verður af byggingarfélaginu Dverghamrar ehf. í samvinnu við
Samtök aldraðra og í því verða 22 íbúðir, fimm á fyrstu, annarri, þriðju og
fjórðu hæð og á fimmtu hæð verða tvær íbúðir. Íbúðarhúsið er byggt upp
sem steinsteypt hefðbundið hús, með flötu steinsteyptu þaki, einangrað
ofanfrá. Bílageymslan er byggð upp á sama hátt, niðurgrafin að hluta með
bílastæðum ofaná. Hverri íbúðinni fylgir sér geymsla í bílageymsluhúsi ca.
6,0 m². Stæði í upphitaðri bílgeymslu fylgja 18 íbúðum. Í bílgeymsluhúsi er
séreignageymslur, tæknirými, hjóla og vagnageymsla.
Fyrir félaga Samtaka aldraðra og aðra áhugasama, sem eru á
þröskuldi 55 ára aldurs og vilja ganga til liðs við samtökin.
Um er að ræða 6 fjölbýlishús sem reist verða á íbúðarhúsalóðum
við Gerplustræti 13-15, Gerplustræti 17-19 og Gerplustræti 21-23.
Á hverri íbúðarhúsalóð verða tvö fjölbýlishús. Hvert fjölbýlishús er
á fjórum hæðum, tvær íbúðir á hæð, samtals 8 íbúðir. Heildarfjöldi
íbúða sem reistar verða á áðurnefndum lóðum eru því 48 talsins.
Fjölbýlishúsin eru með lyftu og stigakjarna sem staðsettur er inni í
miðju húsi en með hverri íbúð fylgir stæði í bílageymslu. Sjá má frekari
lýsingu á byggingarnefndarteikningum sem liggja frammi á skrifstofu
Samtaka aldraðra ásamt nákvæmri sölulýsingu og verðum íbúða.
Fyrsti áfangi er tvö 8 íbúða hús á lóð við Gerplustræti 13 - 15.
Aðaleinkenni húsanna eru stórar útsýnissvalir – einskonar “andlit”
húsanna – sem þekja alla suðurhlið frá 2. – 4. hæðar. Hverri íbúð
fylgir sér geymsla í bílageymsluhúsi. Í bílgeymsluhúsi verður aðstaða
til að þvo bíla og dekkjageymsla. Segja má, sem næst sérbýli í
fjölbýli. Gluggar íbúða á þrem útveggjum, útsýni í þrjár áttir
Sér garðspildur fylgja íbúum fyrstu hæðar.
Framkvæmdir eru hafnar, kynnið ykkur þær og umhverfi þeirra.
Ný hús, efst í Helgafellslandi Mosfellsbæ
Bygging Kópavogsgerðis 5-7
Framkvæmdir eru hafnar, kynnið ykkur þær og umhverfi þeirra. Sjá má frekari lýsingu á byggingarnefndarteikningum sem liggja frammi á skrifstofu Samtaka
aldraðra ásamt nákvæmri sölulýsingu og verðum íbúða.