Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014
Flest þekkjum við Ísland sem frón farsældar oghagsældar og dáum landið okkar íss og elda.Þær kynslóðir sem nú vaxa úr grasi, eða eru
á miðjum aldri og rúmlega það, hafa kynnst mildri
ásjónu Íslands, síður hinni harðneskjulegu hlið.
Það fengu formæður okkar og forfeður að gera,
sem bjuggu við allt önnur og lakari kjör en við í
mataræði og húsakosti.
Okkur er sagt að brennisteinsmengun af völdum
gossins norður af Vatnajökli mælist nú daglega
meiri en fjórföld slík mengun í gervallri Evrópu.
Læknar segja að fólk með öndunarerfiðleika kenni
sér þegar meins af völdum gossins. Vonandi dregur
fljótt úr illum fylgikvillum þess.
En þetta minnir á fyrri tíð og reyndar nýlega
reynslu manna á suðausturhorninu af völdum goss-
ins í Grímsvötnum og áður Eyjafjallajökli. Þá varð
allt svart, búpeningur féll að einhverju leyti og lífið
varð mörgum óbærilega erfitt. Þó er langt frá því
að jafna megi við erfiðustu ár fyrri tíðar þegar sam-
an fóru miklar náttúruhamfarir, erfitt tíðarfar og
húsakosturinn og allur aðbúnaður eins og hann var.
Illræmdust úr endurminningum þjóðarinnar að
þessu leyti eru móðuharðindin á níunda áratug 18.
aldar þegar gaus í Lakagígum samfara miklum
jarðskjálftum. Nær 10 þúsund manns eða 20%
þjóðarinnar létust af völdum harðindanna og af bú-
fjárstofni er talið hafa fallið um 11 ½ þúsund naut-
gripa (53%), 190 þúsund sauðfjár (82%) og 28 þús-
und hrossa (77%)!
En Íslendingar náðu sér aftur á strik enda jafn-
an til fólk sem sté fram til að stappa stálinu í þjóð-
ina. Í riti Hannesar biskups Finnssonar, Mann-
fækkun af hallærum, sem kom út eftir
móðuharðindin er rakin harðindasaga Íslands allt
frá landnámi til loka 18. aldar. Boðskapur bók-
arinnar var afdráttarlaus. Íslendingar mættu aldrei
missa móðinn þótt á móti blési: „En þó Ísland sé
hallærasamt, þá er það ei óbyggjandi, þau góðu ár-
in eru miklu fleiri en þau hörðu; líka og, þó á vorri
tíð hafi áfallið stórharðindi, þá hafa forfeður vorir,
hvörja oss er svo tamt að prísa miklu sælli en vér
erum, haft aungu minni né færri harðæri að reyna;
hefir landið þó þess á milli oftast náð sér aftur, fætt
sín börn og framleitt margan merkismann …“
Það er umhugsunarvert að jafnan þegar á móti
blæs og Ísland sýnir harðneskjulega ásýnd leitar
hugurinn í þennan farveg. Þannig las ég athyglis-
verða grein Guðmundar Jónssonar sagnfræðings í
Sögu 2009, einmitt þegar Íslendingar áttu í þreng-
ingum, að þessu sinni af mannavöldum. Guðmund-
ur greindi þar kreppusögu Íslands og minnti á boð-
skap Hannesar Finnssonar. Kannski er það ekki
heldur tilviljun að það skuli hafa verið árið 1970 að
þeir Jón Eyþórsson og Jóhannes Nordal stóðu að
útgáfu á Mannfækkun af hallærum. Þá þurftu Ís-
lendingar svo sannarlega á því að halda að stappa
stálinu hver í annan. Það vita þeir sem muna síð-
ustu ár sjöunda áratugarins en þá reið yfir alvarleg
kreppa, sem átti upptök í sjávarútvegi, með fjölda-
atvinnuleysi og brottflutningi af landinu.
En alltaf birti upp að nýju. Og alltaf var einhver
til að minna okkur á það!
Ísland minnir á sig
*„En Íslendingar náðu séraftur á strik enda jafnantil fólk sem sté fram til að
stappa stálinu í þjóðina.“
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Sigur Íslands gegn Hollandi er eitt
stærsta afrek íslenska landsliðsins í
knattspyrnu frá upphafi. Landsliðið
er gríðarlega sterkt um þessar
mundir en ekki
eru allir á par sátt-
ir með einn hlut
sem Bragi Valdi-
mar Skúlason,
sjónvarpsmaður
og Baggalútur, nefndi til dæmis á
Fésbókinni sinni í vikunni. „Hvenær
ætlar íslenska landsliðið að drullu-
drattast til að setja nöfnin sín á
treyjurnar, en ekki niðurstöður
faðernisprófs?“ Stöðufærslan fékk
um 270 „like“. Þorgeir Tryggvason
spurði hins vegar hvers vegna fað-
ernispróf héti ekki pungapróf?
Sirkusunnandinn og búðarkonan
Margrét Erla
Maack leitaði til
vinna sinna á Fésbók-
inni í vikunni. Hvort
er betra, þegar spilað
er með börnum
mannsins síns, að heilla þau með því
að leyfa þeim að vinna eða heilla þau
með því hvað maður er rosalega
góður í spilinu sem spilað er?
Kveðja, ein sem er st st st sturl-
að tapsár.
Björn Gunnlaugsson sat ekki á
góðri speki: „Fer eftir ýmsu. Til
dæmis hve mikið hann elskar þau,
deilt með hve mikið hann elskar
þig, plús samanlagður aldur þeirra
deilt með kvaðratrótinni af þeim
tíma sem þið hafið verið saman.“
Börkur Gunnarsson leikstjóri
er á ferðalagi um Möltu með kær-
ustu sinni og fréttakonu, Lindu
Blöndal. Linda þekkir vel til og
lóðsar Berki um borgina. „Brá þeg-
ar Linda Blöndal sagði við mig í gær
að hún ætlaði með mig í spænska
rannsóknarréttinn. Ef hún hefði
sagt þetta aðeins fyrr, svona sirka
500 árum fyrr, hefði ég talið að nú
væri ráð að slíta sambandinu og
hlaupið sem fætur toguðu á brott
frá henni. En þessi í stað sagði ég já
og við áttum rómantískan dag inn-
an um gömul pyntingartól og af-
hausaðar brúður.
Einsog með allt sem fólk segir, þá
skiptir tímasetningin mjög miklu
máli.“
AF NETINU
Lítil netverslun, Ey-
dalalilja, sem brátt
verður opnuð ætlar að
halda smá pop up-
markað í versluninni
ORG - Reykjavík við
Laugaveg 58. Um er að
ræða barnafatnað sem
búinn er til úr lífrænni
bómull frá merkinu Pu-
rerBaby.
Parið Guðrún Tara
Sveinsdóttir, fatahönn-
uður og listakona, og
Gísli Hrafn Magnússon
standa að búðinni og
verða þau með heitt á
könnunni. Opið verður
frá kl. 13-17.
Barnaföt úr bómull eru meðal þess
sem verður selt í pop up-versluninni.
Morgunblaðið/Golli
Eydalalilja með
popup-verslun
Listasafn
Íslands býður
í afmæli sitt
Listasafn Íslands
heldur upp á 130
ára afmæli sitt
og stendur nú
yfir þétt afmæl-
isdagskrá. Á
laugardag milli
kl. 11 og 17 verð-
ur haldið helj-
arinnar afmæli og boðið verður upp á kökur kl.
13 og afmælissöngur sunginn til heiðurs safninu.
Þá verður hægt að taka þátt í myndlistar-
getraun fyrir unga sem aldna og eru vegleg
verðlaun í boði. Fleiri viðburðir standa yfir um
helgina og hægt er að nálgast frekari upplýs-
ingar á heimasíðu Listasafnsins sem og á fésbók-
arsíðu þess.
Listasafn Íslands er 130 ára í ár.
Vettvangur
Á sunnudag frá kl. 13-15
verður haldinn Fjöl-
skyldudagurinn mikli í
Háskóla Íslands við Sæ-
mundargötu 2, en fjöl-
skyldunefnd Stúd-
entaráðs Íslands stendur
fyrir þessum skemmti-
lega degi. Pollapönk
kemur og skemmtir
börnum og fullorðnum
en einnig verða ýmsar
uppákomur svo sem
Sprengjugengið og lítið
útibú Bangsaspítala.
Hoppkastali verður í
boði fyrir börnin og
Sproti mætir í heimsókn
frá Landsbankanum.
Allir velkomnir. Pollarnir mæta kátir í Háskóla Íslands á sunnudag.
Morgunblaðið/Golli
Fjölskyldudagur í
Háskóla Íslands