Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Side 12
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
* Leikmennirnir elska að koma heim og spilafyrir þjóðina. Þegar þeir koma saman erþað eins og að sjá skólabekk hittast eftir sumarfrí.
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari í fótbolta, er ánægður með liðið.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014
Flestir sem komnir eru til vitsog ára muna vel eftir Sam-bandsverksmiðjunum við
Glerána á Akureyri, fjölmennasta
vinnustað bæjarins, en þegar best
lét störfuðu þar liðlega þúsund
manns.
Faðir Sögu Jónsdóttur leikkonu
og leikskálds, Jón Ingimarsson,
vann í verksmiðjunum og var síðan
formaður Iðju, félags verksmiðju-
fólks, í áratugi. Saga hefur nú,
ásamt Stefaníu Hallbjörnsdóttur,
skrifað leikrit um verksmiðjufólkið;
gamla Gefjun hefur verið glædd lífi
á ný af félögum í Leikfélagi Hörg-
dæla. Verksmiðjukrónikan var
frumsýnd á fimmtudagskvöldið.
Saga leikstýrir á Melum og Stef-
anía fer með eitt hlutverkanna.
Þær hafa áður unnið saman; Stef-
anía fór með hlutverk í Borgar-
innunni, verki sem Saga skrifaði og
leikstýrði 2012, en þar sagði frá
Vilhelmínu Lever, konu sem setti
mikinn svip á 19. öldina á Ak-
ureyri.
„Ég hef aldrei sagt Sögu það, en
um leið ég las handritið að Borg-
arinnunni vissi ég að mig langaði
að vinna meira með þessum rithöf-
undi,“ segir Stefanía og hlær, þar
sem þær sitja með blaðamanni
Morgunblaðsins.
Báðar gengu með hugmynd:
Saga vildi semja leikrit um fólkið á
verksmiðjunum en Stefaníu langaði
að fjalla um hernámsárin á Akur-
eyri. Fyrir hálfu öðru ári hittust
þær, ræddu hugmyndirnar fyrir til-
viljun og ákváðu að láta slag
standa.
„Við vorum dálítið langt hvor frá
annarri í fyrstu en nálguðumst
fljótt og smullum saman,“ segir
Stefanía.
Saga segir minningar úr æsku
og störf föður hennar í þágu verka-
fólks eru hluti skýringar þess að
hana langaði að takast á við þetta
verkefni. „Ég ólst upp við verka-
lýðsbaráttuna. Við áttum heima
neðst í Byggðaveginum, rétt fyrir
ofan verksmiðjurnar. Ég sá út um
eldhúsgluggann þegar fólkið gekk
heim í hádegismat og kom aftur til
vinnu. Þegar ég fór að finna fyrir
því að unga fólkið hér í bænum
vissi ekkert um verksmiðjurnar;
ekki einu sinni hvar þær voru,
fannst mér ég verða að gera
þetta,“ segir Saga. „Pabbi var með
skrifstofu verkalýðsfélagsins heima
um tíma og ég sá því margt fólk
koma til hans með sín vandamál.
Systkini pabba unnu líka á verk-
smiðjunum og ég get ekki hugsað
mér að þessi stóri vinnustaður falli
í gleymskunnar dá.“
Miðpunktur leikritsins er fjöl-
skylda. Faðirinn, systir hans og
dóttir vinna öll á Gefjun. „Fleira
fólk kemur við sögu, enda eru 20
leikarar í sýningunni,“ segir Saga.
„Við lögðumst í mikla heimildar-
vinnu,“ segir Stefanía, „en verkið
er ekki sagnfræði. Við reynum að
fanga tíðarandann og stemninguna
í bænum; á þessum tíma var til
dæmis ekkert miðjumoð í pólitík-
inni. Það voru kommúnistar og svo
auðvaldssinnarnir: stríðsgróða-
mennirnir.“
Þær ræddu við gamla starfs-
menn á verksmiðjunum og nýta sér
ýmislegt í frásögnum þeirra. „Eng-
in persóna í leikritinu var þó til
heldur er þetta allt skáldskapur og
hugmyndir koma úr öllum áttum;
Saga á ýmsar minningar, gamlar
ljósmyndir hafa kveikt hugmyndir
og við höfum lesið ýmis gögn,“
segir Stefanía og Saga nefnir til
dæmis Bretaþvottinn, sem svo var
kallaður. „Það var gullnáma fyrir
konur sem margar hverjar eign-
uðust peninga í fyrsta skipti.
Amma mín þvoði til dæmis af
Bretum og eignaðist vini sem
héldu sambandi við hana löngu
eftir að þeir voru farnir.“
HÖRGÁRDALUR
Gefjun
glædd lífi
VERKSMIÐJUR SÍS Á AKUREYRI ERU MÖRGUM Í FERSKU
MINNI EN UNGA KYNSLÓÐIN KEMUR GJARNAN AF FJÖLL-
UM, ÞEKKIR BARA VERSLUNARMIÐSTÖÐINA GLERÁRTORG.
Fanney Valsdóttir les í bolla í leikritinu. Með henni á myndinni eru Bryndís Sóley Gunnardóttir og Birgitta Bragadóttir.
Ljósmynd/Áslaug Ólöf Stefánsdóttir
Saga Geirdal Jónsdóttir leikstjóri og Stefanía E. Hallbjörnsdóttir, einn leik-
aranna. Saman skrifuðu þær handritið að Verksmiðjukrónikunni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
UM ALLT LAND
RAN A
Stór á unni í
vikun refilsins
í 5 þú kemmtilega vildi
til að rðardóttir úr
Fljóts á ferðinni, en
Helga hefur verið einn all íð b j ð
var að sauma og hefur hú
síðan í febrúar 2013. Helg
valdi hún sér pakka með m
Nú hafa yfir 30 metrar ve
saumaskapurinn gengur fr
NESKAUPSTAÐUR
Steinasafni Karls heitins Hjelm verður komið
í Neskaupstað. Hann var virkur í safnamálu
g gí Safnahúsinu á ve um Féla svið yfirsetu
ning safnsins ogVeraldarvinir sjá um flut
iðeng fyrir safnum að ræða mikinn f
fallegra steina sem fundnir voru að stórum hluta á Austurlan
ÞJÓRSÁRDALUR
Framkvæmdir ganga vel við Hjálparf
eru tröppur og pallar fy
verfi hans. Lagðumh
þola betur sívaxan
við Hjálparfo
ÞÓRSHÖFN
Framkvæmdir eru
hafnar við að laga
l hú ið á Þó höf
á
er
sta
húsið v
miklum m
dáða, það verðu
húsið þar sem fl
farin,“ segir á ve
BÍLDUDALUR
Leikfélagið Baldur á Bíld
þegar það frumsýnir leik urshaga um
helgina, að því er bb.is se erkum eru tve
af burðarásum félagsins , Hannes Friðriksson
og Þuríður Sigurmunds urinndkstjóri er Bíld æling
Elfar Logi Hannesson og í fyrsta sinn sem hann leikstýrir hjá félaginu. Fað
hans fer með annað aða ð.