Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014
Fjölskyldan Flestum börnum þykir heitt súkkulaði afar gott og ekki er verra ef rjóm-inn er fagurlega skreyttur með lituðum perlum eða súkkulaðispæni. Full-
orðnir fúlsa fæstir við súkkulaði, annars er alltaf hægt að fá sér kaffibolla í
staðinn. Það er huggulegt að ylja sér á bolla saman á kaffihúsi eða heima.
Yljandi súkkulaði
Þ
emað í ár á degi getn-
aðarvarna, sem haldinn var
í síðasta mánuði, var:
„Þetta er þitt líf, þetta er
framtíð þín, kynntu þér mögu-
leikana.“ Sem stendur eru mögu-
leikarnir ekki mjög margir. Sam-
kvæmt bæklingi Landlæknis-
embættisins, Leiðbeiningar um
getnaðarvarnir, eru til 15 mismun-
andi getnaðarvarnir og er þeim öll-
um beint eingöngu að konum fyrir
utan smokkinn og ófrjósemisaðgerð
karla. Þar af eru aðeins þrjár að-
ferðir hormónalausar fyrir utan
ófrjósemisaðgerð kvenna. Þetta eru
náttúrulega aðferðin, sem byggist á
því að áætla frjósaman tíma hjá
konum til að vita hvenær eigi að
sleppa samförum eða nota aðrar
getnaðarvarnir til að forðast þung-
un, koparlykkjan og loks hettan.
Ábyrgðin liggur því að mestu hjá
konum; þær taka pillur, láta setja
upp lykkjuna, hring, nota plástra og
þar fram eftir götunum.
Núna lítur samt út fyrir að það
styttist í getnaðarvörn sem er sér-
staklega ætluð körlum. Verið er að
rannsaka nokkrar mismunandi út-
gáfur karlapillunnar sem innihalda
ólíkar blöndur af testósteróni og
prógesteróni. Sumar þeirra eru
komnar á lokastig prófana, sam-
kvæmt grein í International Bus-
iness Times.
Verður ódýrt og virkar lengi
Nýjasta þróunin í getnaðarvörnum
er hins vegar gel fyrir karlmenn.
Þetta er ekkert hárgel heldur
hormónalaust „fjölliðuvatnsgel“ (e.
polymer hydrogel) sem stöðvar sáð-
frumur og kemur þannig í veg fyrir
þungun. Það heitir Vasalgel og er
þróað af góðgerðarstofnuninni
Parsemus Foundation og gæti kom-
ið á markað árið 2017.
Gelinu er sprautað inn í sáðrásina
og lokar henni þannig að engar sáð-
frumur eru í sæðisvökvanum þegar
sáðlát verður, rétt eins og í ófrjó-
semisaðgerð.
Rannsakendurnir eru sannfærðir
um að lyfið verði ódýrt, virki lengi
og síðast en ekki síst er ófrjósemin
ekki varanleg. Hugmyndin er
sumsé að það virki eins og ófrjó-
semisaðgerð en hægt sé að snúa
henni við með því að leysa upp gel-
ið. Síðan á eftir að koma í ljós hvort
karlmenn séu tilbúnir til að taka
karlapilluna eða láta sprauta í sig
geli.
Elaine Lissner, framkvæmda-
stjóri Parsemus, segir það ekki að-
almálið. „Það munu ekki allir menn
nota það en það nota heldur ekki
allar konur getnaðarvarnir. Málið
er að hafa eitthvað fyrir alla. Sem
stendur eru möguleikar karlmanna
takmarkaðir. Menn nota heldur
ekki þá kosti sem þeim bjóðast
núna,“ sagði hún í samtali við
Guardian.
Smokkanotkun hefur dregist
saman í Bandaríkjunum, eða um
4% á milli áranna 2006 og 2010.
Meðal táninga minnkaði smokka-
notkun um nærri 50% á sama tíma.
Þetta er samkvæmt tölum frá
bandarísku heilbrigðisstofnuninni
CDC. Í báðum tilfellum er þróunin
rakin til aukinnar notkunar á horm-
ónagetnaðarvörnum. Í Kína og
vestrænum löndum almennt hefur
smokkanotkun aukist en hún hefur
dregist saman í Afríku og Indlandi.
Mest notaða getnaðarvörnin í þró-
unarlöndunum er ófrjósemisaðgerð
kvenna. Í heildina eru konur farnar
að nota fleiri getnaðarvarnir á með-
an notkun karla á getnaðarvörnum
hefur minnkað.
„Það verða alltaf til neanderdals-
menn, það verða alltaf menn sem
segja „ekki snerta djásnin“ og það
verða aldrei 100% sem vilja þetta,“
sagði Lissner. En hún bendir á að
Vasalgel gæti verið mikið lán fyrir
þá menn sem eru ekki að hugsa um
að skapa fjölskyldu og vilja ekki
hafa fjárhagsáhyggjur. „Þetta er
ákveðinn hvati fyrir vissan hóp
manna sem hafa áhyggjur af því að
„óhapp“ hafi áhrif á fjárhagslega
framtíð sína og þeir þurfi að greiða
meðlag næstu átján árin,“ sagði
Lissner ennfremur.
Þetta er kannski ekki falleg
hugsun en með þessu væri þó þessi
hópur manna að taka ábyrgðina til
sín.
Spurning um traust
Önnur spurning er hvort konur
muni treysta mönnum fyrir því að
taka pilluna eða fá sprautu.
Könnun IBTimes í Bretlandi
komst að því að um 58% kvenna
sögðust treysta maka sínum til að
sjá um getnaðarvarnirnar.
Elizabeth, 36 ára blaðamaður,
sagði að sér þætti það erfitt. „Þetta
varpar nýju ljósi á að treysta maka
sínum. Mér þætti erfitt að láta eig-
inmann minn bera ábyrgðina því þá
þætti mér ég ekki hafa stjórnina yf-
ir eigin líkama. Á móti væri mjög
frelsandi að þurfa ekki sjálf að taka
getnaðarvarnir!“
Freya, 24 ára viðburðastjóri,
sagði að karlapillan væri góð hug-
mynd þar sem hingað til hefðu kon-
ur þurft að bera ábyrgðina á því að
taka pilluna. „Með traustum maka
er þetta frábær kostur fyrir pör,“
sagði hún og endurspeglar áreið-
anlega skoðanir margra kvenna.
Eitt af því sem könnunin sýndi
fram á var að konum finnst kominn
tími til að karlmenn beri ábyrgð á
þessum málum rétt eins og konur.
Þeir geta þó ekki gert það fyrr en
fleiri möguleikar til getnaðarvarna
verða fyrir hendi og nú loks hillir
undir það.
GETNAÐARVARNIR HAFA VERIÐ Á ÁBYRGÐ KVENNA AÐ STÆRSTUM HLUTA
OG FÁIR MÖGULEIKAR HAFA VERIÐ TIL FYRIR KARLMENN
Kominn tími til að
deila ábyrgðinni
GETNAÐARVARNIR ERU NOKKUÐ SEM SNERTIR FLESTA. HINGAÐ TIL HAFA KONUR
BORIÐ HITANN OG ÞUNGANN AF ÁBYRGÐINNI EN NÚ HILLIR UNDIR NÝJUNGAR
FYRIR KARLMENN; KARLAPILLU OG HORMÓNALAUST GEL, SEM VIRKAR Á
SVIPAÐAN HÁTT OG ÓFRJÓSEMISAÐGERÐ.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Getty Images/iStockphoto
1935 Sett lög um
getnaðarvarnir og
fóstureyðingar. Fóst-
ureyðingar voru
heimilaðar í sér-
stökum tilfellum og
máttu læknar veita
konum upplýsingar
um þungunarvarnir.
Læknar einir höfðu
heimild til að hafa
slíkar upplýsingar
undir höndum.
1967 Pillan var
tekin á lyfjaskrá á Ís-
landi. Stöku kven-
sjúkdómalæknar
höfðu þó ávísað
henni áður en þá ein-
göngu til giftra
kvenna.
1975 Sett ný lög
um getnaðarvarnir og
fóstureyðingar. Heim-
ild til fóstureyðingar
var rýmkuð verulega
og aðgangur að getn-
aðarvörnum auðveld-
aður. Skólum var gert
skylt að veita nem-
endum kynfræðslu.
Heimild: Kvennasogusafn.is.
Aukið úrval
getnaðarvarna
er kærkomið.